Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Qupperneq 46
22. júní 2018KYNNINGARBLAÐSumarhlaup
SÚLUR VERTICAL:
Besta utanvegahlaupið 2017
Utanvegahlaupið Súlur Vertical mun loka hlaupasumrinu í ár og raunar fer hlaupið fram í
haust. Var því frestað frá 25. ágúst
til 13. október. Því er óhætt að kalla
hlaupið glæsilegan endapunkt
hlaupasumarsins enda völdu lesend-
ur hlaup.is Súlur Vertical besta utan-
vegahlaupið árið 2017.
Tvær vegalengdir eru í boði, sú
lengri er 28 km með um 1.400 m
hækkun upp fjallið Súlur, sem er bæj-
arfjall Akureyrar. Styttri vegalengdin
er 18 km með 450 m hækkun og þá
er ekki farið upp fjallið.
Súlur Vertical gefur ITRA stig og
2 punkta og hefur fengið vottunina
„Qualifying race 2018“.
Heimsfrægur þátttakandi
Í ár mun Hayden Hawks mæta til leiks
í Súlur Vertical. Það er mikill heiður
að fá Hayden í þetta hlaup því hann
er einn besti ofurhlaupari heims
(hlauparar sem hlaupa lengra en
maraþon) og er nr. 4 á alheimslista
ITRA. Fyrir utan að vera einn besti
ofurhlaupari heims þá á hann tím-
ann 28.53 í 10 km á braut og 13.51 í
5.000 m brautarhlaupi. Hann vann
CCC í fyrra með yfirburðum en það er
mjög sterkt hlaup hringinn í kringum
Mont Blanc, alls 101 km með 6.100 m
hækkun. Í ár er hann skráður í UTMB
sem er 171 km hlaup með 10.300 m
hækkun í kringum Mont Blanc þannig
að hér er á ferðinni einn sá allra besti.
Hlaupaleiðin
Hlaupið hefst á tjaldstæðinu á
Hömrum, þaðan er farið í Kjarna og
svo sem leið liggur upp í Gamla. Frá
skálanum Gamla er hlaupið upp í
Fálkafell og síðan að Súlubílastæði.
Frá Súlubílastæði er hlaupið upp
stikuðu gönguleiðina upp á topp
Ytri-Súlu (að 1.170 m hárri vörðu);
þar er snúningspunktur og sama leið
síðan hlaupin til baka niður á bíla-
stæði. Frá Súlubílastæði er stysta
leið hlaupin niður að MS og þaðan er
göngustígunum fylgt því sem næst
meðfram Glerá og sem leið liggur
niður í miðbæ Akureyrar. Kort er af
hlaupaleiðinni á hlaup.is.
Hlaupaleiðin er virkilega skemmti-
leg, mismunandi undirlag er á leiðinni,
s.s. moldarstígar, mýri, klappir, snjór,
urð og grjót. Útsýnið á leiðinni er
ægifagurt þar sem Akureyri, Glerár-
dalurinn og Eyjafjörðurinn skarta sínu
fegursta.
Það má enginn hlaupari láta þetta
spennandi hlaup fram hjá sér fara.
Nú er bara taka 13. október frá og
skrá sig í Súlur Vertical, opnað verður
fyrir skráningar á næstu dögum á
hlaup.is.
Sjá nánar um Súlur Vertical á
hlaup.is og runningiceland.com.