Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 57
MENNING 5722. júní 2018
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Mátturinn
með landanum
Að undanskildri nýjustu Star Wars
mynd myndabálksins, Solo, hafa
allar þrjár nýju kvikmyndirnar
átt í íslenskt umhverfi að sækja.
Kvikmyndirnar eru The Force
Awakens, Rouge One og The Last
Jedi. Tökuliðið stóð vaktina með
al annars við eldgíginn Víti í Kröflu
og á svörtum Mýrdalssandinum.
Fjöllin við Hjörleifshöfða komu
jafnframt sérstaklega vel út
í skuggalegri upphafssenu
myndarinnar Rogue One og blésu
þau miklu lífi í plánetuna Lah‘mu.
Ísland, Grænland og Afghanistan
Leikarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Ben Stiller heillaðist svo mik
ið af landinu góða að hann nýtti það til hins ítrasta í gamanmyndinni
The Secret Life of Walter Mitty frá 2013. Í þeirri mynd ferðast titil
persónan meðal annars til Íslands og verður vitni að eldgosi auk þess
að skoða landsbyggðina á fljúgandi ferð. Kvikmyndagerðin á bakvið
Walter Mitty á sér þó ýmis leyndarmál. Atriði sem eiga að ger ast á
Græn landi og í Af ghanistan voru einnig tekin upp hér á landi og er því
sérstaklega ruglingslegt fyrir Íslendinga að horfa á myndina ef þeir
þekkja til þeirra staða sem myndin sýnir. Stiller og félagar tóku upp í
Stykkis hólmi, á Grundarfirði, í Garð inum, í Hvera dölum, við Þjórsár brú
og Skóga foss, á Breiða merk ur sandi, Höfn, Seyðisfirði og í sjálfu Geira
bak arí í Borgarnesi, sem dulbúið var sem pitsustaðurinn Papa Johns.
Morð á Reyðarfirði Í sjónvarpsþáttunum
Fortitude, sem hófu göngu sína árið 2014, var Reyðarfirði
breytt í smábæ sem er talinn öruggasti bær heims, en það
breytist allt þegar vísindamaður er myrtur og allir íbúar liggja
undir grun. Talið er að framleiðsluteymi þáttanna hafi leitað
til Kanada og Noregs áður en Ísland varð fyrir valinu. Þriðja
og síðasta þáttaröðin var hins vegar tekin upp á Svalbarða.
Snöggir og snar Bílablæti og hamagang
ur sameinaðist með prýði í Fast & Furious 8. Árið 2016
mætti tökuliðið til þess að skjóta tryllta og umfangsmikla
hasarsenu þar sem Mývatn brá sér í gervi Rússlands. Íbúar
á Akranesi fengu einnig mikla flugeldasýningu þegar að
standendur myndarinnar sprengdu haug af spyrnukögg
um í loft upp. Allt gekk vel fyrir sig á meðan tökulið og
leikarar voru staddir í hasarnum, að undanskildu því þegar
ofsaveður þeytti burt leikmyndum og búnaði, sem leiddi
til þess að hestur lést í kjölfarið. Einnig sukku vinnuvélar í
Mývatn eftir að ís brast undan þeim, en eins og landsmenn
vita lætur náttúran ekki bjóða sér upp á hvað sem er.
Krúnuleikarnir árlegu
Löngu er orðið ljóst að framleiðendur Game of
Thrones þáttana eru yfir sig hrifnir af Íslandi.
Tökuliðið kom hingað fyrst í nóvember 2011
þegar önnur sería var komin í vinnslu og skaut
atriði bæði á Vatnajökli og Mýrdalsjökli. Síðan
þá hafa verið tekin upp atriði hér á hverju ári
nema árið 2014. Mörg atriði voru tekin upp í Mý
vatnssveit, í Dimmu borgum, Hverfelli og Grjóta
gjá. Þá hefur einnig verið tekið upp á Þingvöllum,
við Goðafoss, í Hvalfirði og á Grundarfirði.
Út í geim og
beint á klakann
Ísland hefur alltaf þótt
sérlega eftirsótt þegar risarnir í
Hollywood eru í leit að umhverfi
fyrir framandi plánetur. Með
framtíðardramanu Interstellar
var Svínafellsjökull mikilvægur
þáttur í nokkrum spennandi
hasarsenum. Þetta var ekki
í fyrsta skiptið sem hinn virti
leikstjóri Christopher Nolan
naut góðs af þessu svæði, enda
var sami tökustaður notaður
fyrir Batman Begins tæpum
áratugi áður.
Dettifoss á
breiðtjaldi
Það er óhætt að segja að vísinda
skáldsagnarinnar Prometheus
hafi verið beðið með gríðarlegri
eftirvæntingu á sínum tíma.
Um er að ræða forsögu hinnar
sígildu Alien frá Ridley Scott
en Prometheus hlaut blendnar
viðtökur við frumsýningu en gátu
flestir verið sammála um mikil
fenglega hönnun, umgjörð og þá
ekki síður i landslaginu. Ísland
spilaði stóra rullu sem aðskota
plánetan LV223. Tökur fóru fram
sumarið 2011 og var myndin tekin
upp nálægt Heklu í Rangárvalla
sýslu. Það má heldur ekki gleyma
stórglæsilegri innkomu við Detti
foss í byrjun myndarinnar.