Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 65
22. júní 2018 FRÉTTIR - EYJAN 65
G
alileo er nafnið á stóru
evrópsku verkefni sem
felst í að senda 30 gervi-
hnetti á braut um jörðina.
Þessi gervihnettir eiga að keppa
við hið bandaríska gps-kerfi sem
flestir þekkja. Verkefnið er dýrt en
áætlað er að það kosti sem nem-
ur á annað þúsund milljörðum ís-
lenskra króna. Bretar hafa tekið
þátt í þessu verkefni en nú kemur
Brexit aftan að þeim því þeim hef-
ur nú verið kastað út úr verkefn-
inu. Þetta eru Bretar ósáttir við og
hóta að fara eigin leiðir og búa til
sitt eigið gervihnattakerfi.
Það skiptir bresk fyrirtæki
miklu máli að Bretar taki þátt í
Galileo því aðeins þá geta þau
boðið í ýmsa verkþætti þess. Þau
eru núna útilokuð frá að bjóða í
næsta hluta verkefnisins og ekki
nóg með það heldur missir breski
herinn aðgang sinn að lokuðum
hernaðarhluta kerfisins.
Allt á þetta rætur að rekja til
væntanlegrar útgöngu Breta
úr ESB á næsta ári en
þá verður Bretland
„þriðja land“ í aug-
um ESB.
Galileo-verk-
efnið er þó ekki
beint á veg-
um ESB heldur
Evrópsku geim-
ferðastofnunar-
innar (ESA) sem
er ekki hluti af ESB.
Það er til
dæmis ekki skilyrði að ríki séu aðil-
ar að ESB til að geta tekið þátt í starfi
ESA, til dæmis er Sviss aðili að ESA.
En ESB-ríki ráða miklu innan ESA
og ESB hefur lagt mikið af mörkum
til Galileo-verkefnisins. Bretar hóta
nú að hefja vinnu við eigið gervi-
hnattakerfi, hugsanlega í samvinnu
við Ástrali. Bretland er mikilvæg
miðstöð öryggis- og tæknigeirans í
Evrópu. Einnig er hægt að færa rök
fyrir því að leyniþjónustur landsins
og her séu þeir öflugustu í Evrópu.
Bretar geta því hnyklað vöðva í til-
raunum sínum til að fá að vera með
í samvinnu um gervihnetti og ekki
síður öryggismál.
The Times hefur eftir heim-
ildarmanni innan stjórnkerfisins
að hin ríkin segi áhyggjur af ör-
yggismálum vera ástæðuna fyrir
að Bretar fá ekki að vera með. Þetta
telja Bretar vera yfirskin enda geta
fyrirtæki frá öðrum ESB-ríkjum
nú boðið í verkefnið án þess að
þurfa að keppa við bresk fyrirtæki.
Þetta getur reynst Bretum dýrt því
hætt er við að hámenntaðir starfs-
menn í þessum geira leiti úr landi
ef næga vinnu er ekki að fá. Þetta
gæti því skaðað geim-
iðnað landsins sem
stjórnvöld vilja
efla og styrkja á
næstu árum.
Hárnákvæmt
kerfi
Galileo-kerf-
ið á að vera enn
nákvæmara en
bandaríska gps-
-kerfið. Nákvæmn-
in verður upp á nokkra
sentimetra á svæðum
sem margir gervi-
hnettir
svífa yfir. Í bæjum og borgum með
háum byggingum verður auð-
veldara að ná sambandi við kerfið
og kerfið mun ná betur til norður-
og suðurskautanna en gps-kerfið.
Kerfið samanstendur af al-
mennum hluta og harðlokuð-
um hernaðarhluta. Það er vegna
leyndarmála í síðarnefnda hlut-
anum sem bresk fyrirtæki eru úti-
lokuð frá þátttöku. Bretar hafa nú
þegar greitt um einn áttunda af
kostnaðinum við kerfið og eru að
vonum ósáttir við að hafa borgað
háar fjárhæðir fyrir eitthvað sem
þeir munu ekki hafa neitt gagn af.
ESB segir að Bretar fái að nota
upplýsingar úr lokaða hlutanum
en Bretar segja það ekki nóg, þeir
geti ekki byggt hernaðaraðgerð-
ir á kerfi sem þeir hafa ekki fullan
aðgang að. Bretar hafa bent á að
það skaði ESB einnig ef þeir verða
útilokaðir frá Galileo því þá muni
gangsetningu kerfisins seinka um
þrjú ár og kostnaðurinn aukast um
1 milljarð evra.
David Davis, Brexit-ráðherra
bresku ríkisstjórnarinnar, sagði
í síðustu viku á fundi hjá fram-
kvæmdastjórn ESB að hún kæmi
heimskulega fram í þessu máli. Það
væri eins og framkvæmdastjórn-
in ætlaði að skjóta sig í fótinn ein-
göngu til að sýna að byssan væri í
lagi. Hann benti einnig á að kerfið
væri að hluta byggt á móttöku- og
sendistöðvum á bresku landsvæði
en þar á hann við Falklandseyjar við
strendur Argentínu og Ascension í
miðju Suður-Atlantshafi.
Deilurnar endurspegla að
mörgu leyti Brexitviðræðurnar og
afstöðu ESB sem segir að það eigi
að skipta máli hvort ríki eru aðil-
ar að ESB eður ei. Ekki sé hægt að
leyfa „þriðju ríkjum“ að njóta allra
kosta aðildar að sambandinu. n
Dalvegi 16b / S. 510 0500
ERTU TENGDUR FYRIR
HM ?
ÞEGAR ÞÚ VILT SJÁ MEIRA
SJÓNVARPSLOFTNET FYRIR HEIMILIÐ,
HÚSBÍLINN OG SUMARBÚSTAÐINN
Brexit
teygir sig
út í geiminn
Bretum hent út úr stóru geimverkefni
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
David Davis
Brexitráðherra.