Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Síða 68
68 FÓLK 22. júní 2018 Viltu kaupa fasteign á spáni ? masainternational.is / S. 555 0366 - Jón Bjarni & Jónas Masa international býður þér í skoðunarferð til Costa blanCa í júní & júlí á 29.900 kr. þar seM drauMaeignina þína gæti Verið að finna No Bake hnetusmjörs hafraklattar að hætti Sylvíu Haukdal Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir er menntaður pastry chef úr Le Cordon Bleu og starfar hún í Sætum Syndum. Sylvía er einnig lífsstílsbloggari á síðunni Ynjur.is þar sem hún er dugleg að deila með lesendum sínum girnilegum uppskriftum. Þessi uppskrift er af svo kölluðum No bake hnetu- smjörs hafraklöttum. Innihald: n 120 gr smjör n 4 dl sykur n 100 ml mjólk n 4 msk kakó n 1 dl hnetusmjör (creamy) n 1 tsk vanilludropar n 6 1/2 dl gróft haframjöl n Hvítt súkkulaði og sjávarsalt til skreytingar Aðferð: Smjör, sykur, mjólk og kakó sett í pott. Leyft að sjóða í ca. 1 mín. Hnetusmjöri og vanilludropum hrært saman við. Blöndunni hellt yfir haframjölið og hrært vel saman. Sett á bökunarpappír í mót og inn í frysti í 10-15 mín. Tekið úr frysti og skreytt með hvítu súkkulaði, sjávarsalti stráð yfir. Sett aftur í frysti í 10-15 mín. Athugið: Geymist í kæli eða frysti. Hægt er að fylgjast með Sylvíu á Snapchat: shaukdal „Ekki sjálfgefið að fá aftur tækifæri“ n Hamingjusöm í brúðkaupsferð á Grikklandi n Þakklátur og vill láta gott af sér leiða Ó lafur Gottskálksson og Snjólaug Þorsteinsdótt- ir gengu í það heilaga þann 10. júní síðastliðinn. Ólaf- ur var á tímabili einn þekktasti knattspyrnumaður landsins en hann stóð í marki Keflavíkur, KR og ÍA auk þess sem hann varð at- vinnumaður erlendis, meðal annars með Hibernian og Brent- ford á Bretlandi við góðan orðstír. Ólafur er einn besti markvörður sem Ísland hefur átt. Ólafur missti síðar tökin á áfengi og leiddist út í fíkniefnaneyslu. Ólafur ákvað fyr- ir tveimur árum að setja tappann í flöskuna eins og frægt er orðið. Í dag leikur lífið við hin nýbökuðu hjón. Aðspurður um hvernig hann kynntist Snjólaugu svarar Ólafur: „Ég sá hana fyrst árið 2006 en við náðum saman fimm árum síðar. Það hefur ekki slitnað á milli okk- ar síðan,“ segir Ólafur. Saman eiga hjónin tvö börn, sex ára strák og sjö ára stelpu. „Eftir sjö og hálfs árs samband gengum við í heilagt hjónaband þann 2. júní. Við fórum í brúðkaupsferð til Krítar þann 15. júní og verðum á Krít á Grikklandi í tíu daga. Þetta er fyrsta fríið okk- ar barnlaus.“ Ólafur tjáði sig einnig á Face- book um þá miklu breytingu sem orðið hefur á lífi hans. „Hve heppinn er ég eftir allt sem ég hef komið mér í, margt al- veg frábært og gott. Ég var marg- faldur meistari með öllum flokk- um Keflavíkur í körfubolta, mörg ár viðriðinn A-landsliðið í knattspyrnu og spilaði marga leiki fyrir mína þjóð. Ég fékk drauminn uppfylltan og hafði atvinnu af fót- bolta í sjö ár og á fullan kassa af frá- bærum minningum frá íþróttaferl- inum. Og svo hvað? Ég lét undan sjúkdómnum, alkóhólisma, sem kom út hjá mér sem fíkn í efni sem gengu næstum af mér dauðum og hefur tekið ófá lífin frá góðu fólki.“ Um þá baráttu opnaði Ólafur sig á einlægan hátt í fjölmiðlum eftir að hafa ekið undir áhrifum með barn í bílnum. Ólafur ákvað á þess- um tímapunkti að snúa við blað- inu. Hann vildi breyta lífi sínu og var staðráðinn í að láta gott af sér leiða. Það gekk eftir. Ólafur segir: „Það er ekki sjálfgefið að fá tækifæri eftir tækifæri til að koma sér á rétta braut og vera í þeirri stöðu sem ég er í dag, eiga konu sem elskar mig eins og ég er, eiga fjögur heilbrigð yndisleg börn, eiga þak yfir höfuðið og geta fært mat á borðið okkar alla daga.“ Í sólinni og ró- legheitunum í Grikklandi upplifði Ólafur gríðarlegt þak- klæti þegar hann bar saman líf sitt í dag og þegar hann var í fjötr- um Bakkusar. Hann fann fyrir þakklæti fyr- ir að eiga fjölskyldu og hafa fengið tæki- færi og stuðning frá starfsmönnum HS Orku. „Eftir að hafa misstigið mig illilega fyr- ir tveimur árum fékk ég ómetan- legan stuðning frá hverjum ein- asta starfsmanni þar, veit ekki hvar ég væri án þeirra allra,“ bætir Ólafur við. Aðspurður hvort hann hafi séð lið Íslands etja kappi við Argentínu og hvort hann ætli að horfa á leik Íslands og Nígeríu á morgun svar- ar landsliðsmarkvörðurinn fyrr- verandi: „Við horfðum á Ísland gera jafn- tefli við Argentínu með stórum hópi Íslendinga þar sem Hannes heillaði mig einu sinni enn upp úr skónum, gamli boltastrákurinn minn úr KR. Á morgun ætlum við Íslendingarnir hér á Krít að hittast aftur á Milos café og horfa á okkar stráka vinna Nígeríu,“ segir hinn hamingjusami fyrrverandi lands- liðsmarkvörður að lokum, fullur þakklætis. n Ólafur og Snólaug innileg á brúð- kaupsdaginn. Ólafur Gottskálksson og Snjólaug Þorsteins- dóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.