Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2018, Blaðsíða 68
68 FÓLK 22. júní 2018
Viltu kaupa fasteign
á spáni ?
masainternational.is / S. 555 0366 - Jón Bjarni & Jónas
Masa international
býður þér í skoðunarferð til
Costa blanCa í júní & júlí á
29.900 kr.
þar seM drauMaeignina þína gæti
Verið að finna
No Bake hnetusmjörs hafraklattar að hætti Sylvíu Haukdal
Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir er menntaður pastry chef úr Le Cordon Bleu og starfar hún í Sætum Syndum. Sylvía er einnig
lífsstílsbloggari á síðunni Ynjur.is þar sem hún er
dugleg að deila með lesendum sínum girnilegum
uppskriftum.
Þessi uppskrift er af svo kölluðum No bake hnetu-
smjörs hafraklöttum.
Innihald:
n 120 gr smjör
n 4 dl sykur
n 100 ml mjólk
n 4 msk kakó
n 1 dl hnetusmjör (creamy)
n 1 tsk vanilludropar
n 6 1/2 dl gróft haframjöl
n Hvítt súkkulaði og sjávarsalt til skreytingar
Aðferð:
Smjör, sykur, mjólk og kakó sett í pott. Leyft að
sjóða í ca. 1 mín.
Hnetusmjöri og vanilludropum hrært saman við.
Blöndunni hellt yfir haframjölið og hrært vel
saman.
Sett á bökunarpappír í mót og inn í frysti í 10-15
mín.
Tekið úr frysti og skreytt með hvítu súkkulaði,
sjávarsalti stráð yfir. Sett aftur í frysti í 10-15 mín.
Athugið: Geymist í kæli eða frysti.
Hægt er að fylgjast með Sylvíu á
Snapchat: shaukdal
„Ekki sjálfgefið að
fá aftur tækifæri“
n Hamingjusöm í brúðkaupsferð á Grikklandi n Þakklátur og vill láta gott af sér leiða
Ó
lafur Gottskálksson og
Snjólaug Þorsteinsdótt-
ir gengu í það heilaga þann
10. júní síðastliðinn. Ólaf-
ur var á tímabili einn þekktasti
knattspyrnumaður landsins en
hann stóð í marki Keflavíkur, KR
og ÍA auk þess sem hann varð at-
vinnumaður erlendis, meðal
annars með Hibernian og Brent-
ford á Bretlandi við góðan orðstír.
Ólafur er einn besti markvörður
sem Ísland hefur átt. Ólafur missti
síðar tökin á áfengi og leiddist út í
fíkniefnaneyslu. Ólafur ákvað fyr-
ir tveimur árum að setja tappann
í flöskuna eins og frægt er orðið. Í
dag leikur lífið við hin nýbökuðu
hjón.
Aðspurður um hvernig hann
kynntist Snjólaugu svarar Ólafur:
„Ég sá hana fyrst árið 2006 en við
náðum saman fimm árum síðar.
Það hefur ekki slitnað á milli okk-
ar síðan,“ segir Ólafur. Saman eiga
hjónin tvö börn, sex ára strák og
sjö ára stelpu. „Eftir sjö og hálfs
árs samband gengum við í heilagt
hjónaband þann 2. júní. Við fórum
í brúðkaupsferð til Krítar þann 15.
júní og verðum á Krít á Grikklandi
í tíu daga. Þetta er fyrsta fríið okk-
ar barnlaus.“
Ólafur tjáði sig einnig á Face-
book um þá miklu breytingu sem
orðið hefur á lífi hans.
„Hve heppinn er ég eftir allt
sem ég hef komið mér í, margt al-
veg frábært og gott. Ég var marg-
faldur meistari með öllum flokk-
um Keflavíkur í körfubolta,
mörg ár viðriðinn A-landsliðið í
knattspyrnu og spilaði marga leiki
fyrir mína þjóð. Ég fékk drauminn
uppfylltan og hafði atvinnu af fót-
bolta í sjö ár og á fullan kassa af frá-
bærum minningum frá íþróttaferl-
inum. Og svo hvað? Ég lét undan
sjúkdómnum, alkóhólisma, sem
kom út hjá mér sem fíkn í efni sem
gengu næstum af mér dauðum og
hefur tekið ófá lífin frá góðu fólki.“
Um þá baráttu opnaði Ólafur sig á
einlægan hátt í fjölmiðlum eftir að
hafa ekið undir áhrifum með barn
í bílnum. Ólafur ákvað á þess-
um tímapunkti að snúa við blað-
inu. Hann vildi breyta lífi sínu og
var staðráðinn í að láta gott af sér
leiða. Það gekk eftir. Ólafur segir:
„Það er ekki sjálfgefið að fá
tækifæri eftir tækifæri til að koma
sér á rétta braut og
vera í þeirri stöðu
sem ég er í dag, eiga
konu sem elskar
mig eins og ég er,
eiga fjögur heilbrigð
yndisleg börn, eiga
þak yfir höfuðið og
geta fært mat á borðið
okkar alla daga.“
Í sólinni og ró-
legheitunum í
Grikklandi upplifði
Ólafur gríðarlegt þak-
klæti þegar hann bar
saman líf sitt í dag og
þegar hann var í fjötr-
um Bakkusar. Hann
fann fyrir þakklæti fyr-
ir að eiga fjölskyldu
og hafa fengið tæki-
færi og stuðning frá
starfsmönnum HS Orku. „Eftir
að hafa misstigið mig illilega fyr-
ir tveimur árum fékk ég ómetan-
legan stuðning frá hverjum ein-
asta starfsmanni þar, veit ekki
hvar ég væri án þeirra allra,“ bætir
Ólafur við. Aðspurður hvort hann
hafi séð lið Íslands etja kappi við
Argentínu og hvort hann ætli að
horfa á leik Íslands og
Nígeríu á morgun svar-
ar landsliðsmarkvörðurinn fyrr-
verandi:
„Við horfðum á Ísland gera jafn-
tefli við Argentínu með stórum
hópi Íslendinga þar sem Hannes
heillaði mig einu sinni enn upp
úr skónum, gamli boltastrákurinn
minn úr KR. Á morgun ætlum við
Íslendingarnir hér á Krít að hittast
aftur á Milos café og horfa á okkar
stráka vinna Nígeríu,“ segir hinn
hamingjusami fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður að lokum, fullur
þakklætis. n
Ólafur og Snólaug
innileg á brúð-
kaupsdaginn.
Ólafur Gottskálksson
og Snjólaug Þorsteins-
dóttir.