Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Blaðsíða 18
18 29. júní 2018FRÉTTIR - ERLENT
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”
J
ared Kushner, einn helsti ráð-
gjafi Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta og jafnframt
tengdasonur hans, var ný-
lega á ferð í Mið-Austurlöndum
ásamt Jason Greenblatt, sérstök-
um erindreka Bandaríkjastjórn-
ar. Málefni Ísraels og Palestínu
voru ofarlega á baugi en þeir voru
að undirbúa jarðveginn fyrir frið-
aráætlun ríkisstjórnar Trumps
vegna deilna Ísraels og Palest-
ínu. Áætlunin, sem Trump hefur
sagt vera „samning aldarinnar“, á
að leysa deilurnar í eitt skipti fyr-
ir öll. Samkvæmt áætluninni á að
stækka Gasa inn á Sinai í Egypta-
landi og vill Trump að ríku löndin
við Persaflóa fjárfesti fyrir einn
milljarð dollara í uppbyggingu á
Gasa og Sinai. Kushner og Green-
blatt funduðu með leiðtogum
Katar, Sádi-Arabíu, Jórdaníu, Eg-
yptalands og Ísraels í ferðinni.
Ísraelska dagblaðið Haaretz seg-
ir að fundirnir hafi aðallega snúist
um að sannfæra Persaflóaríkin um
að fjárfesta fyrir um einn milljarð
dollara á Gasa. Þar búa 1,9 milljón-
ir manna við hörmulegar aðstæð-
ur. Þeir félagar hittu ekki leiðtoga
Palestínumanna sem viðurkenna
ekki ríkisstjórn Trumps sem sátta-
semjara og þá sérstaklega ekki eft-
ir að Bandaríkin fluttu sendiráð
sitt frá Tel Aviv til Jerúsalem.
Mesta uppbyggingin á
að vera í Egyptalandi
Það gerir áætlun Bandaríkja-
manna mjög erfiða að megnið af
fjárfestingum Persaflóaríkjanna
eiga að renna til verkefna á Sinai,
rétt við landamærin að Gasa. Þar
á að byggja sólarorkuver til að
tryggja rafmagn á Gasa. Síðan
er höfn á döfinni, orkuver, sem-
entsverksmiðja og iðnaðarsvæði.
Allt þetta á að skapa mörg þús-
und störf fyrir íbúa á Gasa og bæta
lífskjör þeirra umtalsvert en þau
eru vægast sagt ömurleg.
Íbúar á Gasa fengu veður af
þessum fyrirætlunum í maí þegar
Ísraelsmenn köstuðu flugritum
yfir ræmuna, sem Gasa er, með
upplýsingum um hvað gæti beðið
þeirra í framtíðinni. „Gasa 2025“
var yfirskrift flugritanna. Flug-
ritinu var stillt þannig upp að íbú-
ar gætu valið á milli Gasa, sem
líkist Dubai með glæsilegum há-
hýsum og breiðstrætum, eða
sundursprengds Gasa.
Frá því að Hamas komst til
valda á Gasa 2007 hefur ræman
verið í efnahagslegri herkví Ísraels
og Egyptalands. Atvinnuleys-
ið er 60 prósent, mikill rafmagns-
skortur er og 97 prósent af grunn-
vatninu er svo mengað að það er
ekki drykkjarhæft. Auk þess hefur
Gasa verið sprengt nánast í tætl-
ur í þremur stríðum. Eins og nærri
má geta eru íbúarnir ekki ánægð-
ir með hlutskipti sitt og ekki þarf
mikið til að upp úr sjóði. Hugsan-
lega verður hægt að létta hluta af
þessum þrýstingi með fjárfesting-
um Persaflóaríkjanna. En hvort
hægt er að byggja Gasa upp á
meðan Hamas er við völd er síðan
annað mál.
Mahmoud Abbas, forseti
Palestínu, segir að Gasa sé ekki
ríki Palestínumanna og ekkert ríki
Palestínumanna sé til án Gasa en í
hans augum lítur áætlunin helst út
fyrir að eiga að gera Gasa að sjálf-
stæðu ríki óháðu Vesturbakkan-
um.
Eldfimt mál
Hugmyndin um að skapa störf fyr-
ir Gasabúa í Sinai í Egyptalandi er
vægast sagt eldfim. Hún ýtir und-
ir gamlar samsæriskenningar um
að Bandaríkin vilji stækka Gasa
með því að fá hluta af Sinai. Það er
síðan spurning af hverju Egyptar
ættu að samþykkja að láta hluta af
Sinai af hendi til þess eins að létta
þrýstingi af Ísrael.
Ísraelskir hægrimenn hafa
löngum verið hliðhollir þessari
leið. Árið 2014 skýrðu ísraelskir
fjölmiðlar frá því að Abdel Fatah
al-Sisi, forseti Egyptalands, hefði
boðið leiðtogum Palestínumanna
að stækka Gasa með 1.600 ferkíló-
metra svæði af Sinai. Þetta hefði
fimmfaldað stærð Gasa. Þessu
var líklega lekið til fjölmiðla af
háttsettum ísraelskum embættis-
mönnum. Samkvæmt fréttunum
átti þetta nýja palestínska ríki að
vera herlaust og taka við palest-
ínskum flóttamönnum frá öllu
svæðinu. Á móti átti Abbas for-
seti að falla frá kröfum um sjálf-
stætt ríki á Vesturbakkanum með
Jerúsalem sem höfuðborg. Á móti
áttu Palestínumenn einnig að fá
sjálfsstjórn í þeim bæjum sem þeir
myndu halda eftir. Ísraelskir og
egypskir embættismenn vísuðu
þessum fréttum á bug og sögðu
þær vera algjöran uppspuna. En
þessi saga eða hugmynd hefur
verið á kreiki eftir að Giora Eiland,
þjóðaröryggisráðgjafi Ísraels,
kynnti hana til sögunnar þegar
Ísraelsmenn yfirgáfu Gasa 2005.
Háttsettir egypskir embættismenn
hafa í gegnum árin sagt að Egypta-
land sé undir stigvaxandi þrýstingi
frá Bandaríkjunum og Ísrael um
að gefa hluta af Sinai eftir og láta
í hendur Palestínumanna. Þessi
þrýstingur er sagður hafa aukist
eftir að Hamas komst til valda á
Gasa 2007. n
Gasa
Jared Kushner
Friðaráætlun Trumps byggist
á miklum fjárfestingum á Gasa
„Samningur aldarinnar“ á að leysa deilurnar í eitt skipti fyrir öll
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is