Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Síða 36
Hafnarfjörður 29. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
Veitingastaðurinn Krydd var opnaður í lok apríl, í hjarta Hafnarfjarðar,
nánar tiltekið í menningarmið-
stöðinni Hafnarborg. Þar með
rættist gamall draumur sex
innfæddra Hafnfirðinga, þriggja
para, sem eru þau Hilmar Þór
Harðarson og Hulda Heiðrún
Óladóttir, Signý Eiríksdóttir og
Jón Tryggvason og Geirþrúður
Guttormsdóttir og Hafsteinn
Hafsteinsson.
„Þetta er staðurinn sem
okkur dreymdi alltaf um og þá
á ég við að okkur langaði að
það væri til svona veitinga-
staður í Hafnarfirði sem við
gætum sótt,“ segir Hilmar Þór
Harðarson sem gegnir stöðu
framkvæmdastjóra og yfirkokks
á Kryddi. En hvernig staður er þá
Krydd? Karakterinn lýsir sér meðal
annars í rýminu og innréttingunum
sem taka mið af heimi hafnarinnar og
sjósóknar.
„Í upphafi vorum við fyrst og
fremst spennt fyrir plássinu, loft-
hæðin er mikil og það eru stórir,
flottir gluggar. Við sáum þarna líka
möguleika á að nýta bryggjutimbur
sem er ráðandi þema á barnum og
ganginum,“ segir Hilmar en hönnuðir
staðarins eru þau Geirþrúður Gutt-
ormsdóttir, Jón Tryggvason og
Signý Eiríksdóttir.
Frumleiki og bragðlaukagælur í
matargerðinni
Krydd er með breiðan matseðil þar
sem áhersla er á gæði, frábært
bragð, gott hráefni og frumleika.
Í hádeginu er boðið upp á nokkur
salöt sem henta frábærlega vinnandi
fólki í dagsins önn, þar á meðal
humarsalat.
„Einn rétturinn er rifinn grís með
BBQ, borinn fram í kleinuhring og
hefur sá réttur heldur betur farið á
flug,“ segir Hilmar.
Af öðrum vinsælum réttum má
nefna Hafnarborgarann, nautarif og
margt fleira. Oft er skipt um mat-
seðil og um að gera að fylgjast
með á kryddveitingahus.is.
Nánari upplýsingar eru á vef-
síðunni http://www.kryddveitinga-
hus.is/. Þar er líka hægt að ganga
frá pöntun á borði. Hilmar mælir
með þeirri leið en hún er þó ekkert
skilyrði. „Við vísum engum frá og
ef það er ekki laust borð er fínt að
bíða hérna á huggulegu sófa-
svæðinu og fá sér fordrykk á meðan
beðið er.“
Hafnfirðingar og fjölmargir aðrir
eiga góðar stundir í vændum á Krydd
veitingahúsi.
KRYDD ER Í HJARTA HAFNARFJARÐAR:
Humarsalat, grís í kleinu-
hring og fleiri snilldarverk