Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Side 49
SAKAMÁL 4929. júní 2018 kvöld. Johnny sagðist ekki hafa spurt konuna að nafni og vissi ekki hver hún var. Árið 2003 lést faðir Johnny og var það mikið áfall fyr- ir Johnny sem fannst hann vera að missa alla fótfestu í lífinu. Hann var ekki fær um að halda heim- ilinu í lagi og drakk sífellt meira áfengi. Hann var mjög einmana. Grafarfriði raskað Í byrjun september 2005 kom í ljós að stundaglasið var horf- ið úr kirkjunni en það hafði stað- ið á predikunarstólnum. Það var enginn annar en Johnny Svens- son sem hafði uppgötvað hvarfið. Hinn 4. ágúst 2006 var lögreglunni tilkynnt að grafarfriði hefði verið raskað í kirkjugarðinum við nýju kirkjuna. Það fylgdi sögunni að þegar starfsmaður kirkjunnar kom til vinnu um morguninn hafi bíll Johnny Svensson verið þar. Starfs- maðurinn taldi að Johnny hefði mætt snemma til vinnu en sá ekk- ert til hans fyrr en hálfri klukku- stund síðar þegar bíl Johnny var ekið á brott. Starfsmaðurinn fór inn í kirkjuna og sá hvítar skrúf- ur og trékurl framan við predik- unarstólinn. Hann tengdi þetta strax við hvíta líkkistu. Hann fór niður í líkhúsið og á leið þangað sá hann Arbogabjórflösku en sá bjór er 10,2%. Hann vissi að þetta var uppáhaldsbjór Johnny. Þegar hann opnaði dyrnar að kælinum í líkhúsinu sá hann að lok einnar kistunnar var ekki alveg á. Hann var samstundis viss um að eitt- hvað hræðilegt hefði gerst og fór út. Hann fékk starfsmann útfarar- stofunnar til að koma á staðinn. Sá skoðaði kistuna og sá strax að eitthvað mikið var að og var þess fullviss að eitthvað mjög svo ógeð- fellt og ósæmilegt hefði átt sér stað. Hann sá að líkklæðin voru ekki eins og þau áttu að vera og fætur líksins voru aðskildir en konulík var í kistunni. Honum datt strax í hug að eitthvað kynferðis- legt hefði átt sér stað og var lög- reglan látin vita. Handtaka og óvænt játning Lögreglan ákvað fljótlega að hand- taka Johnny og yfirheyra. Lög- reglan taldi þó að hann væri frekar vitni en grunaður í málinu. Johnny hafði aldrei komist í kast við lögin. Lögreglumenn hittu hann heima hjá honum þegar hann kom ak- andi þangað. Hann var ölvað- ur og mjög óstyrkur. Meðan ekið var með Johnny á lögreglustöðina léttist lund Johnny og hann spjall- aði við lögreglumennina sem tóku þá eftir áverkum á honum sem voru athyglisverðir í tengslum við opnu líkkistuna. Þegar komið var á lögreglustöðina var byrjað á að taka blóðsýni úr Johnny til að ljúka ölvunarakstursmálinu af áður en hann yrði yfirheyrður. Hann var spurður út í opnu kistuna en neitaði að vita nokk- uð um málið. Hvað varðaði áverk- ana sagðist hann hafa hlotið þá nóttina áður þegar hann var far- þegi í bíl vinar síns sem hafi ekið á dýr. Lýsing hans á atburðarásinni var þannig að ekki var hægt að trúa henni. Þegar rætt var við „vin- inn“ kom í ljós að hann kannaðist örlítið við Johnny en hafði aldrei setið í bíl með honum. Ákveðið var að gera húsleit heima hjá Johnny. Við leitina fannst stundaglasið góða úr kirkj- unni og ýmislegt er benti til að Johnny hefði áhuga á barnaklámi. Einnig fannst myndefni sem sýndi þegar níðst var á látnu fólki. Johnny var úrskurðað- ur í gæsluvarðhald og þegar hann var yfirheyrður á nýjan leik viðurkenndi hann að hafa mis- notað líkið kynferðislega. Síðar kom í ljós að frásögn hans pass- aði vel við sönnunargögn máls- ins, þar á meðal DNA-sýni. Þetta er eina málið sem vitað er um í Svíþjóð þar sem upp hefur kom- ist um náriðil. Johnny viður- kenndi einnig að hafa kveikt í húsi í Ramnäs og kirkjunni í Surahammar. Lögregluna grun- ar einnig að Johnny hafi kveikt í mun fleiri húsum en það vildi hann ekki játa. Johnny var dæmdur til vistun- ar á réttargeðdeild á grundvelli geðrannsóknar en hann þjáðist af íkveikjuþörf að mati geðlækna. n Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýstingi og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum BRENNUVARGUR OG NÁRIÐILL LÉK LAUSUM HALA Í SMÁBÆ „Meðan ekið var með Johnny á lögreglustöðina léttist lund Johnny og hann spjallaði við lögreglumennina sem tóku þá eftir áverkum á honum sem voru athyglisverðir í tengslum við opnu líkkistuna. „Kirkjan fuðraði upp í næturhúminu og gjöreyðilagðist. Strax lék grunur á að um íkveikju hefði verið að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.