Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2018, Page 62
62 BLEIKT 29. júní 2018
Smiðjuvegur 4C
202 Kópavogur
Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is hagblikk.isHAGBLIKK
Þakrennurnar eru frá GRÖNVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Brotna ekki
Ryðga ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt,
silvurgrátt og dökkrautt
Smiðjuvegur 4C • 202 Kópavogur • Sími 587 2202 • hagblikk@hagblikk.is • hagblikk.is
Álþakrennur og niðurföll
Ryðga ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt,
silvurgrátt & dökkrautt
Brotna ekki
HAGBLIKK
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖNVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
Í
lok síðasta árs vermdi Detroit
annað sætið lista Lonely Planet
yfir mest spennandi borgir
ársins 2018. Það er ekki að
undra enda hefur borgin risið upp
úr öskustónni á ógnarhraða og
það er í raun magnað að hugsa til
þess að fyrir einungis fimm árum
var þessi sögufræga mekka bíla-
iðnaðarins yfirlýst gjaldþrota.
„Þetta var bara draugabær,“ sagði
Uber-bílstjórinn sem undirituð
ræddi stuttlega við í heimsókn
sinni til borgarinnar á dögunum. Í
dag iðar Detroit af lífi og nýir barir,
hótel, skemmtistaðir og veitinga-
staðir spretta upp um alla borg.
Blaðamaður DV heimsótti Detroit
á dögunum og upplifði andrúms-
loft sem ber vott um bjartsýni og
nýja tíma.
Þó svo að Detroit sé alla jafna
kölluð „Motorcity“ þá er borgin
miklu meira en bara bílar og má
þar til dæmis nefna sögufræga
tónlistarsenu, áhugaverð söfn og
framúrstefnulegar og forvitnilegar
verslanir með vörur upprennandi
hönnuða. Þá má ekki gleyma arki-
tektúrnum en á gullárum borg-
arinnar spruttu upp fjölmargar
glæsilegar Art Deco-byggingar
og skýjakljúfar og hefur stór hluti
þeirra verið varðveittur.
Henry Ford Museum of
Innovation
Henry Ford Museum of Innovation
er eiginlega skylduheimsókn
ef leiðin liggur til Detroit. Fyrir
áhugafólk um sögu Bandaríkjanna
er hér á ferð algjör gullnáma. Viltu
sjá stólinn sem Abraham Lincoln
var skotinn í? Strætisvagninn þar
sem Rosa Parks neitaði af gefa upp sætið sitt? Forsetabílinn sem John
F. Kennedy sat í þegar hon-
um var ráðinn bani?
Fyrir þá sem vilja
upplifa alvöru
„nostalgíu-
-stemningu“
þá má einnig
finna hér ná-
kvæma eft-
irlíkingu af
50´s McDona-
lds veitingastað
og Holiday Inn hót-
elherbergi frá sjöunda
áratugnum.
Einn áhugaverðasti
hluti safnsins er þó
skoðunarferð um
hið sögufræga
Dymaxion hús
Buckminst-
er Fuller,
hönnunarverk-
ið sem kallað
var „hús fram-
tíðarinnar“, þó svo
að það hafi í raun
aldrei verið byggt.
Hönnun Fuller kom fyrst
fram á sjónarsviðið árið 1945 en
hugsunin á bak við það var ódýrt
og sjálfbært húsnæði sem myndi
henta öllum og væri þar að auki
auðvelt að pakka saman og flytja á
milli landa og héraða.
Motown Museum
Motown-sögusafnið er einnig
ómissandi áfangastaður. Hérna
hóf Michael Jackson sinn feril. Út
á við lítur safnið út eins og krútt-
legt amerískt úthverfaheimili en
hérna inni varð Motown-
-tónlistarstefnan til, í
pínulitla upptöku-
stúdíóinu sem
finna má í kjallar-
anum.
Það er ansi
sérstök upplif-
un að standa inni
í þessu sögufræga
stúdíói þar sem
engu hefur verið
hreyft við síðan á sjö-
unda áratug síðustu aldar,
þar sem tónlistarmenn á
borð við Stevie Wond-
er, The Supremes
og Erykah Badhu
hafa hljóðritað
mörg af sínum
frægustu lögum.
Piquette Plant
Annar áhuga-
verður staður að
heimsækja í Detroit
er gamla Ford Piquette
Avenue Plant-bílaverk-
smiðjan sem gerð var upp og
breytt í safn árið 2013. Tekist hef-
ur merkilega vel að halda í upp-
runalegt ástand verksmiðjunnar
og áhugafólk um bíla verður ekki
svikið. Verksmiðjan er „fæðingar-
staður“ Model T bílsins og þá er
hægt að rölta um og virða fyrir
sér ótal mismunandi bílamódel-
um frá hinum ýmsu tímabilum í
sögunni. n
Detroit er ein af áhuga-
verðustu borgum 2018
n Miklu meira en bara bílar n Það borgar sig þó ekki að treysta á almenningssamgöngur
Atriði til að hafa í huga:
n Fyrir þá sem eiga leið um borgina er ómissandi að grípa með sér
eina „coney dog“-pylsu sem Detroitbúar elska svo mikið, en þær er
hægt að finna á hverju götuhorni.
n Ekki treysta á almenningssamgöngurnar, splæstu í bílaleigubíl.
Þetta er bílaborg.
n Íbúar Detroit eru langflestir afar stoltir af heimaborg sinni. Þeir sem
undirrituð ræddi við reyndust flestir bornir og barnfæddir þar um slóðir
og hafa aldrei viljað flytja. Heimamenn munu því með glöðu geði veita
hvers kyns ábendingar og ráð um áhugaverða staði og skemmtanir.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is