Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Page 8
8 13. júlí 2018FRÉTTIR
S
umarið 1918, fyrir sléttum
hundrað árum, var ömurlegt
á Íslandi og minnir um
margt á hörmungarsumar-
ið sem höfuðborgarbúar ganga í
gegnum nú. Ekki hafa mælst færri
sólarstundir í júní síðan árið 1914.
Sú þróun sem hefur átt sér stað nú
í sumar er svipuð og sumarið 1918.
Tíðarfar í maí 1918 og svo 2018 er
um margt líkt sé allt landið tek-
ið með í reikninginn. Svalt var þó
í höfuðborginni og rigndi hvern
einasta dag.
En aftur að árinu 1918. Það
ár lauk fyrri heimstyrjöldinni en
það var eitt mesta hörmungar-
ár í Íslandssögunni allri. Það ár
gekk frostaveturinn mikli yfir og
var óvenju mikill hafís við landið.
Frostið fór illa með tún. Í mars
var veður strax orðið öllu betra og
mjög hlýtt í marsmánuði á Suður-
landi með mikilli úrkomu. Bænd-
ur og búalið tóku því fagnandi eft-
ir erfiðan vetur. Í apríl mátti enn sjá
hafís í sumum fjörðum og er greint
frá því í fjölmiðlum að Lagarfoss
hafa ekki komist lengra inn í Eyja-
fjörð með vistir fyrir Akureyringa
en að Hjalteyri. Þurfti því að ferja
varning á sleðum 28 kílómetra leið.
Byrjaði að snjóa í júní
Í lok apríl fór aftur að hlýna og
í Reykjavík var sumardagurinn
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Sumarið eftir frosta-
veturinn mikla var
hlýrra en sumarið 2018
n Meðalhitinn var 9,7 gráður í júní 1918 n 8,7 gráður 100 árum síðar
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR