Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Side 34
Borgarfjörður Helgarblað 13.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
Laxárbakki er veitingahús og hótel sem staðsett er í Hval-firði, á wvið Þjóðveg 1, skammt
frá bæði Akranesi og Borgarnesi.
Laxárbakki er í afar fallegu umhverfi
og í alfaraleið á Vesturlandi og
Snæfellsnesi. Stutt er til allra helstu
ferðamannastaða á Vestur- og
Suðvesturlandi, eins og Húsafells,
Langjökuls, Þingvalla, Hvalfjarðar
og Snæfellsness.
„Þetta er stutt frá Reykjavík en
samt þannig staðsett að fólk þaðan
er komið vel út úr sínu umhverfi og
nýtur vel kyrrðarinnar og fegurðar-
innar hér,“ segir Brynjar Sigurðar-
son, eigandi Hótel Laxárbakka.
Hótel Laxárbakki er lítið fjöl-
skyldurekið fyrirtæki sem leggur
áherslu á góða og persónulega
þjónustu og tryggir að bæði matar-
gestum og þeim sem gista á staðn-
um líði vel. Mikil áhersla er lögð á
þjónustu við hópa og er vinsælt
að halda alls konar mannamót á
Laxárbakka, brúðkaup, stórafmæli,
alls konar hvataferðir, árshátíðir og
vinnuferðir.
Fullkominn staður fyrir hópa
Þegar hópar gera sér glaðan dag
eða koma í vinnuferð á Laxárbakka
er algengt að hluti af hópnum gisti
á meðan aðrir láta sér nægja að
vera í mat. Núna er rétti tíminn
til að bóka veitingar og gistingu
fyrir haustferðirnar en æskilegt
er að bóka með tveggja til þriggja
mánaða fyrirvara.
„Það er miklu betra að bóka
tímanlega því þá getur hópurinn
fengið allt svæðið út af fyrir sig,“
segir Brynjar Sigurðarson. Á staðn-
um er 70 manna fundarsalur með
skjávarpa og inn af er fundarher-
bergi fyrir um 20 manns. „Fólk hefur
verið að skipta sér upp í vinnu-
hópa, þar sem einhverjir sitja bara
hér í leðursófanum inn við barinn,
einhverjir eru í stóra salnum, aðrir
í innri salnum – og síðan er kannski
einhver utanaðkomandi sem hristir
hópinn saman og þá fara allir út
á dansgólfið. Það er heppilegt að
geta haft alla aðstöðuna út af fyrir
sig og fullnýtt hana,“ segir Brynjar.
Margir eru núna að panta vegna
vinnuferða og annarra tilefni í
september og október en það er
líka sjálfsagt að panta fyrir viðburði
nær jólum, en aðventuhlaðborðið
fer í gang seinni hluta nóvember og
stendur fram í miðjan desember. Þá
hentar vel fyrir hópana að snæða
saman á aðventuhlaðborði eftir
fundi og vinnu dagsins.
Brynjar segist kappkosta að hafa
veitingar að fullu í samræmi
við óskir hvers og eins
hóps. „Við höfum
sett saman hópa-
seðla en það er
langbest að
fólk leggi bara
fram sínar
óskir og við
uppfyllum
þær,“ segir
Brynjar.
„Fólk pantar
síðan gjarnan
brúðkaupsveislur
með árs fyrirvara
og það er nokk-
uð síðan hingað kom
par sem er að skipuleggja
brúðkaupið sitt næsta sumar,“ segir
Brynjar.
Best er að panta veitingar,
fundaraðstöðu og gistingar fyrir
hópa í síma 551 2783.
Góður áningarstaður við þjóðveg-
inn
Laxárbakki er líka prýðilegur án-
ingarstaður fyrir þá sem eru á
ferð um landið í sumar og gott að
stoppa þar og njóta góðs matar.
„Við erum með fremur heimil-
islegan mat sem mælist vel fyrir
og bjóðum til dæmis upp á mjög
góðan fisk. Útlendingarnir sækjast
mjög eftir hefðbundnum íslenskum
réttum, plokkfiski, kjötsúpu og fersk-
um fiski,“ segir Brynjar.
Sjá nánar á vefsíðunni laxarbakki.is.
LAXÁRBAKKI:
Heillandi hvíldarstaður við
hringveginn