Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2018, Page 35
BorgarfjörðurHelgarblað 13. júlí 2018 KYNNINGARBLAÐ
LANDBÚNAÐARSAFN ÍSLANDS OG ULLARSELIÐ:
Einstök innsýn í landbúnaðar-
söguna og hágæða handverk
úr héraði
Ullarselið
Elstu munirnir eru þeir sem hafa verið
nýttir í landbúnaði í gegnum aldirnar.
Sýningin „Konur í
landbúnaði í 100 ár“
Safnið sýnir þróun í tækni
landbúnaðar
Fyrir fjórum árum var Landbún-aðarsafn Íslands flutt í núver-andi húsnæði að Hvanneyri
í Borgarfirði. Við það urðu nokkur
tímamót í sögu safnsins en það á
sér langa sögu: „Sýningin okkar er
hönnuð inn í það rými sem hún er í
núna en grunnurinn að því sem við
erum að gera var lagður fyrir um
40 árum. Síðan var farið að hafa
safnið opið fyrir 30 árum og á þeim
tíma hefur það stækkað og mun-
um fjölgað,“ segir Ragnhildur Helga
Jónsdóttir safnstjóri.
Á safninu gefur að líta gripi sem
ná langt aftur í aldir og allt fram
til áttunda áratugar síðustu aldar:
„Landbúnaður og landbúnaðartæki
breyttust hér lítið öld eftir öld, allt
þar til við lok 19. aldar. Ljáir, hrífur og
fleiri slík áhöld í einhverri mynd voru
notuð allt aftur til landnáms en þá
þegar þurftu menn hey til að þreyja
þorrann og góuna,“ segir Ragnhildur.
„Tæknivæðingin kom síðan í lok 19.
aldar og þá fóru Íslendingar loks að
nota hestaverkfæri að erlendri fyrir-
mynd. Með tilkomu búnaðarskólanna
var kennd smíði á slíkum verkfær-
um, sem voru aðlöguð íslenskum
aðstæðum, þar sem íslensku hest-
arnir eru minni en erlendir hestar
auk þess sem íslenskur jarðvegur er
frekar erfiður til vinnslu.“ Síðan rekur
safnið þau áhrif sem tæknin hafði
á þróun landbúnaðar á 20. öldinni,
breytingar á tækjum og vinnuað-
ferðum sem henni fylgdi. Safnið
hefur staðið að ýmsum rannsóknum
á búnaðarsögunni og eru í safninu
seldar bækur sem eru afrakstur
þeirra rannsókna, ritaðar af Bjarna
Guðmundssyni.
Sérstök athygli er vakin á því að
Landbúnaðarsafn Íslands hefur nú
opnað sýninguna Konur í landbúnaði
í 100 ár í samvinnu við Kvenfélagið
19. júní og verður sýningin opin út
sumarið.
Ullarselið – hágæða handverk úr
héraði
Ullarselið er stórmerkileg verslun
sem staðsett er í húsnæði Landbún-
aðarsafnsins. „Að Ullarselinu stend-
ur hópur handverksfólks úr héraðinu
og vinnur þetta fólk alla muni sem
þar eru seldir. Megináhersla er á
íslensku ullina en líka önnur náttúru-
leg efni eins og horn og bein. Þetta
er hágæða handverk enda þess
gætt að viðhalda ströngu gæða-
eftirliti,“ segir Ragnhildur. Í Ullarsel-
inu er meðal annars hægt að kaupa
handspunnið og jurtalitað band, auk
verksmiðjuframleidds lopa. Síðan
eru til sölu allra handa vörur úr ull
svo sem peysur, sokkar, húfur og
þæfðir inniskór, svo fátt eitt sé nefnt.
Vörurnar eru ekki bara handunnar
heldur meira og minna hannaðar
af þessu fólki eða sérhannaðar fyrir
Ullarselið.
Landbúnaðarsafnið og Ullarselið
eru opin alla daga frá kl. 11 til 17. Sjá
nánar á Facebook-síðu og vef-
síðu Landbúnaðarsafnsins, land-
bunadarsafn.is, og vefsíðu Ullarsels-
ins, ull.is.