Jökull - 31.12.2001, Blaðsíða 108
Magnús Tumi Guðmundsson
varaaflgjafi í framtíðinni ef gufurafstöðvarnar bila.
Mun rekstraröryggi mælitækjanna aukast mjög við
tilkomu þessarar rafstöðvar.
5. Settar voru upp og mældar inn tæplega 50 ísskriðs-
stikur í Grímsvötnum og Gjálp. Verður vitjað um þær
aftur í haustferð.
6. Gjálparsvæðið var kortlagt með DGPS til að fylgj-
ast með uppfyllingu sigdældarinnar frá í gosinu 1996.
7. Boraðar voru 3 holur með heitavatnsbor í Gjálp.
Allar náðu niður á tindinn sem myndaðist í gosinu
1996. Er ein holan beint yfir háhrygg fjallsins (73 m
djúp) en hinar tvær lentu ofarlega í austurhlíðum þess
(um 150 m djúpar). Náðust sýni af gosefnum og hita-
stig var mælt í botni holanna. Reyndist það við frost-
mark á öllum stöðunum. Sýni verða rannsökuð m.t.t.
hugsanlegar móbergsmyndunar.
8. Nákvæm GPS tæki voru notuð til að landmæla hnit
fastpunkta á Grímsfjalli, Hamrinum og í Jökulheim-
um til að fylgjast með hugsanlegri útþenslu Gríms-
vatna í kjölfar gossins 1998.
9. Vitjað var um sjálfvirkar veðurstöðvar LV og RH á
Tungnaárjökli og Brúarjökli.
10. Gerðar voru íssjármælingar á svæði norðan Esju-
fjalla dagana 7. og 8. júní.
11. Hveradalurinn í Kverkfjöllum og Gengissigið
voru kortlögð með DGPS og staðsetningar helstu
hvera í Hveradalnum mældar. Gengissigið var í þetta
sinn undir þykkum lagnaðarís og snjóþekja ofan á
honum.
Auk ofangreindra rannsóknarverkefna var borin
fúavörn á öll húsin á Grímsfjalli og smíðaður var pall-
ur við suðurgafl Kverkfjallaskála. Gerir pallurinn hús-
ið þægilegra fyrir gesti sem þangað koma.
Landsvirkjun lagði fram sleðahýsi og snjóbíl sinn
með bílstjóra. Vegagerðin styrkti félagið til eldsneyt-
iskaupa og flutninga. Hjálparsveit Skáta í Reykjavrk
lagði félaginu lið við flutninga að og frá jökli. Þessi
aðstoð er félaginu mikilvæg og hana ber að þakka.
Ferðin 2001 var 48. vorferð JÖRFÍ. Einnig voru
45 ár liðin frá fjórðu vorferð félagsins, en hún var
farin í júní 1956. Sú ferð var fyrir margra hluta sakir
merkileg. Sett voru upp landmælingamerki á marga
helstu tinda Vatnajökuls og síðast en ekki síst var hún
brúðkaupsferð Huldu Filippusdóttur og Árna Kjart-
anssonar. I þeirri ferð lá leiðin um skeifulaga bungu
sunnan til við Kverkfjöll. Hlaut hún nafnið Brúðar-
bunga og varð þannig minnisvarði um þessa fyrstu
brúðkaupsferð á Vatnajökul. I ferðinni nú var einnig
farið um Brúðarbungu í Kverkfjöll. En það sem meira
var um vert, Árni og Hulda voru með í ferðinni eins
og fyrir 45 árum. Nú eru bæði heiðursfélagar Jökla-
rannsóknafélagsins. Einnig voru með í för heiðursfé-
lagarnir Ingibjörg Árnadóttir (sem líka var með 1956)
og Ólafur Nielsen. Tryggð gamalla félaga við JÖRFÍ
er félaginu dýrmæt.
Þátttakendur
Allan tímann voru:
Ámi Páll Ámason, Árni Kjartansson, Ásbjörn Jóhannesson,
Bryndís Brandsdóttir, Eggert Eggertsson, Finnur Pálsson,
Gwenn Flowers, Halldór Gíslason yngri, Hannes H. Har-
aldsson, Hálfdán Ágústsson, Hulda Filippusdóttir, Ingibjörg
Ámadóttir, Jóna Bryndís Guðbrandsdóttir, Jósef Hólmjám,
Kirsty Langley, Magnús T. Guðmundsson, Mattias Lind-
man, Olafur W. Nielsen, Ragnheiður Þóra Kolbeins, Ragn-
heiður Nielsen, Sjöfn Sigsteinsdóttir, Sólveig Kristjánsdótt-
ir, Sveinbjörn Steinþórsson, Sverrir Elefsen, Þorsteinn Jóns-
son, Þórdís Högnadóttir.
Yfir Hvítasunnuhelgina voru:
Aðalsteinn Svavarsson, Anna Líndal, Ásdís Gissurardóttir,
Garðar Briem, Leifur Þorvaldsson, Ragnar Th. Sigurðsson.
106 JÖKULLNo. 51