Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Page 6
6 12. október 2018FRÉTTIR
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
LAXATUNGA 40, 270 MOSFELLSBÆR
54.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
203 M2
6
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
BREIÐAVÍK 11, 112 REYKJAVÍK (GRAFARVOGI)
42.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
109 M2
3
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
SÖLKUGATA 16, 270 MOSFELLSBÆR
79.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
258 M2
6
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800
TÍU HLUTIR SEM HÆGT ER AÐ KAUPA
Í STAÐINN FYRIR BRAGGANN
n Leikskólar, smáhýsi, skólamáltíðir og konunglegt brúðkaup
B
raggablúsinn í Nauthólsvík
hélt áfram að vinda upp á
sig í vikunni. Um er að ræða
verkefni sem hefur kostað
borgina rúmar 415 milljónir króna
sem er talsvert meira en upphaf-
lega var gert ráð fyrir og ekki ligg-
ur fyrir hver endanlegur kostnaður
verður. Margir setja stórt spurn-
ingarmerki við upphæðina sem
verður að teljast ansi há. DV tók
saman tíu misgáfulega hluti sem
borgaryfirvöld gætu gert fyrir 415
milljónir.
Reka tvo 90 barna leikskóla í
heilt ár
Samkvæmt tölum Sambands ís
lenskra sveitarfélaga kostar
rekstur tveggja 90 barna leikskóla
í Reykjavík rúmlega 400 milljónir.
Er það leikskólapláss fyrir 180
börn. Hafa skal í huga að inni í
þessum tölum er ekki byggingar
kostnaður heldur aðeins rekstrar
kostnaður; húsnæðiskostnaður,
launakostnaður starfsmanna og
kostnaður við matseld.
Bjóða öllum á Lof mér að falla
í bíó
Bíómiði á kvikmyndina margróm
uðu Lof mér að falla kostar í dag
1.800 krónur. Rúmlega 218 þús
und manns búa á stórhöfuð
borgarsvæðinu. Þetta þýðir að
borgin gæti boðið íbúum höfuð
borgarinnar á myndina í bíó. Ef við
tökum frá þá 44 þúsund sem eru
búnir að sjá myndina og alla undir
14 ára sem hafa ekki aldur til að
sjá myndina þá gæti borgin boðið
öllum landsmönnum á myndina í
bíó.
Helmingi fleiri smáhýsi fyrir
heimilislausa
Í september síðastliðnum sam
þykkti borgarráð að verja 450 millj
ónum til kaupa á allt að 25 smá
hýsum sem lið í aðgerðar áætlun
í málefnum utangarðsfólks. Er
þetta hluti af skaðaminnkunar
verkefninu Húsnæði fyrst. Fyrir
peningana sem fóru í braggann
væri hægt að kaupa næstum því
helmingi fleiri smáhýsi fyrir heim
ilislausa borgarbúa sem glíma við
mikinn félagslegan vanda.
1944 handa nemendum HR
Bragginn stendur við hlið Háskól
ans í Reykjavík í Nauthólsvík, þar
er nú matsölustaður. Fyrir 415
milljónir krónur er hægt að kaupa
rúmlega 519 þúsund 1944 rétti. Í
HR eru rúmlega 3.500 nemendur
og þá erum við að tala um rúm
lega 150 rétti frá 1944 á hvern ein
asta nemanda. Einnig væri hægt
að kaupa rúmlega 415 þúsund
núðlupakka.
Dýrasta íbúðin í Reykjavík
Á Hafnartorgi í miðbæ Reykja
víkur er nú verið að smíða dýr
ustu íbúð landsins. Um er að ræða
440 fermetra þakíbúð sem snýr að
Hörpu. Er hún sérstaklega hönnuð
af innanhúsarkitektum. Verðmið
inn hljóðar upp á um 400 milljónir
króna eða nærri því tvær milljónir
á fermetra. Í stað þess að byggja
braggann hefði Reykjavíkurborg
getað keypt íbúðina og gert hana
að glæsilegustu félagslegu íbúð í
heiminum. Það væri ekki amalegt
heimsmet.
Risastórt hátæknifjós
Eitt stærsta og fullkomnasta
fjós landsins rís nú á bænum
Gunnbjarnarholti á Suðurlandi.
Fjósið, sem verður tekið í notk
un nú í október, er heilir 4.200
fermetrar. Þar er pláss fyrir 500
gripi, þar af yfir 200 mjólkandi
kýr. Um er að ræða hátæknifjós
með alsjálfvirku fóðrunarkerfi
sem bóndinn á bænum líkir
við mötuneyti fyrir kýr. Fjósið
kostar rúmlega það sama og
bragginn í Nauthólsvík.
Sverrir Ingi Ingason
Varnarmaðurinn Sverrir Ingi leik
ur með íslenska karlalandsliðinu
í knattspyrnu og rússneska fé
laginu FC Rostov. Hann er mjög
efnilegur leikmaður, alinn upp í
Breiðabliki og hefur spilað með
liðum í Noregi og Belgíu. Sverrir
Ingi var í íslenska liðinu sem lék
á EM í Frakklandi 2016 og HM í
Rússlandi í sumar. Verðmiðinn á
Sverri Inga hljóðar upp á tæplega
sömu upphæð og kostnaður við
braggann er orðinn.
Útfarir í 11 ár
Rúmlega 40 manns svipta sig lífi
á hverju ári, sú tala er byggð á
meðaltali af tölum frá árunum
1996 til 2016 frá Embætti land
læknis. Á árunum 2015 til 2017
létust 42 af völdum ofneyslu lyf
seðilsskyldra ópíóðalyfja, eða 14
á ári. Samkvæmt upplýsingum
frá útfararstjóra kostar útför að
meðaltali í kringum 650 þúsund
krónur. Þetta þýðir að fyrir 415
milljónir gæti Reykjavíkurborg
greitt fyrir útfarir allra þeirra
sem fremja sjálfsvíg eða deyja
af völdum ópíóðalyfja næstu 11
árin.
Milljón grunnskólamáltíðir
Frír matur í grunnskólum hefur
verið deiluefni í borginni í árarað
ir. Í ágúst síðastliðnum var felld til
laga þess efnis og sagt að það yrði
of dýrt. Um 16 þúsund einstak
lingar á grunnskólaaldri búa í
Reykjavík. Máltíðin kostar í kring
um 400 krónur. Fyrir einn bragga
væri því hægt að kaupa um eina
milljón skólamáltíðir.
Halda konunglegt brúðkaup
Fyrir 415 milljónir er hægt að halda
konunglegt brúðkaup eins og hjá
Harry prins og Meghan Markle
á þessu ári sýnir. Um 600 gestum
var boðið í veisluna og 2.640 gest
um boðið að fagna með brúðhjón
unum við Windsorkastala. Sam
kvæmt Reuters komu hins vegar
71 milljarður króna inn í breska
hagkerfið vegna ferðamanna
straums í tengslum við brúðkaup
ið. Ólíklegt er að bragginn trekki
svo að. n
„Einnig væri
hægt að
kaupa rúmlega
415 þúsund núðlu-
pakka