Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 6
6 12. október 2018FRÉTTIR NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at LAXATUNGA 40, 270 MOSFELLSBÆR 54.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Raðhús 203 M2 6 Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at BREIÐAVÍK 11, 112 REYKJAVÍK (GRAFARVOGI) 42.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Fjölbýli 109 M2 3 Bjó ðu m up pá frít t s ölu ve rðm at SÖLKUGATA 16, 270 MOSFELLSBÆR 79.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Raðhús 258 M2 6 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 TÍU HLUTIR SEM HÆGT ER AÐ KAUPA Í STAÐINN FYRIR BRAGGANN n Leikskólar, smáhýsi, skólamáltíðir og konunglegt brúðkaup B raggablúsinn í Nauthólsvík hélt áfram að vinda upp á sig í vikunni. Um er að ræða verkefni sem hefur kostað borgina rúmar 415 milljónir króna sem er talsvert meira en upphaf- lega var gert ráð fyrir og ekki ligg- ur fyrir hver endanlegur kostnaður verður. Margir setja stórt spurn- ingarmerki við upphæðina sem verður að teljast ansi há. DV tók saman tíu misgáfulega hluti sem borgaryfirvöld gætu gert fyrir 415 milljónir. Reka tvo 90 barna leikskóla í heilt ár Samkvæmt tölum Sambands ís­ lenskra sveitarfélaga kostar rekstur tveggja 90 barna leikskóla í Reykjavík rúmlega 400 milljónir. Er það leikskólapláss fyrir 180 börn. Hafa skal í huga að inni í þessum tölum er ekki byggingar­ kostnaður heldur aðeins rekstrar­ kostnaður; húsnæðiskostnaður, launakostnaður starfsmanna og kostnaður við matseld. Bjóða öllum á Lof mér að falla í bíó Bíómiði á kvikmyndina margróm­ uðu Lof mér að falla kostar í dag 1.800 krónur. Rúmlega 218 þús­ und manns búa á stór­höfuð­ borgarsvæðinu. Þetta þýðir að borgin gæti boðið íbúum höfuð­ borgarinnar á myndina í bíó. Ef við tökum frá þá 44 þúsund sem eru búnir að sjá myndina og alla undir 14 ára sem hafa ekki aldur til að sjá myndina þá gæti borgin boðið öllum landsmönnum á myndina í bíó. Helmingi fleiri smáhýsi fyrir heimilislausa Í september síðastliðnum sam­ þykkti borgarráð að verja 450 millj­ ónum til kaupa á allt að 25 smá­ hýsum sem lið í aðgerðar áætlun í málefnum utangarðsfólks. Er þetta hluti af skaðaminnkunar­ verkefninu Húsnæði fyrst. Fyrir peningana sem fóru í braggann væri hægt að kaupa næstum því helmingi fleiri smáhýsi fyrir heim­ ilislausa borgarbúa sem glíma við mikinn félagslegan vanda. 1944 handa nemendum HR Bragginn stendur við hlið Háskól­ ans í Reykjavík í Nauthólsvík, þar er nú matsölustaður. Fyrir 415 milljónir krónur er hægt að kaupa rúmlega 519 þúsund 1944 rétti. Í HR eru rúmlega 3.500 nemendur og þá erum við að tala um rúm­ lega 150 rétti frá 1944 á hvern ein­ asta nemanda. Einnig væri hægt að kaupa rúmlega 415 þúsund núðlupakka. Dýrasta íbúðin í Reykjavík Á Hafnartorgi í miðbæ Reykja­ víkur er nú verið að smíða dýr­ ustu íbúð landsins. Um er að ræða 440 fermetra þakíbúð sem snýr að Hörpu. Er hún sérstaklega hönnuð af innanhúsarkitektum. Verðmið­ inn hljóðar upp á um 400 milljónir króna eða nærri því tvær milljónir á fermetra. Í stað þess að byggja braggann hefði Reykjavíkurborg getað keypt íbúðina og gert hana að glæsilegustu félagslegu íbúð í heiminum. Það væri ekki amalegt heimsmet. Risastórt hátæknifjós Eitt stærsta og fullkomnasta fjós landsins rís nú á bænum Gunnbjarnarholti á Suðurlandi. Fjósið, sem verður tekið í notk­ un nú í október, er heilir 4.200 fermetrar. Þar er pláss fyrir 500 gripi, þar af yfir 200 mjólkandi kýr. Um er að ræða hátæknifjós með alsjálfvirku fóðrunarkerfi sem bóndinn á bænum líkir við mötuneyti fyrir kýr. Fjósið kostar rúmlega það sama og bragginn í Nauthólsvík. Sverrir Ingi Ingason Varnarmaðurinn Sverrir Ingi leik­ ur með íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu og rússneska fé­ laginu FC Rostov. Hann er mjög efnilegur leikmaður, alinn upp í Breiðabliki og hefur spilað með liðum í Noregi og Belgíu. Sverrir Ingi var í íslenska liðinu sem lék á EM í Frakklandi 2016 og HM í Rússlandi í sumar. Verðmiðinn á Sverri Inga hljóðar upp á tæplega sömu upphæð og kostnaður við braggann er orðinn. Útfarir í 11 ár Rúmlega 40 manns svipta sig lífi á hverju ári, sú tala er byggð á meðaltali af tölum frá árunum 1996 til 2016 frá Embætti land­ læknis. Á árunum 2015 til 2017 létust 42 af völdum ofneyslu lyf­ seðilsskyldra ópíóðalyfja, eða 14 á ári. Samkvæmt upplýsingum frá útfararstjóra kostar útför að meðaltali í kringum 650 þúsund krónur. Þetta þýðir að fyrir 415 milljónir gæti Reykjavíkurborg greitt fyrir útfarir allra þeirra sem fremja sjálfsvíg eða deyja af völdum ópíóðalyfja næstu 11 árin. Milljón grunnskólamáltíðir Frír matur í grunnskólum hefur verið deiluefni í borginni í árarað­ ir. Í ágúst síðastliðnum var felld til­ laga þess efnis og sagt að það yrði of dýrt. Um 16 þúsund einstak­ lingar á grunnskólaaldri búa í Reykjavík. Máltíðin kostar í kring­ um 400 krónur. Fyrir einn bragga væri því hægt að kaupa um eina milljón skólamáltíðir. Halda konunglegt brúðkaup Fyrir 415 milljónir er hægt að halda konunglegt brúðkaup eins og hjá Harry prins og Meghan Markle á þessu ári sýnir. Um 600 gestum var boðið í veisluna og 2.640 gest­ um boðið að fagna með brúðhjón­ unum við Windsor­kastala. Sam­ kvæmt Reuters komu hins vegar 71 milljarður króna inn í breska hagkerfið vegna ferðamanna­ straums í tengslum við brúðkaup­ ið. Ólíklegt er að bragginn trekki svo að. n „Einnig væri hægt að kaupa rúmlega 415 þúsund núðlu- pakka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.