Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 10
10 FÓLK 12. október 2018 Betri Svefn Hallærisplanið U nglingar á sjöunda, átt- unda og níunda áratug síðustu aldar söfnuðust oft saman á Hallærisplan- inu. Þá skipti engu hvernig vind- ar blésu. Hallærisplanið, þar sem nú er Ingólfstorg, var nokkurs kon- ar félagsmiðstöð unglinga. Þegar mest var voru um fjögur þúsund ungmenni á svæðinu. Áflog og drykkjulæti voru daglegt brauð og eldri kynslóðinni var ekki skemmt. Eins og sagði í DV árið 2004: „Unglingar stóðu fyrir hefð- bundinni uppreisn gegn heimsk- um heimi hinna fullorðnu, með hefðbundnum aðferðum; drykkju, formælingum, léttum skemmdar- verkum og þvíumlíku. Sem sagt hefðbundin og árviss uppreisn unga fólksins. Er fullyrt að þegar mest stóð á hafi unglingar vaðið yfir Grjótaþorpið, gert „þarfir sín- ar hvar sem var“ og „eðlað sig fyrir allra augum“.“ Eftir því sem leið á níunda áratuginn minnkaði aðdráttar- afl plansins. Ungmennin fóru að sækja í félagsmiðstöðvar og sérstaka unglingaskemmtistaði þess í stað. Á þessum árum var skemmtistöðum lokað klukk- an þrjú eftir miðnætti og flykktist þá fólk á Lækjartorg og Hallæris- planið. Eftir að opnunartími var gefinn frjáls breyttist skemmtana- menningin. Nú er miðbærinn full- ur af mörgum litlum börum þar sem fólk skemmtir sér fram undir morgun. DV hefur áður fjallað um Hall- ærisplanið og birtir nú fleiri mynd- ir frá þessum goðsagnakennda stað. Undir vökulum augum fjögurra fílefldra lögreglu- þjóna er ungur uppreisnarseggur látinn tína upp glerbrot flösk- unnar sem hann braut, kannski gegn vilyrði um að þetta yrði eina refsingin að þessu sinni; auðmýk- ingin. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Gerðu þarfir sínar hvar sem var og stunduðu kynlíf fyrir allra augum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.