Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 18
18 UMRÆÐA Sandkorn 12. október 2018 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur Suðurlandsbraut 14 2. hæð 108 Reykjavík FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Þau ætla að kæfa Braggablúsinn Y firvöld og starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa frá fyrsta degi reynt að koma í veg fyrir fréttaflutning af Braggablúsnum svokallaða í Naut­ hólsvík. Það hefur alltaf verið erfitt að fá upplýsingar um einstök at­ riði er varða kostnað og gríðar­ lega framúrkeyrslu á verkefninu. Í hvert sinn sem blaðamenn taka upp símann til að fá upplýsingar sem eiga skýrt erindi við almenn­ ing þá er reynt að fela upplýsingar og drepa þessu máli á dreif. Skýrasta dæmið er þegar blaða­ maður fór niður í Ráðhús til að ræða málið, strax á fyrstu sekúndu reyndi starfsmaður borgarinnar að hindra að blaðamaður kæmist að einhverju. Blaðamaður mátti alls ekki fá símanúmer hjá ákveðn­ um starfsmanni borgarinnar til að fá viðkomandi til að ræða málið, blaðamaðurinn dó ekki ráðalaus og fletti því einfaldlega upp á vef borgarinnar. Um leið og búið var að nefna að innri endurskoðun ætti að rannsaka Braggablúsinn þá fóru blaðamenn að fá þau svör að það mætti alls ekki ræða mál sem væri til rannsóknar, skipti þá engu að á þeim tímapunkti var rann­ sókn ekki hafin og það var ekki einu sinni búið að taka formlega ákvörðun um að fela innri endur­ skoðun að gera slíka rannsókn. Nú þegar rannsóknin er hafin þá er farin í gang herferð til að kæfa málið og koma því af forsíð­ um fjölmiðla. Línan sem borgar­ starfsmenn eiga að segja er komin: „Ég get ekki rætt frekar um þetta mál því það má ekki spilla rann­ sóknarhagsmunum.“ Svipað er uppi á teningnum hjá fyrirtækj­ unum sem hafa fengið tugi millj­ óna frá borgarbúum vegna bragg­ ans, vísa Arkíbúllan og Efla bara á borgina og neita að ræða málið á meðan það er í rannsókn. Málið er í rannsókn, hjá innri endurskoðun og hjá fjölmiðlum. Með því að neita að ræða málið er Reykjavíkurborg og fyrirtækin sem hafa þegið tugi milljóna, yfir hundrað milljónir í einu tilviki, að hindra að þeir sem borga reikn­ ingana á endanum viti hvað var gert fyrir þeirra peninga og í þeirra nafni. Það er margt sem við eigum eft­ ir að fá upp á yfirborðið. Hvernig kom það til að Margrét Leifsdóttir hjá Arkíbúllunni fékk umboð til að ráða verktaka í nafni starfs­ manns borgarinnar? Hvers vegna gerði Efla verkfræðistofa þrjár kostnaðar áætlanir fyrir bragg­ ann? Hvers vegna vildi Efla yfirleitt gera þriðju kostnaðaráætlunina eftir að fyrstu tvær fóru í vaskinn? Hvað vissu embættismenn, borg­ arfulltrúar meirihlutans og minni­ hlutans um málið og hvenær? Hvað mun bragginn kosta þegar upp er staðið? Og ætlar borgin að halda áfram að greiða sömu aðil­ um fyrir að klára braggann og ráða aftur sömu aðila til að sinna öðr­ um verkefnum? Ber einhver pólit­ íska ábyrgð á Braggablúsnum? Þegar skoðaðar eru eldri skýrslur innri endurskoðunar er augljóst að þeirra rannsókn, eins mikilvæg og hún er, mun ekki svara öllum þeim spurningum sem þarf að svara. Við munum aldrei komast að öllum sannleikanum í málinu, við getum ekki vitað hver er vinur hvers og hvað var sagt í símtölum einstakra aðila í málinu. Við getum ekki komist að því hvort það hafi verið samantekin ráð milli borgar­ innar og verktaka að reyna að kæfa málið. Við vitum það hins vegar án þess að geta fengið það skjalfest að þau ætla að kæfa Braggablúsinn. Lesandi góður, við ætlum ekki að leyfa neinum að kæfa málið. Þetta mál mun ekki hverfa fyrr en öllum stórum spurningum hefur verið svarað. n Skulda Íslendingar Bretum afsökunar- beiðni? Eftir að Hannes skilaði skýrsl­ unni um erlend áhrif banka­ hrunsins hefur hann og fleiri sagt að Bretar skulduðu Ís­ lendingum afsökunarbeiðni vegna hryðjuverkalaganna þekktu, sem þeir beittu Ís­ lendinga. Margir, þar á meðal Gylfi Magn- ússon, fyrrverandi ráðherra, hafa hins vegar bent á að Bret­ ar myndu aldrei gera það, þeir myndu ekki vita hvar þeir ættu að byrja. Syndir þeirra og stríð eru það mörg. Spurningin er sú hvort Ís­ lendingar skuldi Bretum einnig afsökunarbeiðni, fyrir mun alvarlegra mál. Það er innrás­ ir, dráp og þrælahald á tímum víkinganna. Nýleg DNA­rann­ sókn, sem Sunna Ebeneserdóttir hjá Háskóla Íslands gerði í samvinnu við Decode, sýndi fram á mikinn innflutning fólks frá Bretlandi og Írlandi, og sér­ staklega kvenna. Árið 2007 var greint frá því að Brian Mikkelsen, danski menn­ ingarmálaráðherrann, hefði beðist afsökunar á framferði víkinga í opinberri heimsókn til Dublin. Hann þvertók síðan fyrir að hafa beðist afsökunar á því. „Við getum ekki beðist af­ sökunar á því sem gerðist fyrir þúsund árum. Þannig hegðaði fólk sér í gamla daga.“ Tómas eða Hörður til Icelandair Enn hefur ekki verið tilkynnt um arftaka Björgólfs Jó­ hannssonar í forstjórastóli Icelandair. Tvö nöfn hafa heyrst æ oftar undan­ farið. Það eru Tómas Már Sigurðs­ son, framkvæmdastjóri álfram­ leiðslusviðs Alcoa Corporation, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunnar. Sá síðar­ nefndi hefur staðið sig vel hjá ríkisfyrirtækinu en þar áður var hann forstjóri Marel um 10 ára skeið og forstjóri Sjóvár um hríð. Spurning vikunnar Var Jesús Kristur til? „Ég held ekki.“ Kolbrún Kristinsdóttir „Já, hann var það.“ Björn Helgason „Nei, það held ég ekki.“ Ólöf Þrándardóttir „Ég efast um það.“ Guðjón Ívarsson Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson Ari Brynjólfsson bjartmar@dv.is / ari@dv.is Leiðari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.