Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 21
FÓLK - VIÐTAL 2112. október 2018
hann var að stíga sín fyrstu skref í
tónlistinni. Hann var beðinn að
ræða þetta ekki opinberlega til að
skemma ekki fyrir plötusölunni
en hann vildi ekki fara í felur með
það. Árið 1975 opnaði hann sig
um samkynhneigðina í viðtali og
þá varð hann á einu augnabliki
umtalaðasti og mest útskúfaði
maður landsins.
„Af hverju á maður að lifa í
fangelsi heimskunnar? Er ég ekki
frjáls manneskja? Eftir að ég sagði
frá þessu opinberlega varð allt vit
laust og það sagði sitt um ástandið
í mannréttindamálum hér á landi.
En réttur eins er réttur allra.“
Maður hefur þurft að vera
hugrakkur til að gera þetta?
„Hugrekki byggir á hræðslu,
hræðslu sem heldur manni vak
andi. Ég menntaði mig í leikhúsi,
varð listamaður. Ég var aðeins að
sinna starfi mínu sem slíkur, tak
ast á við tilveruna. Notaði sjálfan
mig í stað þess að benda annað.
Já, á nokkrum árum varð ég mjög
var eftirsóttur og með fullt af verk
efnum á þessum tíma. Var í kvik
myndum, að halda tónleika, gefa
út plötur, í leikhúsi og sat fyrir sem
módel. En ég varð að flýja land.
Gróflega ofsóttur. Ég fékk ekki at
vinnutilboð á Íslandi eftir þetta
viðtal fyrr en 1998 og þá vegna
þess að ég vakti athygli á þeirri
staðreynd. Fordómar erfast og
verða alltaf til í samfélaginu. Hluti
af því að takast á við þetta opin
berlega var að standa fyrir stofn
un Samtakanna ’78. Mín aðferð til
að takast á við fordóma var að vera
sýnilegur, ferðast um landið með
sögur mína og söngva.“
Hörður segir að bókin sem
hann skrifaði sé í raun kennslubók
um hvernig eigi að fást við svona
mál.
„Ef maður stendur upp og læt
ur engan bilbug á sér finna þá
hefur maður sigur á endanum.
Það tekur marga smá ósigra til að
vinna þá stærstu. Þetta er oft mjög
lýjandi en þá er að taka sér frí og
hvíla sig til að geta komið til starfa
á nýjan leik. Þetta er „Mín“ aðferð
sem virkar en hún er mjög krefj
andi,“ segir Hörður. „Sem ungur
maður gerði ég mistök á mis
tök ofan því að ég var í myrkri að
þreifa mig áfram. En smám saman
tókst mér að vinna upp ákveðinn
kjarna og ákveðna reynslu í hvern
ig hægt er að takast á við slæma
valdhafa. Við eigum öll þetta kerfi,
það er ekki einkaeign lítils og gráð
ugs hagsmunahóps valdhafanna,
og við eigum ekki að láta valta yfir
okkur endalaust. Þetta sýndum
við hópurinn á Austurvelli og víð
ar um landið. Við sögðum „Hing
að og ekki lengra. Hér erum við,
við höfum kröfur“ og það heppn
aðist.“
Leikstjóri og sálusorgari
Hörður segir að þrotlaus barátta
hans á árum áður hafi skilað sér
í þessari baráttu því að fólk hafi
vitað hver hann var og fyrir hvað
hann stóð. Fyrsti fundurinn sem
Hörður stóð fyrir var laugardaginn
11. október og voru þeir síðan
haldnir daglega fyrstu vikuna en
síðan á hverjum laugardegi eftir
það.
Hvernig var mætingin í byrjun?
„Hún var róleg. Fólk var í áfalli
og að reyna að átta sig á hlutun
um. Eins og í öðrum áföllum
voru viðbrögð fólks að reyna að
vera sterkt og bjarga sér í gegnum
þetta. Þegar fólk lendir til dæmis í
bílslysi þá eru fyrstu viðbrögðin að
reyna að koma sér út úr flakinu og
standa í lappirnar. Það er ekki fyrr
en seinna sem fólk áttar sig á hvað
gerðist og þá vakna alls konar til
finningar.“
Hörður kom ekki blautur á bak
við eyrun til að skipuleggja fund
ina. Hann hafði tekið þátt í mörg
um mótmælum, til dæmis vegna
Kárahnjúkavirkjunar, og fylgst vel
með hvernig þau fóru fram.
„Ég velti þessu talsvert fyrir
mér. Af hverju lukkast sum mót
mæli ekki? Verða aðeins hávaði,
eru lamin niður og gleymast.
Einnig notaði ég reynslu mína sem
leikstjóri.“
Leistu á mótmælin sem leik-
stjórnarverkefni?
„Já, eðlilega, slíkt viðfangsefni
er í sjálfu sér ekkert annað í fram
kvæmd. Það þarf að stjórna þeim
og stjórna þeim vel, það er ekkert
annað. Í leikhúsinu stýrir maður
fjölda fólks með alls konar hlut
verk. Ég hafði reynsluna til að
leysa þetta verkefni.“
Hörður segir að hann hafi verið
vakinn og sofinn yfir skipulagn
ingu mótmælanna sem var sam
felldur stígandi í. Hörður ávarpaði
mótmælendur á flestum fundun
um en auk þess tóku einstaklingar,
þekktir og óþekktir, til máls. Má
þar nefna Einar Má Guðmundsson
rithöfund, Pétur Tyrfingsson sál
fræðing, Gerði Kristnýju rithöf
und og Dagnýju Dimmblá, átta ára
skólastúlku sem hélt ávarp á fyrsta
fundi ársins 2009.
Kom fólk til þín og sagði þér
sögu sína?
„Já,“ segir Hörður alvörugefinn.
„Stanslaust, stanslaust. Þetta var
fólk sem hafði misst vinnuna,
skuldaði mikið og hafði alls kon
ar hörmungarsögur að segja. Ég
hafði ekki undan að hlusta á og
tala við fólk. Það sendi líka fjölda
bréfa til mín.“
Varstu eins konar sálusorgari?
„Að sjálfsögðu. Þú leggur ekki
á örvæntingarfulla manneskju
sem hringir í þig og vill tala, eða ég
geri það að minnsta kosti ekki. Ég
hlustaði, því ég hef verið í þessari
stöðu. Ég talaði við fólk sem var á
barmi þess að drepa sig.“
Greip inn í þegar upp úr sauð
Eftir að mótmælin á Austurvelli
höfðu skilað því að ríkisstjórn
Geirs H. Haarde féll og boðað var
til kosninga tók við annar kafli í lífi
Harðar. Hann ferðaðist um heim
inn og talaði um aðgerðirnar á
samkomum þar sem hans var ósk
að. Yfirleitt voru það borgarasam
tök sem buðu honum. Í fimm ár
starfaði hann við þetta en ákvað
svo að draga úr ræðuhöldunum.
Hann segist þó ekki vera alveg
hættur.
„Það er einstakt að svona verk
efni heppnist með þessum árangri
og það er mikill áhugi erlendis
fyrir að rannsaka mótmælin.“
Hvað vildir þú að kæmi út úr
mótmælunum?
„Það sem gerðist. Að ríkis
stjórnin, stjórnir Seðlabankans
og fjármálaeftirlitsins segðu af sér
og boðað yrði til nýrra kosninga.
Undir niðri var krafan um nýja
stjórnarskrá en eðli málsins sam
kvæmt var ekki hægt að setja það
sem lokapunkt. Hún hefur verið
verkefni Íslendinga síðan 1904 og
ekki enn orðið raunin. Þegar síð
asta opinbera krafan, að Davíð viki
úr Seðlabankanum, var að verða
að veruleika átti ég fund með Jó
hönnu Sigurðardóttur um að
tryggja að það yrði unnið að nýrri
stjórnarskrá. Jóhanna gerði það
eins og ég segi frá í bókinni. Þjóð
in tók sig svo saman og samdi nýja
stjórnarskrá en þá var það stoppað
með valdaráni. Þá ætluðu stjórn
málamennirnir að fara að vilja
skrifa hana. Sorrí, þetta virkar ekki
þannig. Fólkið í landinu á að skrifa
hana og þeir að fara eftir henni.“
Hverjir fannst þér bera mesta
ábyrgð á hruninu?
„Ég vinn ekki þannig heldur
kalla ég kerfið sjálft til ábyrgðar.
Stjórnmála og fjármálamenn. Ég
var ekki að beina spjótum mín
um að ákveðnum einstaklingum
og er ekki fylgjandi þeirri stefnu
að taka fólk af lífi fyrir það að hafa
gert mistök. Við erum samfélag og
hverjum og einum á að vera kleift
að hafa sitt að segja um hvernig
því er stýrt. Upp úr 1990 hófst hér
á landi atburðarás sem endaði í
þessum tryllingslega dansi og við
fórum fram af brúninni.“
Þú ert að meina þegar Davíð
Oddsson varð forsætisráðherra?
„Já, já. Á þeim tímapunkti kom
ný stefna inn í stjórnmálin, það
er alveg á hreinu. Ruðningsáhrif
hans höfðu áhrif á íslenskan sam
tíma. Við þurfum að takast á við
þetta sem þjóð því annars verður
aldrei sátt.“
Fannst þér þingheimur hlusta á
ykkur í mótmælunum?
„Nei,“ segir Hörður ákveðinn.
„Geir Haarde kallaði okkur skríl.
Ég man sérstaklega eftir því þegar
upp úr sauð í lok janúar.“ Það var
vikan þar sem lögreglan beitti
táragasi og kylfum gegn mótmæl
endum. „Sjónvarpið var yfirfullt af
fréttum um grátandi eiginkonur
lögreglumanna. Það var reynt að
mála ákaflega ljóta mynd af mót
mælendum en það var ekki kom
ið til okkar og spurt af hverju við
værum þarna. Ég talaði við Geir og
varaði hann við þessu en hann átt
aði sig of seint. Valdhafarnir á Al
þingi voru inni í einhvers konar
sápukúlu og vildu ekki hlusta.“
Fór ástandið úr böndunum?
„Það jaðraði við það í janúar en
fór aldrei alveg úr böndunum því
að við mótmælendur gripum inn í.
Stjórnmálamennirnir bentu á okk
ur og sögðu okkur ábyrg en þeir
geta ekki neitað fyrir sína ábyrgð.
Ástandið hafði skapast vegna
gjörða þeirra. Þeir voru bara ekki
vanir að fá svona kröftug viðbrögð.
Þeir vissu að þetta gæti farið svona
og þeir leyfðu þessu að gerast af
því að þeir hlustuðu ekki á okkur,“
segir Hörður með áherslu.
Innan um mótmælendur var
fólk sem ekki tilheyrði hópnum,
fólk sem átti jafn vel eitthvað sök
ótt við lögregluna. Framganga
þeirra var nokkuð til tals meðan á
hamaganginum stóð.
„Það eru líka manneskjur,“ segir
Hörður. „Allir tilheyrðu hópnum
en voru með mismunandi áhersl
ur og aðferðir. Ég talaði sérstaklega
við ungt fólk sem setti upp grím
ur. Ég sagði að innan þeirra raða
myndi koma upp hópur sem gerði
ekkert annað en að eyðileggja fyrir
þeim. Með því að fela andlitin
væru þau að veikja málstaðinn.
Erlendis, til dæmis í Grikklandi
á þessum tíma, var það vel þekkt
að lögreglumenn og hagsmuna
aðilar settu upp sams konar grím
ur og fremdu skemmdarverk til að
sverta mótmælin.“
Hvernig fannst þér lögreglan
taka á mótmælunum?
„Lögreglan gat eiginlega ekki
tekið öðruvísi á þessu en hún
gerði því hún var svo fáliðuð. Ég
átti fund með Stefáni Eiríkssyni
lögreglustjóra og sá að þeir tóku
stefnu um að vera ekki að berja
mótmælin niður með ofbeldi. Sem
var hárrétt því að mótmælin voru
yfirlýst friðsamleg.“
Þeir þurftu nú stundum að
bregða sér í óeirðagallana?
„Já, já,“ segir Hörður og brosir.
„Það verða alltaf einhverjir sprelli
gosar inni á milli og hópurinn var
stór og ólíkur. Það voru alltaf ein
hverjir sem áttu kannski auka egg
til að kasta eða fernu af mjólk.
Mannlífið er fjölbreytt og það viss
um við, bæði ég og lögreglan. Það
alvarlegasta sem gerðist, held ég,
var að einn maður handleggs
brotnaði. Það var auðvitað slæmt
en heilt yfir þá gekk þetta ótrúlega
vel. Bæði ég og lögreglan náðum
að halda góðri stjórn á þessu.“
Veist að heimili og persónu
Að vera foringi í svona stórum og
heitum aðgerðum hafði vissu
lega áhrif á persónulegt líf og
feril Harðar. Eftir að hafa misst
alla útvarpsspilun, plötusölu og
fleira eftir viðtalið fræga árið 1975
náði hann að vinna sig upp sem
söngvaskáld og árið 2008 var hann
vinsæll listamaður. Hann hélt vel
sótta tónleika á hverju hausti og
hafði gert um árabil. Árið 2008
seldust 1.100 miðar á hausttón
leikana en ári seinna seldust inn
an við 200 miðar.
„Það kom bakslag og tónlistar
ferillinn tók slíka dýfu að ég hætti
alfarið að koma fram. Árin eftir
mótmælin fékk ég alvarlegar hót
anir. Þetta fylgir því að ganga í
broddi fylkingar fyrir öðruvísi
hugsun. En ég undirstrika að ég
starfa sem venjulegur borgari með
stjórnarskrárvarinn rétt til þátt
töku. Stundum hef ég þurft að
flytja mig um set út af þessu.“
Var veist að heimili þínu?
„Já, húsið mitt og bíllinn
minn hafa oft orðið fyrir árásum,
aumingja bíllinn minn,“ segir
Hörður og hlær. „Það var mjög oft
hleypt úr dekkjunum, brotist inn í
hann og hann laminn með hamri.
Einnig veist gróflega að mér. Í eitt
skiptið árið 2013 eða 2014 var
„Ég set stórt
spurningar-
merki við Samtök-
in ’78 í dag og spyr
hvað er þetta fé-
lag í dag?
Tónlistarmaður
Miðasalan hrundi
eftir mótmælin.