Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 36
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ
KLÆÐAKOT:
Einfaldleiki og gæði á góðu verði
Klæðakot er verslun með megináherslu á barnaföt og hannyrðavörur og hefur nokkra
sérstöðu: Verslunin hefur verið
starfandi á Ísafirði um sex ára skeið
en fyrir rúmu ári opnaði Klæðakot
líka vefverslun og þar með varð allt
landið að markaðssvæði. Jafnframt
því hefur vöruúrval verið aukið mikið.
„Upphaflega var þetta hannyrða-
verslun en það eru ekki nema tvö ár
síðan við byrjuðum með barnaföt
og töskurnar vinsælu sem við erum
með tókum við inn bara í sumar sem
leið,“ segir Halldóra Björk Norðdahl,
annar eigandi fyrirtækisins sem hún
rekur í samvinnu við Önnu Jakobínu
Hinriksdóttur og eru þær jafnframt
einu starfsmennirnir.
Verslunin á Ísafirði er staðsett í
hjarta bæjarins, á Silfurtorgi, gegnt
gamla bakaríinu. Í vöruinnkaupum
leggja þær stöllur áherslu á bæði
gæði og hagstætt verð: „Einfald-
leiki og gæði á góðu verði er okkar
kjörorð,“ segir Halldóra, en vörurnar
koma einkum frá þremur löndum:
„Barnafötin koma frá Danmörku,
garnið kemur mestmegnis frá Noregi
og töskurnar eru frá Þýskalandi, frá
verksmiðju sem er rétt fyrir utan
vinabæ Ísafjarðar, Kaufering.“
Klæðakot er rómað fyrir lága
álagningu og þær stöllur kappkosta
að hagræða í rekstrinum til að halda
verðinu niðri. Sendingarkostnaður
með öllum vörusendingum er 800 kr.
óháð stærð þeirra.
„Við erum ekki með ýkja marga
viðskiptavini í Reykjavík en flestir okk-
ar viðskiptavinir búa í litlum bæjum
víðs vegar um landið,“ segir Hall-
dóra, en auk þess leggur Klæðakot
á sig þær skyldur að sinna þörfum
íbúanna í heimabyggð: „Við erum
eina barnafataverslunin á svæðinu
og eina garnverslunin og reynum
að vera með allt sem fólk kann að
vanhaga um á þessu sviði, til dæmis
kuldaskó.“
Það er gaman að koma í verslun-
ina á Ísafirði og erlendir ferðamenn
eru þar tíðförulir á sumrin. Eru þá í
boði sérstakir prjónapakkar fyrir þá,
garn og uppskriftir.
Fyrir þá sem ekki eiga leið til
Ísafjarðar á næstunni er hins vegar
kjörið að kíkja í vefverslunina á
klaedakot.is, skoða úrvalið og gera
góð kaup.