Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 37
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Hágæðafatnaður úr
lífrænum efnum
Ethic er íslensk verslun sem leggur áherslu á gæðavör-ur milliliðalaust beint frá
framleiðenda. Upphaflega hófst
þetta ástríðufulla áhugamál hjá
hjónunum Matthíasi Haraldssyni
og Hafrúnu Ósk Pálsdóttur sem
netverslun, en síðan var hulunni
svipt af glænýrri sérvöruverslun
á Suðurlandsbraut 4. Verslunin er
opin alla virka daga frá 12 til 18 og
er opið annað slagið um helgar, en
þá er það sérstaklega auglýst.
Að sögn eigendanna er markmið
verslunarinnar að halda verði sem
allra næst því sem er í Skandinavíu
og Evrópu, auk þess að huga að
verndun umhverfisins við fram-
leiðsluna.
„Við veljum ákveðin fyrirtæki sem
eru með umhverfisvæna fram-
leiðslu og veljum einungis lífræn
efni,“ segir Matthías. Við erum með
hágæðaskó frá sænska merkinu
Kavat. Nú er farið að líða að tímabili
fyrir kuldaskó og Kavat er sér-
lega gott merki og inniheldur til að
mynda lífræna bómull. Eins og allir
skór frá Kavat eru þeir án teflons,
PTFE og annara vetnisflúoríð efna.“
Verslunin sérhæfir sig einnig í
barnafötum frá Mini Rodini, kven-
fatnaði frá People Tree, Frieda
Sand, Jan ’N June, WORON og fleiri
framleiðendum sem eiga það sam-
eiginlegt að vinna eftir FairTrade-
-hugsjóninni, sem gengur út á sjálf-
bærni og er með umhverfisvernd
að sjónarmiði.
Matthías bætir við að þau Hafrún
planti tré fyrir hverja selda vöru og
sé það gert til þess að jafna kolefn-
issporin sem myndast við flutning
frá vörum þeirra til viðskiptavin-
anna. „Fyrir árið 2017 plöntuðum
við sléttum þúsund plöntum rétt
við Egilsstaði,“ segir hann og tekur
fram að spennandi verði að fylgj-
ast með þeim fjölda trjáa fyrir sölu
þessa árs. „Þetta er búið að ganga
ótrúlega vel allt saman, ekki síst í
ljósi þess að við Hafrún erum bæði
í annarri vinnu. Það má segja að
þetta sé eilítið fjölskylduverkefni hjá
okkur.“