Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 37
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Hágæðafatnaður úr lífrænum efnum Ethic er íslensk verslun sem leggur áherslu á gæðavör-ur milliliðalaust beint frá framleiðenda. Upphaflega hófst þetta ástríðufulla áhugamál hjá hjónunum Matthíasi Haraldssyni og Hafrúnu Ósk Pálsdóttur sem netverslun, en síðan var hulunni svipt af glænýrri sérvöruverslun á Suðurlandsbraut 4. Verslunin er opin alla virka daga frá 12 til 18 og er opið annað slagið um helgar, en þá er það sérstaklega auglýst. Að sögn eigendanna er markmið verslunarinnar að halda verði sem allra næst því sem er í Skandinavíu og Evrópu, auk þess að huga að verndun umhverfisins við fram- leiðsluna. „Við veljum ákveðin fyrirtæki sem eru með umhverfisvæna fram- leiðslu og veljum einungis lífræn efni,“ segir Matthías. Við erum með hágæðaskó frá sænska merkinu Kavat. Nú er farið að líða að tímabili fyrir kuldaskó og Kavat er sér- lega gott merki og inniheldur til að mynda lífræna bómull. Eins og allir skór frá Kavat eru þeir án teflons, PTFE og annara vetnisflúoríð efna.“ Verslunin sérhæfir sig einnig í barnafötum frá Mini Rodini, kven- fatnaði frá People Tree, Frieda Sand, Jan ’N June, WORON og fleiri framleiðendum sem eiga það sam- eiginlegt að vinna eftir FairTrade- -hugsjóninni, sem gengur út á sjálf- bærni og er með umhverfisvernd að sjónarmiði. Matthías bætir við að þau Hafrún planti tré fyrir hverja selda vöru og sé það gert til þess að jafna kolefn- issporin sem myndast við flutning frá vörum þeirra til viðskiptavin- anna. „Fyrir árið 2017 plöntuðum við sléttum þúsund plöntum rétt við Egilsstaði,“ segir hann og tekur fram að spennandi verði að fylgj- ast með þeim fjölda trjáa fyrir sölu þessa árs. „Þetta er búið að ganga ótrúlega vel allt saman, ekki síst í ljósi þess að við Hafrún erum bæði í annarri vinnu. Það má segja að þetta sé eilítið fjölskylduverkefni hjá okkur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.