Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 44
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ Við erum að vinna með heildar-lausnir hér í Hljóðfærahúsinu, hér geturðu fengið allt fyrir tónlistarmanninn og þann sem vill verða tónlistarmaður. Draumurinn rætist hér,“ segir Arnar Þór Gísla- son í Hljóðfærahúsinu. Verslunin var opnuð árið 1916 og er því komin á aðra öldina. Þrátt fyrir þennan háa aldur er Hljóðfærahúsið afar nútíma- leg verslun sem býður það nýjasta og besta í hljóðfærum og tónlistar- tengdum margmiðlunarbúnaði sem náð hefur mikilli útbreiðslu undanfar- in ár og er í stöðugri þróun. „Kassagítar og rafmagnspíanó eru alltaf vinsælustu jólagjafirnar, ásamt rafgítörum og rafbössum,“ segir Arnar en sem dæmi um spennandi nýjungar nefnir hann Hifi-hátalara og streymistæki frá Naim Audio og Focal-hátalara. „Við erum með her- bergi hér fyrir streymistæki þar sem fólk getur prófað að streyma tón- listinni beint úr símanum sínum,“ segir Arnar. „Þekktustu merkin eru Yamaha í hljómborðum, trommusettum, gítör- um og hljóðkerfinu; Fender í gítörum og mögnurum, og Shure er leiðandi í hljóðnemum og heyrnartólum.“ Viðskiptavinahópurinn er fjöl- breyttur: „Hingað kemur þekkt tón- listarfólk og alls konar annað tónlist- arfólk því það leynist tónlistarmaður í hverri fjölskyldu og allir hafa áhuga á tónlist.“ Jólagjöf sem kveikir neistann í ungu fólki Verð á hljóðfærum er gott um þessar mundir vegna hagstæðrar gengis- þróunar, sem eykur enn möguleikana á spennandi jólagjöfum úr Hljóð- færahúsinu. Í boði eru gjafabréf fyrir hvaða upphæð sem er, sem gilda fyrir hvaða vörur sem er í versluninni. Tónlistariðkun af öllu tagi er af- skaplega uppbyggilegt og þroskandi áhugamál fyrir ungt fólk. Sumir hafa áhyggjur af því að unglingar leiki sér of mikið í tölvuleikjum og snjalltækjum en hljóðfæri og aðrar tónlistargjafir geta opnað ungu fólki alveg nýjan heim og gert tómstundirnar að skap- andi ástríðu. Stafrænt stúdíó fyrir nokkra tugi þúsunda „Fyrir nokkra tugi þúsunda getur fólk fengið búnað sem dugar til að taka upp í sambærilegum gæðum og voru í hljóðverum fyrir um 20 árum. Ef þú átt tölvu heima hjá þér geturðu útbúið stúdíó þar fyrir nokkra tugi þúsunda og hljómgæðin eru mjög viðunandi,“ segir Arnar, en fjölmargir tónlistarmenn sem taka upp tónlist með þessum ódýra hætti hafa komið fram á Youtube-rásinni undanfarin ár og eignast milljónir fylgjenda. Hljóðfærahúsið er til húsa að Síðu- múla 20. Þangað er gaman að koma og skoða allt úrvalið af hljóðfærum og búnaði. Á heimasíðu fyrirtækisins, hljodfaerahusid.is, má finna góðar upplýsingar um vöruúrvalið. HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ: Kveikir neistann hjá upprennandi tónlistarfólki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.