Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 44
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Við erum að vinna með heildar-lausnir hér í Hljóðfærahúsinu, hér geturðu fengið allt fyrir
tónlistarmanninn og þann sem vill
verða tónlistarmaður. Draumurinn
rætist hér,“ segir Arnar Þór Gísla-
son í Hljóðfærahúsinu. Verslunin var
opnuð árið 1916 og er því komin á
aðra öldina. Þrátt fyrir þennan háa
aldur er Hljóðfærahúsið afar nútíma-
leg verslun sem býður það nýjasta
og besta í hljóðfærum og tónlistar-
tengdum margmiðlunarbúnaði sem
náð hefur mikilli útbreiðslu undanfar-
in ár og er í stöðugri þróun.
„Kassagítar og rafmagnspíanó eru
alltaf vinsælustu jólagjafirnar, ásamt
rafgítörum og rafbössum,“ segir
Arnar en sem dæmi um spennandi
nýjungar nefnir hann Hifi-hátalara
og streymistæki frá Naim Audio og
Focal-hátalara. „Við erum með her-
bergi hér fyrir streymistæki þar sem
fólk getur prófað að streyma tón-
listinni beint úr símanum sínum,“ segir
Arnar.
„Þekktustu merkin eru Yamaha í
hljómborðum, trommusettum, gítör-
um og hljóðkerfinu; Fender í gítörum
og mögnurum, og Shure er leiðandi í
hljóðnemum og heyrnartólum.“
Viðskiptavinahópurinn er fjöl-
breyttur: „Hingað kemur þekkt tón-
listarfólk og alls konar annað tónlist-
arfólk því það leynist tónlistarmaður í
hverri fjölskyldu og allir hafa áhuga á
tónlist.“
Jólagjöf sem kveikir neistann í ungu
fólki
Verð á hljóðfærum er gott um þessar
mundir vegna hagstæðrar gengis-
þróunar, sem eykur enn möguleikana
á spennandi jólagjöfum úr Hljóð-
færahúsinu. Í boði eru gjafabréf fyrir
hvaða upphæð sem er, sem gilda
fyrir hvaða vörur sem er í versluninni.
Tónlistariðkun af öllu tagi er af-
skaplega uppbyggilegt og þroskandi
áhugamál fyrir ungt fólk. Sumir hafa
áhyggjur af því að unglingar leiki sér
of mikið í tölvuleikjum og snjalltækjum
en hljóðfæri og aðrar tónlistargjafir
geta opnað ungu fólki alveg nýjan
heim og gert tómstundirnar að skap-
andi ástríðu.
Stafrænt stúdíó fyrir nokkra tugi
þúsunda
„Fyrir nokkra tugi þúsunda getur fólk
fengið búnað sem dugar til að taka
upp í sambærilegum gæðum og voru
í hljóðverum fyrir um 20 árum. Ef
þú átt tölvu heima hjá þér geturðu
útbúið stúdíó þar fyrir nokkra tugi
þúsunda og hljómgæðin eru mjög
viðunandi,“ segir Arnar, en fjölmargir
tónlistarmenn sem taka upp tónlist
með þessum ódýra hætti hafa komið
fram á Youtube-rásinni undanfarin ár
og eignast milljónir fylgjenda.
Hljóðfærahúsið er til húsa að Síðu-
múla 20. Þangað er gaman að koma
og skoða allt úrvalið af hljóðfærum
og búnaði. Á heimasíðu fyrirtækisins,
hljodfaerahusid.is, má finna góðar
upplýsingar um vöruúrvalið.
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ:
Kveikir neistann hjá
upprennandi tónlistarfólki