Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Síða 45
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Fáðu litríka sokka inn um lúguna í hverjum mánuði Ef þú leitar að skemmtilegri jólagjöf þá er áskrift að sokkum klárlega málið Þjónusta Smart Socks gengur út á að fá send til sín sokkapör einu sinni í mánuði. Sokkarnir eru litríkir og skemmtilegir og úr 100% bómull. Smart Socks var stofnað fyrir um ári og hafa viðtökurnar verið frábærar og fá þúsundir viðskiptavina nýja sokka inn um lúguna sína í hverjum mánuði. Smart Socks býður upp á tvær áskriftarleiðir, annars vegar að fá eitt par á mánuði fyrir 990 krónur eða tvö pör á 1.790 krónur, þú velur hvaða stærð þú þarft, 34–38, 39–42 eða 43–45, en einnig er hægt að blanda saman stærðum. Enginn binditími er á áskriftinni og því hægt að segja upp hvenær sem er. Einnig býður Smart Socks upp á svokallaða gjafaáskrift en þar er hægt að velja um 1 eða 2 pör og er hægt að gefa áskrift sem gildir í 3, 6 eða 12 mánuði og er greitt fyrir allt áskriftartímabilið í upphafi. Mögu- legt er að senda kveðju með fyrstu sendingu og er gengið frá því í kaup- ferlinu sjálfu. Fyrir utan það hvað það er þægi- legt að fá sokka senda heim til sín í hverjum mánuði þá getur þetta líka skapað stemningu í hvaða hópi sem er, í vinahópnum, saumaklúbbnum, vinnustaðnum eða bara hjá fjöl- skyldunni. Viðskiptavinurinn veit ekki hvernig sokkapar hann fær og er passað upp á það að sami viðskipta- vinurinn sé ekki að fá eins sokka aftur, að minnsta kosti ekki á sama árinu. Sokkarnir eru ekki allir jafn litríkir, sum- ir hógværari en aðrir en aðalatriðið er að einlitir svartir og hvítir sokkar eru ekki í boði. Þú getur pantað hefðbundna áskrift, eða gengið frá kaupum af gjafaáskrift á heimasíðu Smart Socks. Smart Socks er í samstarfi við Bleiku slaufuna og allar áskriftir sem koma inn í október renna óskiptar til þess þarfa verkefnis. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að gefa starfsfólki sínu sokkaáskrift í jóla- gjöf ættu að hafa samband við Smart Socks í gegnum netfangið info@ smartsocks.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.