Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 50
50 MATUR 12. október 2018
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Tíu drykkir sem urðu tímanum að bráð
Hver man ekki eftir Garpi, Gosa og Sítrónu Svala?
Það þótti afar svalt
að drekka Svala með
sítrónubragði hér í
denn, og var það til
marks um að maður
væri með allt á hreinu
og í toppmálum. Svo
hvarf Svalinn og
unga kynslóðin fór
á hliðina. Enn þann
dag í dag poppa
reglulega upp
hópar af fólki sem
saknar Svalans, og
var meira að segja
blásið til undir
skriftasöfnunar í
fyrra til að fá Sítrónu
Svalann aftur.
Mjólkursamsalan
var með áhugavert
útspil um miðbik
tíunda áratugar
síðustu aldar og
setti kakódrykkinn
Kókó á markað,
sem var bara eins
og slæm útgáfa af
Kókómjólk.
Það skemmtilega við appel
sínudrykkinn Topp frá Sól
sem kom á markað á níunda
áratug síðustu aldar voru
klárlega auglýsingarnar.
Komið var fyrir eins konar
sápupumpu til að skenkja
safann og var hún heldur
betur ólystug.
Sunsip appelsínudrykkurinn var til á sjöunda áratug síðustu
aldar, en um þykkni var að ræða, sem var auglýstur sem
bragðljúfur og alls ekki fitandi. Með auglýsingunum fylgdu
leiðbeiningar um hvernig átti að blanda þykkni, enda afar
vandasamt verk.
Seltzer og Diet Seltzer frá Sól eiga sérstakan stað í
hjörtum margra og sakna einhverjir hans úr hillum
stórverslana.
Það var sérstaklega tekið fram í auglýsingum
fyrir safann Gosa frá Mjólkursamsölunni að
hann innihéldi sætuefnið aspartame, sem í dag
er talið vera afar skaðlegt.
TAB er að sjálfsögðu ekki íslenskur drykkur en
mikið sem hann átti marga aðdáendur á Ís
landi. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar
sölu á TABi var hætt og margir hömstruðu
drykkinn áður en hann hvarf af markaði.
Safinn Frissi Fríski átti gríðarlegum vinsældum
að fagna á síðustu öld, en margir muna eflaust
eftir Frissa Frískagosinu sem var framleitt vegna
gríðarlegra vinsælda safans. Gosið missti þó hins
vegar marks.
Í svona upptalningu má aldrei gleyma svalandi drykknum
Garpi frá Mjólkursamsölunni sem fólk annaðhvort hataði eða
elskaði. Við erum að tala um drykk sem var blanda af mysu
og appelsínusafa. Hljómar skringilega, en sem betur fer er
smekkur manna mismunandi.
Með allt á hreinu Var Kókómjólk ekki nóg?
Safi með
sápu-
pumpu
Í stríði
við kókið
Fyrirtækið Sól var grimmt í drykkjarframleiðslu
og nýjungum á seinni hluta síðustu aldar. Meðal
drykkja úr smiðju fyrirtækisins var ÍsCola sem
var framleitt til höfuðs Coca Cola. Ákveðið stríð
ríkti á milli þessara tveggja drykkja, stríð sem
rataði meira að segja á síður fjölmiðla. Og að
lokum hafði gamla Coca Colað betur.
Sérstakur Seltzer
Áfall fyrir
TAB-ara
Bragðljúfur – ekki fitandi Tímanna tákn
Safinn var ekki nóg
Mysa og appelsínusafi
10