Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 50
50 MATUR 12. október 2018 PIZZERIA DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI Tíu drykkir sem urðu tímanum að bráð Hver man ekki eftir Garpi, Gosa og Sítrónu Svala? Það þótti afar svalt að drekka Svala með sítrónubragði hér í denn, og var það til marks um að maður væri með allt á hreinu og í toppmálum. Svo hvarf Svalinn og unga kynslóðin fór á hliðina. Enn þann dag í dag poppa reglulega upp hópar af fólki sem saknar Svalans, og var meira að segja blásið til undir­ skriftasöfnunar í fyrra til að fá Sítrónu Svalann aftur. Mjólkursamsalan var með áhugavert útspil um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar og setti kakódrykkinn Kókó á markað, sem var bara eins og slæm útgáfa af Kókómjólk. Það skemmtilega við appel­ sínudrykkinn Topp frá Sól sem kom á markað á níunda áratug síðustu aldar voru klárlega auglýsingarnar. Komið var fyrir eins konar sápupumpu til að skenkja safann og var hún heldur betur ólystug. Sunsip appelsínudrykkurinn var til á sjöunda áratug síðustu aldar, en um þykkni var að ræða, sem var auglýstur sem bragðljúfur og alls ekki fitandi. Með auglýsingunum fylgdu leiðbeiningar um hvernig átti að blanda þykkni, enda afar vandasamt verk. Seltzer og Diet Seltzer frá Sól eiga sérstakan stað í hjörtum margra og sakna einhverjir hans úr hillum stórverslana. Það var sérstaklega tekið fram í auglýsingum fyrir safann Gosa frá Mjólkursamsölunni að hann innihéldi sætuefnið aspartame, sem í dag er talið vera afar skaðlegt. TAB er að sjálfsögðu ekki íslenskur drykkur en mikið sem hann átti marga aðdáendur á Ís­ landi. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar sölu á TAB­i var hætt og margir hömstruðu drykkinn áður en hann hvarf af markaði. Safinn Frissi Fríski átti gríðarlegum vinsældum að fagna á síðustu öld, en margir muna eflaust eftir Frissa Fríska­gosinu sem var framleitt vegna gríðarlegra vinsælda safans. Gosið missti þó hins vegar marks. Í svona upptalningu má aldrei gleyma svalandi drykknum Garpi frá Mjólkursamsölunni sem fólk annaðhvort hataði eða elskaði. Við erum að tala um drykk sem var blanda af mysu og appelsínusafa. Hljómar skringilega, en sem betur fer er smekkur manna mismunandi. Með allt á hreinu Var Kókómjólk ekki nóg? Safi með sápu- pumpu Í stríði við kókið Fyrirtækið Sól var grimmt í drykkjarframleiðslu og nýjungum á seinni hluta síðustu aldar. Meðal drykkja úr smiðju fyrirtækisins var Ís­Cola sem var framleitt til höfuðs Coca Cola. Ákveðið stríð ríkti á milli þessara tveggja drykkja, stríð sem rataði meira að segja á síður fjölmiðla. Og að lokum hafði gamla Coca Cola­ð betur. Sérstakur Seltzer Áfall fyrir TAB-ara Bragðljúfur – ekki fitandi Tímanna tákn Safinn var ekki nóg Mysa og appelsínusafi 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.