Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Qupperneq 64
64 12. október 2018
8 sinnum tók þýska konan Marianne Bach-meier í gikkinn í Héraðsdómi Lübeck í Þýskalandi þann 6. mars 1981. Skotmark
hennar var Klaus nokkur Grabowski og fékk
hann öll skotin átta í bakið. Klaus þessi var
meintur morðingi Önnu, dóttur Marianne. Klaus,
sem var dæmdur kynferðisbrotamaður, rændi
Önnu, átta ára, hélt henni í prísund í nokkra
klukkutíma og kyrkti hana að lokum og gróf lík
hennar við síkisbakka. Marianne fékk sex ára
dóm fyrir manndráp. Hún dó í september 1996.
SAKAMÁL
FEGURÐ
ENDING
MÝKT
Kostirnir eru ótvíræðir:
• Fallegra hús
• Ekkert viðhald
Ál er okkar mál • Fossaleyni 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 4100 • altak.is
VEGGKLÆÐNINGAR
Fyrir allar gerðir húsa, ný
jafnt sem gömul, fjöldi lita og gerða PÁFAGAUKURINN GARGANDI
Lukkudýrið kom lögreglunni á sporið
Á
rið 1942 var bar í New York,
The Green Parrot Bar. Eig
andi barsins var Max Geller
og lukkudýr barsins var
grænn páfagaukur. Flestir gestir
staðarins kunnu vel að meta páfa
gaukinn sem var þeim gáfum
gæddur að þekkja fastagestina.
Hann gerði gott betur því hann gat
sagt nöfn þeirra og ausið yfir þá
móðgunum.
Drukkinn gestur með byssu
Nú, þann 12. júlí, 1942, kom mað
ur á barinn og krafðist þess að
sér yrði skenkt í glas. Max sá að
gesturinn var þá þegar æði ölvað
ur og neitaði að afgreiða hann.
Sá drukkni kunni ekki að meta
viðhorf Max, dró upp skamm
byssu og skaut hann. Flúði hann
síðan eins og fætur toguðu.
Skotið hafði hæft Max í hálsinn
og eyðilagt raddböndin. Hann var
svo illa haldinn að hann gat ekkert
aðstoðað lögregluna. Einnig virt
ist sem enginn viðstaddra á kránni
hefði borið kennsl á ódæðismann
inn.
„Robber! Robber!“
Sá eini sem sagði eitthvað var
græni páfagaukurinn. „Robber
(ræningi)! Robber!“ skrækti hann í
sífellu. Sá sem fór fyrir rannsókn
inni stundi þungan: „Við erum
með dauðvona fórnarlamb, sem
getur ekkert sagt, tuttugu vitni,
sem ekkert vilja segja, og páfagauk
sem við getum ekki þaggað niður
í.“
Í þrjá daga lá Max Geller milli
heims og helju en að lokum hafði
sláttumaðurinn slyngi betur. Lög
reglan yfirheyrði góðkunningja
sína en ekkert kom upp úr krafs
inu.
„Robert! Robert!“
Þá datt einhverjum lögreglu
manninum í hug að hugsanlega
væri páfagaukurinn græni ekki að
segja „Robber! Robber!“, heldur
„Robert! Robert!“
Þar komst skriður á rannsókn
ina og allir fastagestir sem hétu
Robert voru yfirheyrðir. Einn
þeirra var Robert Butler, 28 ára
leigubílstjóri, en þegar lögreglan
n Vildi komast yfir fé á skjótan hátt n Hikaði ekki við að myrða„Ég er latur.
Ég sá enga
aðra leið til að
komast yfir fé
með skjótum
hætti.
Þ
að kom vinum Kínverjans
Danping Yuan í opna
skjöldu þegar hann var
handtekinn í apríl 2013.
Danping, 41 árs, var hvers manns
hugljúfi og að sögn þeirra sem til
þekktu „einn ærlegasti, duglegasti
bóndinn á svæðinu.“ Svæðin sem
um ræddi voru Hubei og Hunan
hérað og Danping var sá sem allir
vildu vera með; hann var kátur og
gjafmildur og taldi ekki eftir sér að
bjóða vinum sínum í glas eða fjár
magna aðra skemmtum.
Tvöfaldur persónuleiki
Danping átti sér aðra og dekkri
hlið og í fyrrnefndum héröðum
hafði hann stundað morð og rán
um tíu ára skeið. Ástæða ódæða
hans var ávallt sú sama; peningar.
Á þessum tíu árum framdi hann
átta meiri háttar rán með þeim af
leiðingum að níu manns misstu
lífið.
Var það mat sérfræðinga að
Danping sýndi skýr merki tvö
falds persónuleika. Hann virtist
mannblendinn þegar hann var í
félagsskap annarra, en var í reynd
afar einmana maður og hafði það
ágerst eftir að eiginkonan sagði
skilið við hann.
Engin iðrun
Eftir að Danping var handtekinn
hikaði hann ekki við að játa sök
sína og við réttarhöldin, sem
reyndust afar stutt vegna játningar
hans, sýndi hann tómlæti, aldrei
iðrun eða hugarangur.
„Sekur samkvæmt lögum
landsins,“ svaraði hann aðspurður
hvort hann væri sekur eða saklaus.
Hugsanlega var Danping þrátt fyr
ir allt og allt hugleikin sú hefð að
maður ætti að taka ábyrgð á eigin
gjörðum, en í það minnsta reyndi
hann aldrei að sverja af sér sakir.
Sagðist vera latur
Á meðal fórnarlamba Danpings
voru hjónin Zhang Zhuang og
Dipu Hemou, sem hann myrti árið
2005. Þegar hann, við réttarhöldin,
var spurður um ástæðu þess að
hann rændi fólk og myrti, svaraði
hann: „Ég er latur. Ég sá enga aðra
leið til að komast yfir fé með skjót
um hætti.“
Flestum spurningum svaraði
Danping á þann veg að hann hefði
ekkert að segja og reyndar var ljóst
að hann mundi ekki öll smáatriði
glæpa sinna.
En saksóknarar voru með smá
atriðin á hreinu og töldu ekki eftir
sér að tíunda þau.
Yfirheyrður en sleppt
Þann 19. september, 2003, urðu
Sumouhjónin fyrir barðinu á
Danping. Eftir að hafa rænt þau
öllu fémætu bar hann eld að heim
ili þeirra í borginni Chen Kung.
Þann 24. febrúar, 2004, endur
tók Danping leikinn í sömu borg.
Þá var um að ræða 49 ára kaup
sýslukonu, Wenmou að nafni. Í
það skipti munaði litlu að lög
reglan hefði hendur í hári Dan
pings, því hann var yfirheyrður, en
síðan sleppt.
Daginn eftir kom Danping á
vettvang glæpsins með vinum sín
um og henti gaman að öllu. „Þið
getið fengið verðlaun ef þið segið
til mín – lögreglan heldur að ég
hafi gert þetta,“ sagði hann við
vini sína sem hlógu hástöfum að
glensinu.
Fjögurra ára hlé
Leið nú tæpt ár og 25. janúar, 2005,
féllu He Mouyohjónin fyrir hendi
Danpings. Þorpsbúum tókst að
slökkva eldana sem Danping hafði
kveikt og lögreglan fann hjónin
liggjandi í rúmi sínu. Þau höfðu
bæði verið stungin mörgum sinn
um auk þess sem líkin báru merki
barsmíða.
Þegar þarna var komið sögu
voru yfirvöld farin að sjá mynstur
LATI RAÐMORÐINGINN
Danping Yuan Var kátur og
gjafmildur, en átti sér dökka hlið.