Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 31
22. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Fermingar
Fjölbreytt úrval skartgripa fyrir fermingarbarnið
Fermingaraldurinn er hjá mörgum sá tími þegar ung-menni byrja að bera skartgripi,
að minnsta kosti skartgripi af fínna
taginuw, og taka að þróa með sér
smekk fyrir fallegri hönnun. „Það
er líka áhugavert að strákar í dag
eru farnir að bera skart miklu meira
en var fyrir nokkrum árum og eru
ófeimnir við það. Þannig eru tísku-
straumarnir að breytast og munurinn
milli kynjanna minnkar,“ segir Unn-
ur Eir Björnsdóttir hjá Meba. Meba
býður upp á mikið úrval af skart-
gripum sem henta í fermingargjafir.
„Við erum með breitt úrval af ólíkum
skartgripum úr gulli og silfri, auk þess
sem við leggjum mikla áherslu á ís-
lenska hönnun,“ segir Unnur.
„Það hefur alltaf verið okkar
áhersla að bjóða á upp á vörur á
mjög breiðu verðbili þannig að allir
geta fundið eitthvað við hæfi hjá
okkur, sama hver fjárráðin eða tilefnið
er,“ segir Unnur, en alþekkt er að
fermingarbörn fái misdýrar gjafir frá
hverjum og einum eftir því hvernig
gefandinn er tengdur barninu.
Meba á sér afar merka sögu en
fyrirtækið fagnaði 70 ára afmæli árið
2017. Í dag eru verslanirnar tvær,
önnur í Kringlunni en hin í Smáralind.
Fyrirtækið var hins vegar stofnað á
Barónsstígnum árið 1947 og hefur
einnig í langri sögu sinni verið til húsa
við Laugaveg.
Bæði afi og faðir Unnar voru
úrsmiðir og stofnaði afinn fyrirtæk-
ið. Hét það upphaflega Magnús E.
Baldvinsson – Úr og skartgripir, en við
flutning fyrirtækisins í Kringluna var
tekið upp nafnið Meba, það er sett
saman úr nöfnum þáverandi aðal-
eigenda, afa og föður Unnar, þeirra
Magnúsar Baldvinssonar og Björns
Árna Ágústssonar.
Íslensk hönnun, góð þjónusta og
breitt úrval eru helstu aðalsmerki
Meba. „Á verkstæði okkar eru gull-
smiðir, úrsmiðir og áletrunarþjón-
usta og reynum við að uppfylla óskir
viðskiptavina okkar eins vel og við
getum,“ segir Unnur.
Meðfylgjandi eru nokkur sýnishorn
af fjölbreyttum skartgripum frá Meba
sem henta prýðilega vel í fermingar-
gjafir.
Sjá nánar á vefsíðunni meba.is
MEBA: