Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 31
 22. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Fermingar Fjölbreytt úrval skartgripa fyrir fermingarbarnið Fermingaraldurinn er hjá mörgum sá tími þegar ung-menni byrja að bera skartgripi, að minnsta kosti skartgripi af fínna taginuw, og taka að þróa með sér smekk fyrir fallegri hönnun. „Það er líka áhugavert að strákar í dag eru farnir að bera skart miklu meira en var fyrir nokkrum árum og eru ófeimnir við það. Þannig eru tísku- straumarnir að breytast og munurinn milli kynjanna minnkar,“ segir Unn- ur Eir Björnsdóttir hjá Meba. Meba býður upp á mikið úrval af skart- gripum sem henta í fermingargjafir. „Við erum með breitt úrval af ólíkum skartgripum úr gulli og silfri, auk þess sem við leggjum mikla áherslu á ís- lenska hönnun,“ segir Unnur. „Það hefur alltaf verið okkar áhersla að bjóða á upp á vörur á mjög breiðu verðbili þannig að allir geta fundið eitthvað við hæfi hjá okkur, sama hver fjárráðin eða tilefnið er,“ segir Unnur, en alþekkt er að fermingarbörn fái misdýrar gjafir frá hverjum og einum eftir því hvernig gefandinn er tengdur barninu. Meba á sér afar merka sögu en fyrirtækið fagnaði 70 ára afmæli árið 2017. Í dag eru verslanirnar tvær, önnur í Kringlunni en hin í Smáralind. Fyrirtækið var hins vegar stofnað á Barónsstígnum árið 1947 og hefur einnig í langri sögu sinni verið til húsa við Laugaveg. Bæði afi og faðir Unnar voru úrsmiðir og stofnaði afinn fyrirtæk- ið. Hét það upphaflega Magnús E. Baldvinsson – Úr og skartgripir, en við flutning fyrirtækisins í Kringluna var tekið upp nafnið Meba, það er sett saman úr nöfnum þáverandi aðal- eigenda, afa og föður Unnar, þeirra Magnúsar Baldvinssonar og Björns Árna Ágústssonar. Íslensk hönnun, góð þjónusta og breitt úrval eru helstu aðalsmerki Meba. „Á verkstæði okkar eru gull- smiðir, úrsmiðir og áletrunarþjón- usta og reynum við að uppfylla óskir viðskiptavina okkar eins vel og við getum,“ segir Unnur. Meðfylgjandi eru nokkur sýnishorn af fjölbreyttum skartgripum frá Meba sem henta prýðilega vel í fermingar- gjafir. Sjá nánar á vefsíðunni meba.is MEBA:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.