Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 36
36 FÓKUS 22. febrúar 2019
að vitaskipið Hermóður hefði farist
með tólf mönnum í Reykjanesröst
undan Höfnum. Svæðið er þekkt
fyrir þunga og óhugnanlega strauma
og hafa, þrátt fyrir að Hermóður
væri talið sterkt og gott sjóskip, að-
stæður reynst Hermóði um megn í
þetta skipti. Þögnin og sorgin sem
grúfði yfir landinu öllu situr enn í
minni fólks sem man þessa tíma og
verður vart lýst í orðum.
Hermóður var annað skipið í
eigu Vitamálaskrifstofunnar. Bar
það heiti sendiboða ásanna, hins
hvata sonar Óðins. Helstu verkefni
Hermóðs voru flutningar vegna
vitaþjónustunnar. Ferðir með gas-
hylki í vitana voru árvissar og flutn-
ingur á matvælum, kolum, áburði
og öðrum nauðsynjum til vita-
varða. Í umfjöllun Hermanns Guð-
jónssonar vitamálastjóra í Morgun-
blaðinu sem rifjaði upp hina síðustu
siglingu segir:
„Eins og oft áður hafði skip-
ið gegnt hlutverki varðskips á Eyja-
miðum og nú var tímabært að halda
heim til Reykjavíkur eftir tveggja
vikna úthald. Veður var allsæmi-
legt síðdegis þegar Hermóður sigldi
frá Eyjum en fór versnandi og um
kvöldið var komið hávaðarok af suð-
vestri.
Storminum fylgdi mikið hafrót.
Flutningaskipið Vatnajökull komst
nauðulega gegnum Reykjanes-
röstina fyrri hluta nætur. Hermóður
var nokkuð á eftir honum. Hann var
undan Reykjanesi þegar samtöl fóru
á milli skipanna um fjögurleytið um
nóttina. Þá amaði ekkert að tólf-
menningunum um borð en röddin
í talstöð Vatnajökuls var síðasta lífs-
markið sem barst frá vitaskipinu
Hermóði.“
Hermóður, sem var smíðaður úr
stáli í Stokkhólmi og fullbúinn árið
1947, var á leið frá Vestmannaeyjum,
þar sem hann hafði verið við báta-
gæslu á vegum Landhelgisgæsl-
unnar, þegar slysið varð. Þegar
skipið skilaði sér ekki sendi Land-
helgisgæslan flugvélina Rán til
þess að leita að því og nokkru síð-
ar var Slysavarnafélagið beðið um
að láta leita meðfram ströndinni
frá Grindavík og vestur og norður
fyrir Reykjanes allt að Garðskaga.
Brugðu slysavarnadeildirnar í
Grindavík og Höfnum, svo og þrír
leitarflokkar frá Reykjavík, skjótt við
og fundu skömmu eftir hádegi brak
úr skipinu rekið undan bænum
Kalmanstjörn sunnan við Hafnir.
Voru það fyrstu vísbendingar um
að skipið væri ekki ofansjávar. Lest-
arhlerar og brotinn björgunarbátur
Hermóðs gáfu til kynna að ólíklegt
væri að nokkur vitaskipsmanna
hefði komist lífs af. Var talið að skip-
ið hefði sokkið skyndilega og nán-
ast útilokað að nokkur skipsmanna
hefði komist lífs af. Hermann sagði í
Morgunblaðinu:
„Ýmislegt brak úr skipinu rak
á fjörur á Reykjanesi dagana eftir
slysið en líkum sjómannanna skil-
aði hafið ekki.“
Samviskusemin réð för
Eins og áður sagði fór tvítugur
maður, Birgir Gunnarsson, með
sem afleysingamaður í þessa
hinstu för Hermóðs. Minnstu
munaði þó að hann hætti við á síð-
ustu stundu.
„Rétt fyrir brottför Hermóðs
fékk hann boð um pláss á skipi frá
Sambandinu sem var á leiðinni til
Akureyrar. Þar átti hann vinkonu
sem hann var byrjaður að skrif-
ast á við og var mjög spenntur fyr-
ir því að hitta. Hann átti í miklu
sálarstríði um hvorn valkostinn
hann átti að velja. Að lokum réð
þó samviskusemin för. Hann vildi
standa við orð sín,“ segir Kristbjörg
Gunnarsdóttir, systir Birgis.
Birgir var tveimur árum yngri
en hún og voru systkinin náin.
„Þetta var gríðarlegt áfall fyrir mig
og fjölskyldu mína. Maður fann
vel að þjóðfélagið var sem lamað
af sorg eftir þessi tvö stórslys. Mér
er sérstaklega minnisstætt þegar
greint var frá slysinu í átta fréttum
Ríkisútvarpsins. Jónas Jónasson
las fréttina upp. Eftir það var út-
sendingunni slitið og tilfinninga-
þrungin tónlist spiluð það sem eft-
ir lifði dags,“ segir Kristbjörg.
Langaði að hringja í þrjátíu ár
Skipstjóri Hermóðs var Guðni
Thorlacius, afi Guðna Th. Jóhann-
essonar, forseta Íslands. Guðni var
í leyfi þennan hinsta túr skipsins.
„Guðni kom á heimili okkar
ásamt presti fyrr um kvöldið og
tilkynnti okkur hvað hefði gerst.
Hann var niðurbrotinn og ég man
að hann sagði föður mínum að
hann hefði viljað fara með áhöfn
sinni,“ segir Kristbjörg.
Birgir bróðir hennar leysti Sig-
mund Þórðarson af á Hermóði en
Sigmundur þurfti að undirgangast
aðgerð á spítala. Sigmundur var
faðir Kristins Sigmundssonar stór-
söngvara. Á dögunum lét Krist-
björg verða af því að slá á þráð-
inn til Kristins. „Mig var búið að
langa til að hringja í hann í meira
en þrjátíu ár,“ segir hún og hlær.
Að hennar sögn tók Kristinn henni
afar vel og áttu þau langt spjall
saman um þessa atburði.
Kristbjörg segist hafa kveikt á
kerti í tilefni tímamótanna þann
18. febrúar og fengið tár í augun
við að minnast bróður síns.
„Hann líður mér aldrei úr
minni. Birgir var vel metinn og
góður drengur. Minning hans lifir í
fjölskyldunni. Til marks um það þá
eru nöfnin Birgir og Birgitta algeng
í minni ætt. Ég á dóttur sem heit-
ir Birgitta og barnabarn hennar
fæddist 18. febrúar 2014. Sú stúlka
var einnig nefnd Birgitta í höfuðið
á Birgi og ömmu sinni. Það var gott
að geta líka glaðst á þessum degi,“
segir Kristbjörg. n
Til sýnis hjá Pmt Krókhálsi 1
ETNA ehf.
RAFMAGNS
BRETTATJAKKUR,
KRAFTMIKILL,
LÉTTUR OG LIPUR
Lithium Rafhlaða
Aðeins 3 kg
2 ára ábyrgð
LÍTIÐ STÆRRI EN
HANDTJAKKUR OG
MIKIÐ MINNI EN
HEFÐBUNDNIR
RAFMAGNS-
BRETTATJAKKAR
ER ALLT ÖÐRUVÍSI
OG GETUR MEIRA.
Farðu inn á
www.youtube.com
og sláðu inn:
cPx7PPYvNUM
Þá sérðu Microlift video
Sjón er sögu ríkari
Fyrirspurnum svarað í síma 698 1539.
Sendu tölvupóst á netfangið siggi@pmt.is
og við sendum upplýsingar um Microlift.