Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 39
FÓKUS 3922. febrúar 2019
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
Gulaþing 22, Kópavogi Sara Lind Pálsdóttir, eigandi Júník, býr í íbúð
í fallegu parhúsi sem byggt var árið 2008. Íbúðina, sem er 105,6 fer
metrar, keypti Sara Lind í febrúar 2018 á 49,5 milljónir króna. Úti
vistarperlan á Vatnsenda og Vatnsendavatn bíður manns við bæjar
dyrnar.
Markarflöt 51, Garðabæ Andrea Magnúsdóttir, eig
andi Andrea by Andrea, býr í gullfallegu 204,9 fer
metra einbýlishúsi með manni sínum, Ólafi Þór
Ólafssyni. Húsið, sem byggt var árið 1965, keyptu
þau í nóvember 2011 á 45 milljónir króna. Frábær
eign á flötunum í Garðabæ.
Mávanes 8, Garðabæ Lindexhjónin Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og
Albert Þór Magnússon búa í fallegu 352,7 fermetra einbýlishúsi sem
byggt var árið 1979. Húsið keyptu þau í júní 2013 á 128,5 milljónir
króna.
Háaberg 39, Hafnarfirði Linda Björg Árnadóttir, eigandi Scintilla, býr
ásamt unnusta sínum, Bárði Sigurgeirssyni, í 322 fermetra einbýlis
húsi, sem byggt var 1992 og er þinglýst eign hans.
Kjarnagata 29, Akureyri Þuríður María Hauksdóttir, eigandi Spútnik
og Nostalgía, leigir íbúð í þessu húsi, en Heimavellir III ehf. er eig
andi alls hússins, sem byggt var árið 2016.
Sörlaskjól 24 Margrét Arna Hlöðversdóttir, eigandi
As We Grow, á 279 fermetra hús í Vesturbænum
með manni sínum, Jóni Garðari Guðmundssyni.
Húsið, sem byggt var árið 1950, keyptu þau í nóv
ember árið 2007 á 73 milljónir króna. KRvöllurinn,
Vesturbæjarlaug og útivistarperlan við Ægisíðu eru
í næsta nágrenni.