Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Page 39
FÓKUS 3922. febrúar 2019 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Gulaþing 22, Kópavogi Sara Lind Pálsdóttir, eigandi Júník, býr í íbúð í fallegu parhúsi sem byggt var árið 2008. Íbúðina, sem er 105,6 fer­ metrar, keypti Sara Lind í febrúar 2018 á 49,5 milljónir króna. Úti­ vistarperlan á Vatnsenda og Vatnsendavatn bíður manns við bæjar­ dyrnar. Markarflöt 51, Garðabæ Andrea Magnúsdóttir, eig­ andi Andrea by Andrea, býr í gullfallegu 204,9 fer­ metra einbýlishúsi með manni sínum, Ólafi Þór Ólafssyni. Húsið, sem byggt var árið 1965, keyptu þau í nóvember 2011 á 45 milljónir króna. Frábær eign á flötunum í Garðabæ. Mávanes 8, Garðabæ Lindex­hjónin Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir og Albert Þór Magnússon búa í fallegu 352,7 fermetra einbýlishúsi sem byggt var árið 1979. Húsið keyptu þau í júní 2013 á 128,5 milljónir króna. Háaberg 39, Hafnarfirði Linda Björg Árnadóttir, eigandi Scintilla, býr ásamt unnusta sínum, Bárði Sigurgeirssyni, í 322 fermetra einbýlis­ húsi, sem byggt var 1992 og er þinglýst eign hans. Kjarnagata 29, Akureyri Þuríður María Hauksdóttir, eigandi Spútnik og Nostalgía, leigir íbúð í þessu húsi, en Heimavellir III ehf. er eig­ andi alls hússins, sem byggt var árið 2016. Sörlaskjól 24 Margrét Arna Hlöðversdóttir, eigandi As We Grow, á 279 fermetra hús í Vesturbænum með manni sínum, Jóni Garðari Guðmundssyni. Húsið, sem byggt var árið 1950, keyptu þau í nóv­ ember árið 2007 á 73 milljónir króna. KR­völlurinn, Vesturbæjarlaug og útivistarperlan við Ægisíðu eru í næsta nágrenni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.