Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 52
52 FÓKUS 22. febrúar 2019
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
aðrir útsölustaðir
Epal - Laugavegi 70
EPAL - Harpa
Airport fashion - Leifsstöð
Reykjavik Raincoats
HVERFISGATA 82, vitastígsmegiNn
www.reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177 - info@reykjavikraincoats.com
Dótið í lífi okkar
n Það kennir ýmissa grasa á Facebook-síðunni Hver hendir svona?
M
örg okkar eiga fullt af
dóti, alls konar dóti sem
við erum búin að sanka
að okkur, jafnvel á langri
ævi. Dótið þarf ekkert endilega að
vera uppstillt í hillum eða geymt
ofan í skúffum, hver á ekki fjöld-
ann allan af kössum í geymsl-
unni eða bílskúrnum fulla af dóti,
sem má alls ekki henda, af því að
dótið er tengt minningum og/eða
það gæti einhver þurft að nota það
seinna?
Í Facebook-hópnum Hver
hendir svona má finna fjölda
mynda og færslna um „gersem-
ar“ sem eigandinn hefur ákveðið
að láta frá sér, af ýmsum ástæð-
um. Gersemar sem hvíla nú í hill-
um nytjamarkaða höfuðborgar-
innar og bíða eftir að nýr eigandi
komi auga á þær og næli sér í fyrir
nokkra hundraðkalla.
Hér má sjá nokkrar myndir úr
hópnum valdar af handahófi.
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Hver hendir svona brúðhjónastyttuvín-
flöskublómaskrautsglerboxi? „Þau eru bæði
svo sorgmædd, kannski veitir ekki af öllu
þessu víni til þess að drekkja undirliggjandi
ástarsorgum?“ skrifar ein í hópnum.
Hver hendir svona? Athygli er vakin á
valkvæðu verði, tveir verðmiðar.
Þessi móðgaði kannski einhvern í Seðla-
bankanum? Hver hendir svona fínum
typpakalli?
Það er allt fullt af svínum, í öllum stærðum
og gerðum. Líka fyrir jólin. Hátíðlegt og
fallegt jólasvín. Hver í ósköpunum hendir
svona?
Hvort kom á undan, bókin eða nytjamark-
aðurinn?
„Þegar typpakökur bakast“ Hver hendir
svona og meira að segja enn í umbúðunum?
Nýjasta nýtt úr svínapönnudeildinni. Og
tvær, það dugar ekkert minna.
Við vitum ekki alveg hvað þetta er og viljum
ekki vita það.
Bleikur handsaumaður kaktus í potti,
kannski hefur eigandinn breytt um lita-
pallettu á heimilinu?
Karlmannsútgáfan af freetheniple? „Ein-
hver hlýtur að sakna þessarar myndar af
fjölskylduveggnum!“ skrifar einn í hópnum.