Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Síða 56
22. febrúar 2019
8. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
FALLEGT ÚTLIT VÖNDUÐ HÖNNUN
Hefðir, handverk og framþróun. Nýja Inspiration línan hefur fallegt og gæðalegt útlit
í samraæmi við innri gæði. Hægvaxta fura, náttúrulegt latex, þéttofin bómull og okkar eigið
gormakerfi úr sænsku karbon stáli gefur óviðjafnanleg þægindi og stuðlar að góðum svefni.
VISUALLY COMPELLING. CAREFULLY ENGINEERED.
B
Y
S
T
E
D
dux.se
Heritage and craftsmanship combined with innovation. The new INSPIRATION™ collection and its tailored exterior, brings justice
to an ingenious inside. Slow grown pine, natural latex, high thread-count cotton and our very own, original, spring cassette
system, with interlocked springs made from Swedish steel. For unparalleled comfort and sleep.
THE ORIGINAL SINCE 1926
DUXIANA
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.is Háþróaður svefnbúnaður
Lok, lok
og læs og
allt í stáli!
Ísland ofarlega
hjá veðbönkum
Í
sland er nú talið meðal tíu
líklegustu þjóðanna til að
sigra í Eurovision samkvæmt
erlendum veðbönkum.
Stærstu veðbankarnir, Bet 365
og Skybet, meta líkur Íslands
tuttugu á móti einum. Ef það
gengur eftir myndi Ísland fljúga
upp úr undanriðlinum og
hafna í áttunda sæti.
Hvað varðar Söngvakeppni
Sjónvarpsins er hljómsveitin
Hatari talin líklegust til þess að
fara áfram. Er stuðullinn á það
hjá Eurovisionworld.com 1,95
á móti einum.
Til að setja þetta í samhengi
þá var íslenska framlagið í
fyrra, Our Choice í flutningi Ara
Ólafssonar, neðst hjá erlendum
veðbönkum fyrir keppnina.
Reyndust þeir sannspáir því
að lagið fékk fæst stig allra í
keppninni.
Trumbuslagarinn og
ráðuneytisstjórinn
Lítt þekkt
ættartengsl
H
ljómsveitin Hatari hefur
slegið í gegn í Söngva-
keppni sjónvarpsins.
Þar fara fremstir söngv-
ararnir Klemens Hannigan og
Matthías Tryggvi Haraldsson.
Margir hafa velt fyrir sér hver
hinn dularfulli ásláttarleikari
með gaddagrímuna sé. Hann
er Einar Hrafn Stefánsson,
sem einnig ber húðir í hljóm-
sveitinni Vök.
Faðir hans, Stefán Haukur
Jóhannesson, hefur gert það
gott á öðrum vettvangi. Stefán
er ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu og hefur starfað
fyrir Íslands hönd á alþjóða-
vettvangi lengi. Meðal annars
var hann sendiherra
í Brussel árin
2005 til 2010 og
var aðalsamn-
ingamaður Ís-
lands vegna við-
ræðna um aðild
að Evrópusam-
bandinu.
Gangster sem lendir í fangelsi
Þ
að kæmi Gústaf Níelssyni ekki á
óvart ef Dagur borgarstjóri yrði
fyrsti íslenski stjórnmálamaður-
inn sem lenti í fangelsi fyrir spill-
ingu. Gústaf hefur lengi verið viðloðandi
stjórnmál, meðal annars fyrir Þjóðfylk-
inguna og Framsókn, en langþekktastur
er hann fyrir að vera bróðir Brynjars Ní-
elssonar sem hefur náð talsvert meiri
frama á hinu pólitíska sviði, og hefur
skuggi Brynjars aðeins stækkað með ár-
unum.
Gústaf lætur ýmislegt flakka á samfé-
lagsmiðlum. Hann deilir frétt Viljans en
í henni segir að á sama tíma og vanti um
átta þúsund íbúðir í Reykjavík til að mæta
eftirspurn á markaðnum sé Reykjavík full
af tómum lúxusíbúðum. Gústaf varpar
þeirri spurningu fram hvort mögulegt
sé að bankarnir muni á endanum sitja
uppi með glæsiíbúðirnar. Þá segir hann
Dag bera höfuðábyrgð á þróun íbúða-
byggingar í Reykjavík og borgarstjórinn
sé „pólitískur dauðans matur sem enginn
mun hafa lyst á innan skamms.“
Gústaf bætir svo í: „Hann er gangster
og það kæmi mér ekki á óvart þótt dreng-
urinn sá yrði fyrsti stjórnmálamaðurinn
til þess að lenda í fangelsi fyrir spillingu,
eða á ég að segja gjörspillingu?“ n