Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 ÁRAMÓT Í SJÁVARÚTVEGI Skúli Halldórsson sh@mbl.is S igurður Guðjónsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir að svo virðist sem veiðarnar á nýliðnu fiskveiðiári hafi gengið vel, enda útgerðir almennt að klára afla- heimildir sínar í helstu tegundunum. Í sam- tali við 200 mílur segir hann það ánægjuefni að sjávarútvegsráðherra hafi afgreitt ráðgjöf stofnunarinnar, um aflaheimildir nýhafins fiskveiðiárs, tiltölulega hratt og án breyt- inga. „Hún hefur náttúrlega síðustu árin og bráðum áratugina farið óbreytt í gegn. Auð- vitað er alltaf einhver þrýstingur til staðar og freisting til að víkja frá henni, en svona almennt talað hafa menn orðið trú á vísind- unum á bak við ráðgjöfina. Að sjálfsögðu er- um við ekki óskeikul, frekar en aðrir, en þetta er það besta sem við höfum til að miða við,“ segir Sigurður. „Ef maður spyr menn hvort þeir vilji snúa til baka, þá er svarið mjög afdráttarlaust „nei“,“ bætir hann við, léttur í bragði. „Menn bera meiri virðingu fyrir vísindunum.“ Kaldari sjór til bjargar humri? Slæm staða humarstofnsins hefur vakið at- hygli síðustu misseri, og segir Sigurður teg- undina í erfiðri stöðu hér við land. „Það vantar inn í stofninn nýliðun og það er áhyggjuefni. Þetta er hægvaxta dýr þann- ig að þegar það vantar nokkra árganga af nýliðun þá erum við orðin svolítið áhyggju- full. Óvenjuhlýtt hefur verið við landið síð- ustu árin og það gæti hafa haft áhrif á nýlið- unina hjá humrinum. Nú er sjórinn tekinn að kólna aftur, bæði á síðasta ári og nú í ár, og það er spurning hvort sú breyting geti hjálp- að honum að ná sér aftur á strik. En við vit- um það ekki,“ segir Sigurður og bendir á að vel sé fylgst með hitastigi sjávar hér við land. „Ef frá eru talin þessi tvö síðustu ár þá hefur sjórinn við Ísland aldrei verið hlýrri frá upphafi mælinga. Það er ekkert flóknara en það.“ Mikilvægt að fylgjast vel með Veiðar á mikilvægum tegundum eiga mikið undir því að sjórinn á Íslandsmiðum haldist kaldur, en á sama tíma hefur hlýnunin valdið því að suðrænni tegundir sækja norður í auknum mæli. „Við höfum náttúrlega fengið hingað teg- undir að sunnan, þar sem munað hefur mest um makrílinn. Ýsan er orðin mun meiri en hún var fyrir norðan og svo hefur skötusel- urinn náð að breiða vel úr sér.“ Á sama tíma er loðnan, kaldsjávartegund, í miklu basli að sögn Sigurðar. „Hún er greinilega komin miklu norðar en hún var, en hún er mjög mikilvæg sem fæða fyrir botnfiska á borð við þorsk. Í þessum efnum gætum við farið að sjá miklar breytingar í framtíðinni og því mikilvægt að fylgjast vel með. Þessar breytingar í sjónum eru að hafa áhrif á lífríkið og munu koma til með að hafa áhrif næstu árin sömuleiðis.“ Erfitt að sjá fyrir afleiðingar Stór hluti rannsókna stofnunarinnar beinist að vöktun á helstu nytjastofnum í íslenskum sjávarútvegi, enda mikil verðmæti að veði. Ásamt því að fylgjast með hlýnun sjávarins er einnig fylgst með súrnun hans, en það er þegar sýrustig hafsins lækkar af völdum upptöku koltvísýrings úr andrúmsloftinu. „Við höfum fylgst með því og mælt kolefn- isbúskapinn í hafinu, sem ræður sýrustiginu, og það er ljóst að hafið er að súrna. Koltví- sýringur endar í sífellt auknum mæli í hafinu og hann hefur þessi áhrif, en mjög erfitt er að sjá nákvæmlega fyrir afleiðingar þessa, það er hvað muni gerast,“ segir hann. „Við vísindamennirnir þekkjum ekki nógu vel þau ferli þar sem áhrifanna kann að gæta sem mest, svo sem svifdýrabúskapinn. Þar þarf að gera miklu meiri rannsóknir og bein- línis leggjast í tilraunir á rannsóknarstofu, til að ráða í mögulega framtíð.“ Meiri virðing borin fyrir vísindunum Afgreiðsla aflaráðgjafar Haf- rannsóknastofnunar und- anfarin ár er til marks um aukna trú fólks á þeim rann- sóknum sem liggja þar að baki. Fylgjast þarf grannt með hlýn- un og súrnun sjávar og þeim áhrifum sem þær breytingar hafa í för með sér. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sjávarútvegshúsið Hafransóknastofnun er í þessari byggingu við Skúlagötuna í Reykjavík, en flutningar suður í Hafnarfjörð standa nú fyrir dyrum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Erindi Hafið er sífellt að súrna, segir Sigurður Guðjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum 18. júlí síðastliðinn var samþykkt að ríkið léti 3,5 milljarða króna renna til hönnunar og smíði nýs hafrannsóknaskips. Nýja skipið kemur í stað rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar RE-30, sem smíðað var ár- ið 1970 og þykir komið mjög til ára sinna. Hafrannsóknastofnun mun halda áfram að nota Árna Friðriksson RE-200, sem er mun yngra skip, smíðað árið 2000. Sig- urður segir það mikinn létti að þetta mál sé komið í höfn. „Við erum mjög glöð yfir þessu. Við vor- um búin að ráðast í frumþarfagreiningu hérna innanhúss, þar sem við útbjuggum lista yfir þau verkefni sem skipið þarf að geta sinnt og hvaða eiginleikum það þarf að vera búið. Næsta skref í ferlinu er smíðanefnd sem ráðherra hefur í hyggju að setja á laggirnar, og við munum vinna með henni að því að fá skip hannað og síðar meir boðið út til smíða,“ segir Sig- urður. Vonast er til þess að skipið nýja komi til landsins árið 2021, eða eftir um það bil þrjú ár að hans sögn. „Þá verður Bjarni orðinn rúmlega fimm- tugur, hann kom árið 1970. Það verður að teljast bærileg ending. Hann er enda bú- inn að þjóna okkur vel.“ „Búinn að þjóna okkur vel“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Hafrannsóknarskip Bjarni Sæmundsson hefur skilað sínu og vel það, en hann kom til landsins árið 1970. í gær. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.