Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is M arel heldur í lok sept- ember sýningu fyrir þá viðskiptavini sína sem stunda vinnslu á hvít- fiski víða um heim. Sýn- ingin, sem nefnist Whitefish Show- How, fer fram í Progress Point, sérstöku sýningarhúsi Marels í Kaupmannahöfn. Sýning þessi er árleg og hefur not- ið töluverðra vinsælda, en um 150 gestir hennar á síðasta ári komu víða að og voru frá fleiri en þrjátíu löndum – frá Suður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Búist er við svipuðum fjölda í ár að sögn Sigurðar Ólasonar, framkvæmdastjóra fiskiðnaðar hjá Marel. „Áherslan hjá okkur er á fjórðu iðnbyltinguna, sem hefur verið í gangi undanfarin ár, og ég held að viðskiptavinirnir séu farnir að átta sig á því að framtíðin felst í henni,“ segir Sigurður í samtali við 200 mílur, spurður hvað sé helst á döfinni hjá Marel um þessar mundir. Hann segir Marel einstaklega vel í stakk búið til að nýta sér byltinguna sem byr í seglin, enda eigi fyrirtækið rætur að rekja til þeirra sömu þátta og gera byltinguna mögulega. Kerfið hámarkar framleiðsluna „Frá stofnun félagsins fyrir hartnær fjörutíu árum hefur markmiðið ávallt verið að safna sem mestum gögnum úr vinnsluferlinu til að framleiðendur geti tekið út frá þeim réttar ákvarð- anir. Vélar okkar eru útbúnar háþró- uðum tækjahugbúnaði en Innova- notendahugbúnaðurinn okkar sér svo um að safna gögnum úr öllu vinnslu- ferlinu í rauntíma og gefur stjórn- endum þannig gríðarlega mikilvægt tól til að besta annaðhvort einstakar vélar eða allt vinnsluferlið,“ segir Sig- urður en bendir á að næsta skref verði að sjálfvirknivæða sjálfa ákvörðunartökuna. „Notandinn fer þá kannski meira út í að upplýsa kerfið um þær pant- anir sem eru til staðar og síðan sér kerfið um að hámarka fram- leiðsluferlið með eigin ákvörð- unartöku, ef svo má segja.“ Á döfinni er einnig að innleiða bet- ur nokkurs konar forspárviðhald. „Þá á kerfið að geta séð fyrir hvað þarf að gera, miðað við það hvernig vinnsla er í gangi, hversu lengi vélarnar eru búnar að vinna og þar fram eftir göt- unum,“ segir Sigurður. Höfðu komið í vinnsluna áður Sýndarveruleikatæknin, sem Marel hefur í auknum mæli nýtt sér und- anfarin ár, hefur einnig komið að virkilega góðum notum að sögn Sig- urðar. „Með þeirri tækni getum við sýnt viðskiptavininum fullbúnar verksmiðjur, þar sem hann sér hvernig vinnsluferlið myndi ganga fyrir sig, áður en verksmiðjan er sett upp. Þarna getum við t.d. álagsprófað verksmiðjuna og um leið getur við- skiptavinurinn jafnvel farið að æfa sig í að framleiða í verksmiðjunni,“ segir hann og nefnir dæmi: „Við notuðum sýndarveruleika- tæknina nýverið í Noregi þar sem laxeldisfyrirtæki var búið að kaupa af okkur vinnslubúnað. Viðskiptavin- urinn vissi þá alveg hvernig vinnslan myndi ganga áður en hún fór af stað. Auk þess kom í ljós að tæknin nýtist líka við uppsetningu verksmiðjunnar sem tók í þessu tilfelli styttri tíma en áður tíðkaðist. Starfsfólkið okkar vissi þá alveg hvert hlutirnir áttu að fara við uppsetninguna – það hafði jú eiginlega verið inni í verksmiðjunni Vélarnar taka nú ákvarðanir Marel heldur í lok sept- ember sýningu fyrir þá viðskiptavini sína sem stunda vinnslu á hvít- fiski víða um heim. Sýn- ingin, sem nefnist Whitefish ShowHow, fer fram í Progress Point, sérstöku sýningarhúsi í Kaupmannahöfn. Tækni Viðskiptavinirnir Marels gera sér æ betur ljóst að framtíðin felst í fjórðu iðnbyltingunni með öllum breytingum. Marelsmaður Sigurður Ólason er framkvæmdastjóri fiskiðnaðarsviðs. Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.