Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 27

Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 27
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 27 áður.“ Greinir hvort los sé í fiskinum Fleiri tækninýjungar eru í farvatninu hjá Marel, en fyrirtækið hefur að und- anförnu leyft FleXiCut-skurðarvélinni að notast við gervigreind. „Á þessari sýningu munum við sýna hvernig vélin getur flokkað flökin eftir því hvort los sé í fiskinum eða ekki. Við erum með öflugan röntgen-lampa og út frá hon- um búum við til þvívíddarlíkan af flak- inu, en það höfum við gert alveg frá upphafi. Við erum því með flakið í þrí- vídd, en nú notum við þau gögn áfram inn í gervigreindina, sem nýtir þau til að ákvarða hvort og hversu mikið los sé í fiskinum. Einnig eru gögnin notuð til að staðsetja beinin, sem er hægt að gera með mjög mikilli nákvæmni þeg- ar til staðar er þrívíddarlíkan af flak- inu, en það er virkni sem líka hefur verið frá upphafi.“ Á sýningunni verður sérstök áhersla lögð á sjálfvirknivæðingu í gæðaskoðun. „Eins og gæðaskoðun hefur verið hingað til þá hafa gjarnan verið tekin slembiúrtök, sem síðan eru skoðuð, en með tilkomu FleXiCut er- um við komin með stöðuga gæða- skoðun þar sem öll flök sem fara í gegnum vélina eru skoðuð,“ segir Sig- urður og útskýrir: „Við tökum röntgen-myndir af öll- um flökunum og út af rekjanleikanum sem byggður er í kerfið þá geturðu gefið endurgjöf inn á starfsstöðvar snyrtaranna sem eru útbúnir lita- skjáum, þar sem viðkomandi sér fyrir framan sig nokkurs konar hitakort af flakinu, þar sem gallar eru lýstir upp. Endurtaki mistökin sig í kjölfarið á öðrum flökum lýsist staðsetning gall- ans sífellt meira upp. Snyrtirinn áttar sig þá á því að þarna eru gallar sem hann þarf að fást við og þarf að bæta sig í.“ Önnur nýjung á sýningunni er svo- kallaður gæðaskanni sem mynd- og litgreinir yfirborð flaksins og getur t.d. greint litbrigði í flakinu eins og mar eða blóðbletti sem og útlínur flaksins og metið hvort eitthvað megi betur fara. Áreiðanleiki og þjónusta Spurður um helstu áskoranir fram- undan segir Sigurður að asinn sé orð- inn mikill í geiranum. „Það vilja allir að hlutirnir gerist á stundinni. Það er svo mikið að gerast og svo mörg verk- efni í gangi að ég finn mig knúinn til að minna á það að þetta er langhlaup, ekki sprettur. Númer eitt, tvö og þrjú snúast áskoranirnar líka um áreið- anleika vélanna og þjónustuna,“ segir hann. Í því samhengi bendir Sigurður á að öflug tölvutækni nútímans hefur einnig opnað möguleikann á að safna saman gögnum úr FleXiCut-vélunum víða um heim og nýta þau til að hjálpa viðskiptavinum að bera sig saman við aðra sem hafa sömu vélar í notkun. „Við erum alltaf að hugsa um hvernig við getum nýtt þau gögn sem aflað er við vinnsluna og þetta er mjög spenn- andi verkefni.“ „Það er eitt að geta teiknað upp flotta verksmiðju en svo þarf hún að vera notendahæf, hún þarf að vera með hugbúnað sem stýrir henni út frá einhverjum miðlægum stað, og stjórnandinn þarft að hafa yfirsýn yf- ir hvað er að gerast. Síðan þarf að sjálfsögðu að hafa teymi sem er reiðubúið að þjónusta verksmiðjuna og halda henni við. Það sem við erum að sjá núna og er klárlega áskorun, það er að flækjustigið á þessum kerf- um er að margfaldast. Er því lyk- Áhugasamir Marel tekur þátt í fjölda vöru- og fagsýninga og ræktar með því tengslin við viðskiptavini sína um allan heim. Handtök Fiskvinnslutæki í dag eru orðin afar háþróaður búnaður. Lykilatriði er að vera í nánu sambandi við viðskiptavini okkar og að við náum að þjónusta þá vel. Fengsælum sjómönnum kann að þykja freistandi að hlaða bát sinn út í hið óendanlega. Það getur hins vegar skapað mikla hættu þar sem ofhleðsla getur leitt til alvarlegra slysa. Gætum að öryggi okkar og siglum örugg í höfn. ERTU AFLAKLÓ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.