Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þ etta er klárt skref fram á við og það nýjasta í geir- anum,“ segir Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Fiskeldis Austfjarða. „Skipið tekur sex hundruð tonn af fóðri sem gerir okkur kleift að flytja stærri fóðursendingar til landsins og lækka til muna sendingarkostnað. Skipið er búið mjög öflugu fóðurkerfi sem þýðir að við getum fóðrað allt að sextán kvíar í einu. Það gagnast okkur ekki síst á veturna, þegar dagsljóssins nýt- ur ekki lengi við, svo og á milli storma,“ segir hann og útskýrir frekar: „Eldri fóð- urpramminn var þannig að við gát- um aðeins dælt í þrjár kvíar sam- tímis, sem gerði ferlið tímafrekt og erfitt að hámarka fóðurgjöfina. Kerf- ið er því mun afkastameira.“ Mun meiri vöxtur með skipinu Með bættri fóðurgjöf vex fiskurinn betur, en skipið er einnig búið búnaði til að taka úrgang og dauðfisk. „Dauðfiskurinn er ekki úrgangur í sjálfu sér, heldur er honum breytt í meltu sem er til margra hluta nyt- samleg,“ segir Guðmundur. Skipið er einnig búið viðamiklu myndavélakerfi sem ætlað er að fylgjast með fóðrun fiskanna. Þannig má auka fóðrun er fiskurinn tekur vel og svo stöðva hana þegar þeir taka ekki lengur. „Þannig er hægt að stýra fóðrun- inni eftir hegðun þeirra. Þetta eykur fóðurnýtingu og um leið fellur lítið af fóðri til botns.. Þessu fylgir líka mun meiri vöxtur, þar sem við náum að fóðra fiskana vel og vandlega á hverj- um degi.“ Skipið var sérhannað fyrir Fiskeldi Austfjarða í Póllandi en umsjón með verkinu hafði norska fyrirtækið Steinsvik. Ber skipið heitið Hvaley en fyrir er fóðurskipið Úlfsey. Um borð er mjög góð vinnuaðstaða fyrir áhöfn og aðra sem þar starfa. Jafnvægi vantar í krónuna Spurður um gang eldisins fyrir aust- an segir Guðmundur hann góðan. „Það er góð tíð, markaðir eru góðir og slátrun gengur vel. Sé horft til framtíðar lítur þetta mjög vel út,“ segir hann. „Það er hátt og gott verð og útlit fyrir að það muni halda sér, þar sem eftirspurnin hefur vaxið um- fram framboð síðustu ár. Þá sjáum við ekki fram á mikla fram- leiðsluaukningu.“ Spurður hvort styrking krónunnar undanfarin misseri komi illa við reksturinn játar hann að svo sé. „Hún hækkar náttúrlega að vissu leyti íslenskan kostnað, en mest- megnis er kostnaðurinn í fóðri sem við fáum að utan, og það vegur því að- Bjart yfir eldi fyrir austan Nýtt og öflugt fóður- skip á vegum Fiskeldis Austfjarða kom til heimahafnar á Djúpa- vogi um miðjan ágúst- mánuð. Stjórnarfor- maður fyrirtækisins segir að koma skipsins hafi margt gott í för með sér fyrir starfsem- ina. Frá skipinu verða laxar í Berufirði fóðr- aðir á degi hverjum. Tækifæri „Norðmenn náðu að opna hann núna um áramótin og það má glögglega sjá margföldun í útflutningi á norskum laxi til Kína síðustu mán- uði.“ Myndin sýnir flota eldisstöðvarinnar. Guðmundur Gíslason Uppgangur „Seiðaframleiðsla er hafin og munum við setja seiði út í Fáskrúðsfjörð á næsta ári, ef allt fer eftir áætlun. Þá heldur þessi uppbygging áfram; fleiri störf og meiri framleiðsla.“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Austfjarða er sex ára gamalt fyrirtæki en fiskeldi í Beru- firði á sér mun lengri sögu. Salar Islandica hóf uppbyggingu lax- eldis í Berufirði upp úr aldamót- um. HB Grandi keypti aðstöðuna og breytti í tilraunaeldi, aðallega á þorski, en hætti svo starfsemi. Fiskeldi Austfjarða hf. keypti stöðina fyrir sex árum og lagði áherslu á eldi regnbogasilungs, sem þótti þá vænlegur eldisfiskur og fleiri fyrirtæki einbeittu sér að honum. Regnbogasilungurinn reyndist þó ekki standast samanburð við lax í eldi, ekki vaxa nógu hratt og nýta fóðrið ekki eins vel, auk þess sem góður markaður í Rússlandi lokaðist. Var því ákveðið að skipta yfir í lax á nýjan leik. Fóru úr silungi í lax Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Frysting Silungurinn er slægður og afhausaður og hraðfrystur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.