Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 29

Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 29
eins upp á móti. En klárlega væri gott ef álíka mikill kraftur eða fjár- magn væri sett í að veikja krónuna og varið er í að styrkja hana,“ segir Guð- mundur. „Það vantar jafnvægi.“ Útlit fyrir leyfi á næstu vikum Í farvatninu fyrir austan er stækkun eldisins, í Berufirði og Fáskrúðsfirði, og er útlit fyrir að leyfi fyrir slíku muni fást á næstu vikum að sögn Guðmundar. „Umhverfismatið er komið og nú er verið að vinna í rekstrar- og starfsleyfinu, hjá Mat- væla- og Umhverfisstofnun.“ Undirbúningur er þegar hafinn fyrir aukna framleiðslu. „Seiðafram- leiðsla er hafin og munum við setja seiði út í Fáskrúðsfjörð á næsta ári, ef allt fer eftir áætlun. Þá heldur þessi uppbygging áfram; fleiri störf og meiri framleiðsla.“ Undanfarin ár hafa skapast tugir starfa í kringum umsvif fyrirtækis- ins. „Við erum með um tuttugu starfsmenn í eldinu hjá okkur en svo eru um fimmtíu í vinnslunni á Djúpa- vogi. Þetta eru því í kringum sjötíu manns sem eru að vinna þar, en svo erum við með í kringum tuttugu og fimm manns sem eru að vinna við seiðaframleiðsluna. Allt í allt eru þetta því tæplega hundrað manns sem vinna við eldið í dag.“ Með samning við Whole Foods Nær öll framleiðsla fyrirtækisins er flutt út til Bandaríkjanna, en með lagni náðu forsvarsmenn eldisins samningi við bandarísku heilsu- vöruverslanakeðjuna Whole Foods. „Þar á bæ vilja menn hágæðafisk og það var langt ferli að komast þangað inn. Keðjan er með mjög stífa staðla; ég held það séu ekki nema þrír eða fjórir framleiðendur í heiminum sem standast þá, og við erum þar á meðal. Við framleiðum enda lax í háum gæða- flokki, með ströngustu fram- leiðsluaðferðum sem hægt er að finna.“ Laxinn er ekki ýkja lengi á leiðinni til Bandaríkjanna, en þangað er hann yfirleitt fluttur með flugi að sögn Guð- mundar. „Nú bíðum við bara eftir að Kína opni, en það er verið að vinna í því í ráðuneytinu að fá innflutningsleyfi á laxi til Kína. Það hefur dregist í þrjú ár að fá það, þrátt fyrir að vera með fríverslunarsamning við Kína fáum við ekki að flytja laxinn inn því það er ekki búið að skrá hann inn hjá Kína. Þetta er bara svona diplómatískt ferli sem tekur tíma, en okkur var nú lofað að fá Kína sem allra fyrst þar sem það var lokað á okkur til Rússlands. Þrjú ár eru liðin síðan sú lokun skall á.“ „Mikil fórn fyrir litla þjóð“ Guðmundur segir Kínamarkað ört vaxandi. „Norðmenn náðu að opna hann núna um áramótin og það má glögglega sjá margföldun í útflutningi á norskum laxi til Kína síðustu mán- uði. Þetta er stór hluti af heildar- markaðnum, það er Kína og Rúss- land,“ segir hann og bætir við að það sé einkennileg staða að þurfa að horf- ast í augu við lokaðan Rússlands- markað. „Á sama tíma og frændur okkar í Færeyjum eru búnir að hafa greiða leið þangað inn allan þennan tíma. Það ætti að vera tiltölulega auðvelt fyrir ís- lensku ríkisstjórnina að binda enda á þetta. Þetta er mikil fórn fyrir litla þjóð, að hafa Rússland lokað.“ Berufjörður Ný staðsetning sjókvía Fiskeldis Aust- fjarða er utar í firðinum en sú gamla. Búlandstindur gnæfir yfir byggð og atvinnulífi svæðisins. Vöxtur „Umhverfismatið er komið og nú er verið að vinna í rekstrar- og starfsleyfinu, hjá Matvæla- og Umhverfisstofnun,“ segir Guðmundur um stækkunarplön. LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 29 Búlandstindur á Djúpavogi, sem slátrar og pakkar laxinum fyrir Fiskeldi Austfjarða, tók í byrjun sum- ars í notkun nýtt kerfi, svokallað ofurkælikerfi, við slátrun á laxi. Kerfið er hannað af Skaganum 3X og afkastar allt að 13 tonnum á sólarhring, en ekki þarf að setja nema lítið magn af ís í kassana til kælingar við út- flutning, sem sparar flutningskostnað auk þess sem umbúðirnar nýtast betur. Ekki síst mikilvæg er sú staðreynd að ofurkælingin lengir geymsluþol fisks- ins, enda Ísland lengra frá mörkuðum en helstu sam- keppnislönd. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verðmæti Stór og fallegur lax bíður pökkunar og flutnings á erlendan markað. Sendingin mun metta fjölda fólks. Ofurkældir laxar þurfa lítinn ís

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.