Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 54

Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is H andbeiting á línu, sem rík hefð er fyrir hjá útgerð- inni í Bolungarvík, er á undanhaldi og þær við- bótaraflaheimildir sem svonefnd línuívilnun skilar geta því tapast. Beitningarvélar eru komnar í marga báta í Víkinni og sam- kvæmt því missa þau ábótina sem útgerðarfyrirtækin njóta séu bát- arnir gerði út á handbeitta línu. Ætla má að þetta séu um 1.000 tonn, segir Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík, sem tel- ur mikilvægt að gerðar verði þær breytingar á regluverki og lögum í samræmi við nýjar aðstæður svo aflaheimildir þessar haldist áfram í bænum. Um hvert starf munar „Í dag vinna 30-40 manns hér í Bol- ungarvík við línubeitningu og á bak við þá tölu eru kannski 100 íbúar. Verkmenning er auðvitað í stöðugri þróun og ekkert við því að segja að frekar sé beitt með vél en í hönd- um. Það er hins vegar nauðsynlegt að tryggja að við glötum ekki störf- um af þessum sökum. Í 950 manna sjávarplássi munar um hvert starf,“ segir Jón Páll. Af heildaraflaheimildum hvers árs fara 5,3% í kvótapott stjórn- valda, sem svo er ráðstafað úr til ýmissa sértækra mála. Þar undir er til dæmis byggðakvótinn, og svo línuívilnunin sem komið var á í kringum aldamótin meðal annars vegna þrýstings frá Vestfirðingum. Fyrirkomulag línuívilnunar er lýst svo á vef Fiskistofu, að úr dag- róðrabátum á línuveiðum má í ein- stökum róðrum landa afla umfram aflamark í þorski, ýsu og steinbít. Þessi heimild er bundin við ákveðið hámark í hverri tegund og skil- greind tímabil. Skilyrðin eru meðal annars að hafi línan verið beitt í landi má landa 20% umfram afla sem reiknast til kvóta og sé í bátn- um lína stokkuð í landi er viðbótin 15%. Þá þarf báturinn að koma til löndunar innan við sólarhring frá því að farið er úr höfn Jafnframt verður útgerðin að tilkynna fyrir fram um upphaf þess tímabils sem gert er út á línuna. Kvótinn verður munaðarlaus „Ef línubeitningin dettur út verður talsverður kvóti henni eyrnamerkt- ur munaðarlaus. Þá ætti að vera út- gjaldalaust að ráðstafa honum áfram til staða eins og Bolung- arvíkur, þótt á breyttum for- sendum verði. Það er raunar mjög mikilvægt mál sem ég hef rætt um við sjávarútvegsráðherra, þing- menn og fleiri – sem sýna þessu skilning þótt ekkert hafi gerst í málinu enn,“ segir Jón Páll. Heildarkvóti skipa og báta sem gerð eru út frá Bolungarvík er nú rúmlega 10.100 tonn en landaður afli í Bolungarvíkurhöfn hefur síð- ustu árin verið á bilinu 17-18.000 tonn. „Víkin er einn fárra staða á land- inu þar sem útgerðin hefur klár- lega verið að styrkjast síðustu árin. Héðan er gerður út einn togari og þrír snurvoðarbátar auk nokkurra slíkra, meðal annars af Snæfells- nesi, sem héðan er róið á haustin. Þá eru héðan gerðir út fjórir 15 tonna línubátar og svo telur strand- veiðin á sumrin ansi drjúgt. Allt þetta kemur skýrt fram meðal ann- ars í því að tekjur hafnarsjóðs eru að aukast og verða í ár um 100 milljónir króna,“ segir Jón Páll. Flýja fasteignamarkað á höfuðborgarsvæðinu Í hendur við þetta segir hann svo að haldist að íbúum í Bolungarvík hafi á síðastliðnum þremur árum fjölgað um nærri 50 manns, á sama Línubeitning að líða undir lok Atvinnuhættir eru að breytast en mikilvægt er að halda í störf og aflaheimildir. Í Bolungarvík er land- að allt að 18.000 tonnum af afla á ári og almennt hefur Víkin verið að styrkjast sem útgerðarstaður, segir Jón Páll Hreinsson bæjarstjóri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Handavinna Sterk hefð er fyrir því í Bolungarvík að handbeita línu sem skapar 30-40 störf í bænum. Við beitninguna þarf að hafa hörð handtök, enda eru línurnar ógnarlangar og krókarnir í þúsundavís. Sigling Það er stutt á fiskislóð frá Bolungarvík, þar sem fjöldi báta og skipa er gerður út. Myndin var tekin vestra í sl. viku. Sturlaugur Jónsson & Co er umboðsaðili fyrir Selhella 13 Hafnarfjörður sími 412 3000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.