Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 4

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Veður víða um heim 19.9., kl. 18.00 Reykjavík 9 léttskýjað Bolungarvík 4 rigning Akureyri 6 rigning Nuuk 4 skýjað Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 19 heiðskírt Helsinki 18 skýjað Lúxemborg 25 léttskýjað Brussel 23 heiðskírt Dublin 13 skýjað Glasgow 12 rigning London 20 rigning París 24 léttskýjað Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 26 heiðskírt Berlín 29 heiðskírt Vín 25 skýjað Moskva 20 heiðskírt Algarve 26 léttskýjað Madríd 30 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 27 þrumuveður Róm 25 súld Aþena 24 heiðskírt Winnipeg 10 skýjað Montreal 14 alskýjað New York 26 skýjað Chicago 23 léttskýjað Orlando 32 heiðskírt  20. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:06 19:38 ÍSAFJÖRÐUR 7:09 19:44 SIGLUFJÖRÐUR 6:52 19:27 DJÚPIVOGUR 6:35 19:07 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á föstudag Norðan 13-20 með snjókomu á Norður- landi og rigningu eða slyddu austanlands, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hægari og úrkomuminna um kvöldið. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Norðan og norðvestan 10-18 m/s. Rigning eða slydda og snjókoma norðantil á landinu ofan 100- 200 metra yfir sjávarmáli, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 1 til 10 stig, mildast syðst. AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR SKODA • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Langt er liðið á september og því nauðsynlegt að fara að huga að haustverkunum, jafnt til sjávar og sveita, áður en veturinn gengur í garð með öllum sínum kostum og göllum. Þessi skipverji á Mána II ÁR 7 stóð í ströngu með háþrýsti- dæluna þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í Hafnarfjarðarhöfn í gær og þreif þar dekkið hátt og lágt. Ekki fylgdi sögunni hvort haldið yrði út til veiða fljótlega eftir þrifin, en eflaust eru einhverjir sem þurfa að fylgja for- dæmi þessa þrifna skipverja. Morgunblaðið/Eggert Haustverkin unnin í Hafnarfjarðarhöfn Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Einstaklingar sem fara í stjórnsýslu- mál gætu átt rétt á endurgreiðslu úr tryggingum fyrir málskostnað, sam- kvæmt niðurstöðu nýrrar fræði- greinar Sindra M. Stephensen, lög- manns og aðstoðarmanns dómara við EFTA-dómstólinn, í Tímariti Lögréttu. Um er að ræða svokallaðar rétt- araðstoðarvátryggingar sem eru hluti margra heimilis- og fasteigna- trygginga vátryggingafélaga á Ís- landi. Vátryggingafélagið tekur þá að sér að bera kostnað við mála- rekstur gegn greiðslu iðgjalds en vá- tryggingarskilmálar trygginga- félaga á Íslandi hafa lengi vel verið skorðaðir við greiðslur fyrir málsmeðferð fyr- ir dómstólum. Ef reglugerð um réttaraðstoðarvá- tryggingar, sem var innleiðing á tilskipun Evrópu- þingsins og -ráðs- ins og tók gildi hér á landi árið 2017, er skýrð í ljósi dómafram- kvæmdar Evrópudómstólsins, segir Sindri það ekki útilokað að vátryggð- ir Íslendingar „geti í vissum tilvikum haft uppi kröfur um bætur vegna lögmannskostnaðar við meðferð máls á stjórnsýslustigi, burtséð frá efnisákvæðum vátryggingarsamn- ings sem takmarkar gildissvið tryggingarinnar“. Í samtali við Morgunblaðið segir Sindri að hér sé átt við það þegar dómstólum er aðeins kleift að ógilda ákvörðun stjórnvalds en taka ekki nýja ákvörðun. Í þeim tilvikum geta einstaklingar sótt um bætur strax við málsmeðferð á stjórnsýslustigi. Á þetta við um einstaklinga sem eru með mál hjá t.d. Tryggingastofnun eða úrskurðarnefnd velferðarmála. Í fræðigrein sinni bendir hann á nýlegan dóm Evrópudómstólsins sér til stuðnings, þar sem hollenskur karlmaður með réttaraðstoðarvá- tryggingu óskaði eftir greiðslu máls- kostnaðar vegna stjórnsýslumáls hjá Sjúkratryggingum þar í landi. Þar sem Sjúkratryggingar Hollands framkvæmdu mat á rétti hans til sjúkraþjónustu, sem yrði svo grund- völlur máls fyrir dómstólum komst Evrópudómstóllinn að þeirri niður- stöðu að hann ætti rétt á greiðslu frá tryggingafélaginu sínu vegna máls- kostnaðar á stjórnsýslustigi, m.a. vegna tilskipunar Evrópuráðsins og -þingsins, sem hefur nú gildi á Ís- landi. Rakti dómstóllinn samskonar sjónarmið í samskonar máli sem birtist samdægurs. Fordæmi sem nær til Íslands Í ljósi þess að á Evrópska efnhags- svæðinu skal skýra lög og reglur að svo miklu leyti sem við á til samræm- is við EES-samninginn ritar Sindri að „við skýringu reglna landsréttar sem rætur eiga að rekja til EES- réttar, ber dómstólum hér á landi því m.a. að túlka ákvæði landsréttar til samræmis við dóma Evrópudóm- stólsins […].“ Því er dregin sú álykt- un að Íslendingar sem fara í stjórn- sýslumál þar sem dómstólar geta ógilt ákvörðunina en taka ekki nýja ákvörðun gætu átt rétt á greiðslu úr tryggingum sínum fyrir málarekst- ur. Í niðurlagi sínu tekur Sindri einn- ig fram að það teljist til góðra lög- mannshátta að lögmenn upplýsi skjólstæðinga sína um bæði mögu- leikann á opinberri réttaraðstoð sem og hugsanlegar réttaraðstoðarvá- tryggingar. Enda getur kostnaður vegna málareksturs reynst einstak- lingum þungbær og jafnvel staðið í vegi fyrir því að fólk leiti réttar síns. Vátryggingar fyrir stjórnsýslumál  Mögulegt að Íslendingar geti fengið málskostnað fyrir stjórnsýslumál endurgreiddan úr tryggingum  Burtséð frá takmörkunum vátryggingasamnings  Tekur til dæmis til mála hjá Tryggingastofnun Sindri M. Stephensen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.