Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega
góð kaup!
Verð frá:
3.690.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
9
7
3
Samtals voru hegningarlagabrot
hér á landi 13.609 árið 2017 en
12.770 árið 2016. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í skýrslu
ríkislögreglustjóra um grunaða og
kærða einstaklinga en skýrslan
hefur nú verið birt á vef ríkislög-
reglustjóra.
Karlar tæp 80% grunaðra
Fjöldi grunaðra fyrir hegning-
arlagabrot árið 2017 var 4.124 ein-
staklingar, eða 9 prósent fleiri en
meðalfjöldi grunaðra árin 2014 til
2016. Bæði árin 2016 og 2017 voru
karlar rétt tæp 80 prósent grun-
aðra og er það sambærilegt við
fyrri ár, þó að árið 2015 hafi hlut-
fallið verið aðeins lægra eða 77
prósent.
Meðalaldur ríflega 30 ár
Meðalaldur kærðra einstaklinga
árið 2017 var 33 ár hjá körlum en
32 ár hjá konum. Elsti ein-
staklingur sem kærður var á síð-
asta ári var 89 ára en sá yngsti 4
ára. Í báðum tilfellum var um
karlkyns einstaklinga að ræða. Í
skýrslunni kemur fram að börn
yngri en 15 ára séu oftast aðilar að
þjófnaði, eða í 44 prósent tilfella,
og svo eignaspjöllum, í 21 prósenti
tilfella. Fólk yngra en 60 ára er
oftast aðilar að líkamsárásum, eða
í 21 prósenti tilfella.Vert er þó að
taka fram að börn undir 15 ára
eru ekki sakhæf. Ef málsaðili er
barn að aldri er það skráð óháð
því hvert framhaldið verður. Sum
mál eru t.d. þess eðlis að barna-
vernd kemur að þeim en önnur
þess eðlis að ekkert er aðhafst
frekar.
Fíkniefnabrotum fjölgar
Í skýrslunni má sjá að hlutfalls-
lega var ítrekunartíðni meiri hjá
konum árin 2016 og 2017 heldur
en fyrri ár en um 30 prósent
þeirra braut af sér oftar en einu
sinni miðað við um 25 prósent árin
þar á undan. Um 15 prósent brutu
af sér þrisvar eða oftar bæði árin
sem er hærra en fyrri ár.
Flestar konur áttu aðild að
auðgunarbrotum árin 2016 og 2017
en hlutfall kvenna af þeim sem
frömdu auðgunarbrot minnkaði
um 11 prósent á milli ára. Flestir
karlmenn frömdu fíkniefna- og of-
beldisbrot og fjölgaði brotum í
þeim flokkum á milli ára.
Sá elsti sem var kærður
var 89 ára, sá yngsti 4 ára
Hegningarlagabrotum fjölgaði nokkuð á milli ára
Morgunblaðið/Hari
Lögregla Fjöldi grunaðra fyrir hegningarlagabrot árið 2017 voru 4.124 ein-
staklingar, eða 9 prósent fleiri en meðalfjöldi grunaðra árin 2014 til 2016.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Hælisumsóknum hefur fækkað veru-
lega síðan í fyrra að því er fram kem-
ur í yfirliti frá Útlendingastofnun.
Umsóknirnar voru 48 í ágúst síðast-
liðnum en til sam-
anburðar voru
þær 154 í ágúst
2017.
Í yfirliti yfir
fjölda umsókna
um vernd á Ís-
landi árið 2018
kemur fram að
435 umsóknir um
vernd hafa borist
það sem af er
árinu 2018. Flestir umsækjendur eru
frá Írak, Albaníu og Pakistan.
Af þeim 435 umsóknum sem bárust
var 172 umsóknum synjað. 75 manns
fengu vernd, 23 viðbótarvernd og 7
fengu mannúðarleyfi. Dublin-endur-
sendingar voru 106, 37 fengu vernd í
öðru ríki og 102 fengu „önnur lok“.
Talsvert færri sóttu um vernd yfir
sumarmánuðina í ár miðað við í fyrra.
Í júní, júlí og ágúst síðastliðnum bár-
ust 200 umsóknir en í fyrra voru þær
408 yfir sömu mánuði. Flestir sem
sóttu um og fengu hæli á Íslandi eru
frá Írak, 82 sóttu um og fengu 26 sam-
þykkt hæli.
Í fyrra bárust flestar umsóknir frá
Georgíumönnum, eða 289 umsóknir,
en í ár eru þær aðeins 25 talsins. Árið
2017 sóttu 1.293 um hæli á Íslandi. Af
þeim var 322 synjað og 563 hlutu
„önnur lok“ en 84 voru samþykktar.
Umsóknum frá íbúum ríkja sem skil-
greind eru örugg hefur fækkað en
Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi
Útlendingastofnunar, segir að það
megi að hluta til rekja til hraðari
málsmeðferðar.
„Það hefur verið farið í markvissar
aðgerðir til að fækka umsóknum frá
þessum ríkjum sem hafa verið fjöl-
mennust, þessum öruggu uppruna-
ríkjum. Við höfum stytt málsmeðferð-
ina í þeim málum og það hefur tekist
mjög vel, þau mál eru núna afgreidd á
örfáum dögum. Það er sjálfsagt ein af
meginskýringunum á því hvers vegna
umsóknunum frá öruggu ríkjunum
hefur fækkað. Auk þess sýnir tölfræði
undanfarinna ára að umsóknum frá
þessum ríkjum er upp til hópa synjað
því að þeir eru ekki verndar þurfi. Ef
við horfum á tölurnar þá kemur það
ekki á óvart að Írakar séu stærsti
hópurinn núna því þeir hafa verið
stærsti hópurinn að undanskildum
öruggu ríkjunum undanfarin ár,“ seg-
ir Þórhildur.
Hælisumsóknir
færri en í fyrra
Helmingi færri umsóknir bárust í ágúst
Þórhildur Hagalín
Útlendingastofnun 435 umsóknir
um vernd hafa borist á árinu.