Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
5
1
7
2
#
Draghálsi 4
110 Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
LT 1400 - Kæling -18/-20°C . Hægt að læsa
með lykli. - Stærð (LxWxH) cm 142x80x205
- Þyngd 210kg
LT 700 - Kæling -10/-20°C .Hægt að
læsa með lykli. - Stærð (LxWxH) cm
72x80x207 - Þyngd 150kg
AF12EKOMBTPV - Kæling -18/-20°C -
Stærð (LxWxH) mm 1460x750x2200 -
Þyngd 189kg
EKO 11 Tveggja hólfa - Kæling -2/+8°C .Hægt að
læsa með lykli. Stærð (LxWxH) cm 142x70x90
Ítölsk gæðavara
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sala á plastburðarpokum hefur
minnkað töluvert á undanförnum ár-
um að mati Bjarna Finnssonar, for-
manns stjórnar Pokasjóðs. Sala á
plastburðarpokum hefur dregist
saman um 6,3% hjá Vínbúðinni á
fyrstu 8 mánuðum þessa árs, miðað
við síðasta ár, en um leið hefur við-
skiptavinum fjölgað um 2,4% síðan á
síðasta ári.
Í tilefni af Plastlausum september
leggja verslanir og neytendur sitt af
mörkum til að minnka plastnotkun. Í
Melabúðinni eru plastpokarnir t.a.m.
geymdir undir borði allan september.
Árvekniátakið á að vekja fólk til um-
hugsunar um plastnotkun og skað-
semi plasts í umhverfinu.
Fólk er hvatt til að segja skilið við
burðarpoka úr plasti.
Tekjur af plastburðarpokum hjá
verslunum Haga, Vínbúðarinnar og
Samkaupa, auk annarra verslana,
renna í Pokasjóð. Bjarni segir að
samdráttur sé í sölu á plastpokum.
„Það er ekkert byltingarkennt en það
er í þá áttina, salan fer hægt og ró-
lega niður á við. Sala á fjölnota pok-
um er að aukast, við finnum það alveg
gerast. Það er meiri umræða í þjóð-
félaginu og meiri vitund hjá fólki,
krakkar og unglingar eru farnir að
ræða þessi málefni miklu meira en
áður.
Pokasjóður hefur veitt fjölda
styrkja allt frá árinu 1996 og hefur
varið miklu fé í hjálparstarf og Land-
spítalann. Bjarni segir líklegt að nú
muni sjóðurinn sinna umhverfismál-
um af meiri krafti líkt og áður fyrr.
Sem áður sagði tekur Melabúðin
virkan þátt í Plastlausum september
með því að geyma plastburðarpoka
undir afgreiðsluborði, en uppi við eru
fjölnota pokar og maíspokar til sölu.
Friðrik Ármann Guðmundsson,
kaupmaður í Melabúðinni, segir að
vel hafi verið tekið í plastlausan sept-
ember: „Þetta er virkilega gaman og
bara frábært. Fólk hefur alltaf val og
það er að verða sífellt meiri notkun á
fjölnota pokunum.“
„Fyrir ári tókum við líka upp svo-
kallaða Pokastöð. Þá eru til taks pok-
ar úr endurnýttum efnum sem fólk
getur fengið að láni, ef það t.d. gleym-
ir fjölnota poka. Svo skilar það pok-
anum við fyrsta tækifæri svo næsti
viðskiptavinur getur fengið að nota
hann. Þetta er alveg snilldarframtak
og hefur gengið mjög vel.“
Framfarir hafa verið í baráttunni
gegn plastnotkun t.d. með því uppá-
tæki danska drykkjarframleiðandans
Carlsberg sem hefur fundið leið til að
líma dósir saman í kippum, og hættir
notkun plasthringja þegar í stað.
Sala á plastpokum minnkar stöðugt
Fjölnota pokar
vinsælli Plast-
lausum september
vel tekið
Thinkstock.com
Verslað Algengara er orðið að fólk noti fjölnota poka eftir innkaupin en
sala á plastpokum fer minnkandi. Plastlaus september stendur nú yfir.
Árvekniátakið Plastlaus september
hefur vaxið og dafnað hratt en það
var sett á fót fyrir ári. Heiður Magný
Herbertsdóttir, sem situr í fram-
kvæmdahóp Plastlauss septembers,
segist finna mikinn meðbyr: „Fólk er
mjög jákvætt og þetta hefur vaxið
mikið því allir vita hvað þetta er
núna. Ætlunin er að stækka átakið
og að ná til sem flestra, þá erum við
að tala um einstaklinga og fyrir-
tæki.“
Þann 1. september var haldin opn-
unarhátíð Plastlauss septembers í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar var m.a.
markaður með plastlausum vörum
og fræðslubásar. Þá hélt umhverfis-
og auðlindaráðherra, Guðmundur
Ingi Guðbrandsson, erindi og
strengdi þess heit að draga úr plast-
notkun á landsvísu. Sagðist hann
hafa skipað starfshóp sem myndi
kynna tillögur sínar í þeim efnum
seinna í mánuðinum.
Reykjavíkurborg tekur þátt í við-
burðinum og óskar borgin og stjórn
Plastlauss septembers eftir sam-
starfsaðilum til þess að setja upp
pokastöðvar í verslunum, líkt og
tíðkast í Melabúðinni. Góð ráð til að
minnka plastnotkun eru t.d. að forð-
ast að henda plasti í almennt rusl,
nota fjölnota poka í stað plastpoka
og velja ávexti og grænmeti sem
ekki er pakkað í plast.
Hugmyndin um átakið spratt upp
hjá umhverfismeðvituðum ná-
grannakonum í 108 Reykjavík sem
vildu taka á plastnotkun. Ástralska
átakið Plastic Free July veitti þeim
innblástur til að framkvæma hug-
myndina um plastlausan september.
Plastlaus septem-
ber fer vel af stað
Átakið hefur vaxið ört á einu ári
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Átak Ljóst er að allir leggjast á eitt í plastlausum september og er plastmengun í sjónum er umtalað vandamál.
Gæsluvarðhald yfir karlmanni,
grunuðum um gróf kynferðisbrot
gegn börnum, sem getur varðað allt
að 16 ára fangelsi hefur verið fram-
lengt til 3. október.
Þetta staðfesti Kolbrún Bene-
diktsdóttir varahéraðssaksóknari
við mbl.is.
Þennan sama dag rennur út tólf
vikna frestur ákæruvaldsins til að
gefa út ákæru. Maðurinn hefur setið
í gæsluvarðhaldi síðan 11. júlí og átti
það að renna út á þriðjudag en það
var hefur tvívegis áður verið fram-
lengt. Héraðssaksóknari fékk málið
á sitt borð á mánudaginn eftir að
rannsókn lögreglunnar á Suðurnesj-
um lauk.
Maðurinn er einnig grunaður um
fleiri kynferðisbrot gegn brotaþolan-
um, sem og ólögráða barni. Fram
kom í fréttum Ríkisútvarpsins í síð-
asta mánuði að brotaþolarnir væru
báðir börn á grunnskólaaldri.
Tveir kærðu
Brotaþoli í málinu kom 10. júlí á
lögreglustöð og lagði fram kæru á
hendur manninum og konu hans.
Kæran laut að kynferðisbrotum sem
hefðu verið gróf og staðið yfir með
reglubundnum hætti um langan
tíma. Sama dag lagði annar einstak-
lingur fram kæru gegn parinu fyrir
kynferðisbrot og ofbeldisbrot gegn
ólögráða barni.
Játning liggur fyrir við hluta brot-
anna en rannsókn lögreglu beindist
meðal annars að því að upplýsa um-
fang þeirra, hvort þau hefðu verið
framin af fleiri aðilum en hinum
kærða, hvort hann ætti sér sam-
verkamenn og hvort brotið hefði ver-
ið gegn fleiri.
Rannsóknin var umfangsmikil en
lögregla lagði hald á minniskubba,
myndavélar, síma og USB-kubba
auk fjölda myndbandsspóla.
Sætir áfram
gæsluvarðhaldi
Grunaður um gróf brot gegn börnum
Morgunblaðið/Ófeigur
Ákæruvald Hús héraðssaksóknara.