Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
f því sporti sem almenn-
ingur stundar mest og
helst eru hjólreiðar það
allra hættulegasta,“
segir Vilhjálmur Ari Vil-
hjálmsson, læknir á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi. „Á slysa-
deildinni líður varla sá dagur að ekki
komi þangað fólk sem hefur meiðst
eða slasast á reiðhjóli og þessum til-
vikum fer fjölgandi. Slysin eru þó lítið
skráð svo vandinn er að mestu dulinn,
að minnsta kosti í opinberum tölum.
Því verður að taka umræðu um hjól-
reiðaslysin og aðgerðir til úrbóta.“
Höfuðáverkar algengir
Vilhjálmur Ari segir það á flesta
lund gott mál að fólk stundi hjólreið-
ar, hvort heldur er sem sport eða til
að sinna daglegum erindum; fara til
vinnu, í skóla, verslanir og svo fram-
vegis. Nauðsynlegt sé hins vegar að
hjólreiðastígar séu betur afmarkaðir
og séu þá einvörðungu fyrir hjólreiða-
fólk en ekki líka fyrir gangandi veg-
farendur. Slíkt skapi augljósa hættu
og hafi valdið fjölda slysa. Þá sé rök-
rétt að setja í lög að hjólreiðamönn-
um beri að nota hjálm. Slíkt hefur
reyndar oft verið nefnt, en undirtekir
verið misjafnar.
„Það er svolítið merkilegt að
hjólreiðamennirnir sjálfir hafa verið
tortryggnir á skyldunotkun hjálma.
Þeir segja að slíkt geti dregið úr
áhuga fólks á hjólreiðum. Auk þess er
vísað í rannsóknir um að hjálmarnir
bjargi ekki öllu, sem er vissulega al-
veg rétt. En þeir gera oft mikið gagn.
Á bráðamóttökuna til okkar fáum við
fjölda fólks sem hlotið hefur höfuð-
áverka í reiðhjólaslysum þar sem
hjálmnotkun hefði væntanlega af-
stýrt miklu. Heilahristingur sem
börn fá oft í svona slysum getur haft
mjög alvarlegar afleiðingar; svo sem
þroskatruflanir,“ segir Vilhjálmur
Ari.
Stýrið í kviðarholið
Í reiðhjólaslysum er algengast
að fólk detti og brotni eða bráki sig á
öxl eða viðbeinsbrotni. Einnig gerist
oft að fólk fái til dæmis stýri hjóls í
kviðarhol og skaði milta eða nýra.
„Reiðhjólaslysin eru eins ólík og
þau eru mörg og fæst mjög alvarleg,
sem betur fer. Í flestum tilvikum eru
þetta aðeins skrámur og skrap en al-
varlegu tilvikin eru samt þannig að
við þurfum að hugsa hjólreiðamál á
Íslandi upp á nýtt,“ segir Vilhjálmur
Ari. Hann telur fráleitt að miðað sé
við að þegar nýr Landspítali sé kom-
inn í gagnið mæti 40% starfsmanna
þangað gangandi eða á hjóli. Langt sé
í land með að hjólreiðastígar á höf-
uðborgarsvæðinu séu samgöngu-
kostur jafngildur til dæmis akbraut-
um auk þess sem umhleypingasöm
veðrátta ráði því að bíllinn hljóti alltaf
að verða ráðandi á Íslandi. Draum-
sýnin um hjólreiðalandið megi ekki
verða veruleikanum yfirsterkari.
Þróaðri menning
„Ef við berum okkur saman við
Danmörku og Holland þá er hjól-
reiðamenningin þar miklu þróaðri en
hér á landi. Ytra er veðráttan líka
miklu betri en hér og löndin renni-
slétt. Því er mjög ólíku saman að
jafna,“ segir Vilhjálmur Ari sem
kveðst líka hafa áhyggjur af notkun
léttra og hraðskreiðra hjóla. Á þeim
nær fólk stundum 40-60 kílómetra
hraða á klukkustund sem sé meira en
flestum sé viðráðanlegt. Þá séu raf-
magnshjól um margt ófullkomin þeg-
ar horft er til öryggisþátta.
Samfélag nútímans einkennist af
spennu og hraða og í mörgu tilliti er
lífið keppni um að komast yfir sem
mest og lengst á skemmstum tíma.
Út á slíkt ganga til dæmis keppnis-
hjólreiðar sem margir stunda. Um
inntak þeirrar keppni segist Vil-
hjálmur Ari hafa vaxandi efasemdir.
Vísar hann þar til þess að kvíði og
spenna séu algengustu sjúkdómarnir
sem fólk leiti með til heimilislækna. Í
slíkum veikindum hafi samtöl og hug-
ræn atferlismeðferð oft gefið góða
raun; að fólki læri að núllstilla hug-
ann, til dæmis með því að fara út í
náttúruna og hreyfa sig.
Tímakvarðar springa
„Þarna ættu hjólreiðar að koma
inn sem góður kostur. En nú virðast
sem flestir tímakvarðar séu að
springa. Fólk þarf að komast hraðar
og hraðar á hjólinu og þetta þróast út
í spennu- og endorfínfíkn. Því mæli
ég með gönguferðum sem hluta af nú-
vitund,“ segir Vilhjálmur Ari.
Hjólreiðaslys
dulinn vandi
Reiðhjólaslys eru algeng en lítið skráð. Hjólastígar
þurfa að vera betri og hjálmanotkun ætti að setja í
lög, segir læknir sem telur hraða í sportinu of mikinn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ræs Keppendur í hjólreiðakeppninni KIA-Gullhringnum taka af stað austur við Laugarvatn á dögunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Læknir Fólk þarf að komast hraðar og hraðar á hjólinu og þetta þróast út í
spennu- og endorfínfíkn, segir Vilhjálmur Ari sem starfar á bráðamóttöku.
Landkönnunarhátíð verður haldin á
Húsavík 20.-23. september og er
þetta í fjórða sinn sem til hennar er
efnt. Samhliða hátíðinni veitir Könn-
unarsafnið, The Exploraton Museum
in Husavik - landkönnunarverðlaun
kennd við Leif Eiríksson, The Leif Er-
ikson Award, til þriggja einstaklinga
sem hafa unnið afrek á sviði land-
könnunar
Aðalræðumaður hátíðarinnar þetta
árið er David Concannon sem stýrði
kafbátaleiðangri að flaki RMS Titanic,
en myndirnar úr leiðangri hans hafa
verið notaðar í fjölda heimildarmynda
og sjónvarpsþátta og eru helsta heim-
ild um flak skipsins. Hann leiddi síðar
leiðangur á vegum Jeff Bezos, stofn-
anda Amazon, til að sækja eldflauga-
hreyfla Apollo 11 á botn Atlantshafs-
ins og eru þeir nú til sýnis hjá
Flugminjasafninu í Seattle. Einnig
mun Amelia Earhart yngri segja sög-
una af hnattflugi sínu í kjölfar flugs
nöfnu sinnar sem hvarf yfir Kyrrahaf-
inu árið 1937. Earhart yngri lauk
hnattflugi á eins hreyfils Pilatus
PC-12 í júlí 2014 og fylgdi leið nöfnu
sinnar. Þá mun Clive Oppenheimer
eldfjallafræðingur fjalla um bók sína
Eruptions that Shook the World en
kvikmyndin Into the Inferno var byggð
á bók hans.
Í ár verður jafnframt efnt til geim-
faraþjálfunar á Húsavík samhliða há-
tíðinni til að minnast þáttar Íslands í
æfingum tunglfaranna, en hálf öld er
á næsta ári frá fyrstu lendingu manna
á tunglinu.
„Allir tunglfararnir voru karlmenn,
en við munum bjóða fimm konum frá
Evrópu og Ameríku að þjálfa hér á
landi að þessu sinni undir handleiðslu
innlendra og erlendra vísindamanna á
þessu sviði,“ segir Örlygur Hnefill Ör-
lygsson, stofnandi Könnunarsafnsins.
Tunglið og heimur í deiglu á hátíð á Húsavík
Veita verðlaun til landkönnuða
Ljósm/Aðsend
Könnunarsafn Frá afhjúpun minnismerkis um tunglfarann Neil Armstrong á Húsavík
fyrir nokkrum árum en þangað mættu m.a. börn hans og barnabörn frá Bandaríkjunum.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Útsalan í fullum gangi
30-60%
afsláttur
af völdum
vörum
Undirföt • Sundföt • Náttföt • Sloppar