Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Segja má að Olgeir Engilbertsson í
Nefsholti og Weapon-jeppinn hans
séu nánast orðnir hluti af landslag-
inu á Landmannaafrétti. Nú er að
ljúka 57. ferð Olgeirs þangað í fjár-
leitir og þeirri 42. sem hann fer á 65
ára gömlum jeppanum. Olgeir er að-
eins eldri en jeppinn, fæddur 1936,
og varð 82 ára í sumar. Síðasti
smaladagurinn í fyrstu leitum var í
gær og í dag verður réttað í Áfanga-
gili eftir göngur síðan á föstudag.
Samkvæmt gamalli hefð var lagt af
stað á föstudegi í 22. viku sumars.
„Það er eitthvað búið að þvælast á
honum hérna,“ sagði Olgeir um
Weapon-jeppann. „Ég fékk hann
1977 og átti annan eins í tíu ár á und-
an þessum. Sá var orðinn sundur-
ryðgaður. Þessi var langtum heil-
legri.“
Upphaflega hersjúkrabíll
Olgeir segir að þessir bílar hafi
upprunalega verið notaðir sem
sjúkrabílar hjá bandaríska hernum,
meðal annars í Kóreustríðinu. Þegar
Olgeir fékk bílinn sem hann á nú var
í honum biluð bensínvél. Hann færði
vélina úr ryðgaða bílnum yfir í þenn-
an. Á endanum gaf hún sig og árið
1981 var sett Ford-dísilvél í Weap-
oninn og hún gengur enn. Vélin var
farin að bræla mikið í fyrra en þá gaf
kunningi Olgeirs honum olíuverk
sem var sett við. Nú reykir vélin
ekki neitt.
Á yngri árum tók Olgeir þátt í
sjálfri smalamennskunni en nú sér
hann um að flytja mat, gas, olíu og
ýmsan búnað fyrir gangnamennina á
milli áningarstaða. Ráðskonur sjá
um matseldina fyrir úthaldið. Heil-
margt fólk á öllum aldri tekur þátt í
smalamennskunni. Olgeir segir að
50-60 manns og jafnvel fleiri mæti í
matinn þegar flest er.
Göngurnar voru degi lengri í
gamla daga þegar réttað var í Rétt-
arnesi. Það tók alveg daginn að reka
safnið innan úr Sölvahrauni í Rétt-
arnes. Eftir Heklugosið 1980 var svo
mikill vikur þar út frá að það var
ekki viðlit að reka féð þar yfir. Það
hefði orðið svo sárfætt. Þá var farið
að rétta inn frá og svo komu alvöru-
réttir í Áfangagil 1984.
Geimstöðin var fyrir geim
Weaponinn var áður í eigu mjólk-
ursamlagsins á Akureyri. Strákar
sem unnu á verkstæðinu eignuðust
bílinn og gerðu hann upp, settu á
hann heilmikla toppgrind og fleira.
Á hana er letrað „WEAPON 1953“
og „GEIMSTÖÐIN“.
„Þetta var ekki beinlínis geimstöð
til að senda út í geim heldur notuðu
þeir bílinn til að fara á böll með fólk.
Það var svoleiðis geim,“ sagði Olgeir
um nafnið á jeppanum.
Hann er farinn að geyma bílinn
inni í hlöðu á veturna til að hlífa hon-
um fyrir vetrarveðrunum. Olgeir
segir að það sé spurning hvort hann
og Weaponinn fari mikið oftar á af-
réttinn, enda báðir orðnir nokkuð
fullorðnir.
„Þetta er orðinn eldgamall bíll
sem fer að verða búinn. Samt hafa
þeir nú margir gefið upp öndina fyrr
en hann. Það hefur aldrei verið skipt
um grind í þessum. Hún er svo mikið
styrkt hásinga á milli. En þetta er
þungt og fer hægt. Vegirnir hér á af-
réttinum bjóða ekki upp á mikinn
hraða en úti á þjóðvegunum er mað-
ur alltaf fyrir. Það er ómögulegt,“
sagði Olgeir.
Morgunblaðið/RAX
Í Jökulgili Olgeir Engilbertsson og Weapon-jeppinn hans eiga að baki margar ferðir inn á Landmannaafrétt í tengslum við smalamennsku. Fyrri eigendur nefndu bílinn „GEIMSTÖÐINA“.
Á Frostastaðahálsi Olgeir dregur kerru með vistum og búnaði fyrir gangnamennina. Jeppinn er líka fullhlaðinn.
Tveir aldnir
á afréttinum
Olgeir í Nefsholti, 82 ára, trússar
fyrir gangnamenn á 65 ára jeppa
Bólusetning gegn árlegri inflúensu hafin
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli á því að skipulögð bólusetning gegn inflúensu
hófst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 17. september 2018. Bóluefnið myndar mótefni gegn þremur
inflúensuveirustofnum. Bóluefnið verndar gegn svonefndri svínainflúensu.
Heilsugæslan hvetur alla í þeim forgangshópum sem Sóttvarnalæknir ráðleggur að láta bólusetja sig,
að gera það sem fyrst
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem orðnir eru 60 ára
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum,
sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum
• Heilbrigðisstarfsmönnum sem daglega annast fólk með aukna áhættu, sbr. ofantalið
• Þunguðum konum
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komugjald samkvæmt reglugerð
nr. 225 / 2018. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Vinsamlegast leitið
upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is, eða hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð.
Reykjavík, 18. september 2018
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 513 5000 www.heilsugaeslan.is