Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Valsmenn eru sannfærðir um að
aðsóknarmetið sem sett var á Evr-
ópuleiknum á móti Benfica fyrir
hálfri öld standi óhaggað. Þá voru
skráðir 18.243 áhorfendur að ótöld-
um þeim sem komust inn með því
að klifra undir eða yfir girðinguna.
Þetta kom fram í hófi, sem hald-
ið var í fjósinu á Hlíðarenda í
fyrrakvöld, til að minnast þess að
50 ár voru frá Evrópuleiknum
fræga. Viðstaddir fóru yfir sviðið
og sögðu sögur.
Valsmenn benda á að 1968 hafi
stúkan á Laugardalsvelli tekið um
1.200 manns og fyrir vikið hafi ver-
ið hægt að troða um 17.000 manns í
stæði. Síðan þá hafi stúkan verið
stækkuð mikið og nýrri bætt við
austanmegin við völlinn. Þessar
breytingar minnki eðlilega rýmið.
Í þessu sambandi segja þeir að
aðsóknarmetið á Hampden Park í
Glasgow sé 149.547 manns á lands-
leik Skotlands og Englands 17. apr-
íl 1937. Síðan hafi orðið miklar
breytingar á aðstöðu áhorfenda
með auknum stúkubyggingum og
völlurinn taki nú 52.063 manns.
Ljósastaurarnir komu sér vel
Aðsóknarmetið á Benfica-
leiknum var ekki átakalaust. Hall-
dór Einarsson segir að í marga
daga eftir æfingar hafi leikmenn
farið vítt og breitt með auglýsinga-
miða, sem settir hafi verið á bíla
fyrir utan kvikmyndahús, leikhús
og aðra mannmarga staði. „Við
hengdum líka upp gríðarlega mikið
magn af veggspjöldum, negldum
þau meðal annars á ljósastaura,
sem voru úr tré á þessum tíma.
Allir tóku virkan þátt í því að út-
breiða erindið auk þess sem leik-
urinn var rækilega auglýstur í fjöl-
miðlum og ekki síst í útvarpinu.
Þannig náðum við vel til alls lands-
ins.“
Leikurinn vakti mikla athygli
enda heimsfrægir leikmenn í hópi
mótherjanna. Halldór minnist þess
að á æfingunni daginn fyrir leik
hafi fjöldi manns mætt. Veðrið hafi
verið sérlega gott á þessum tíma
og mikla athygli hafi vakið þegar
Eusébio mætti ekki með Benfica-
liðinu til landsins. „Hann þurfti að
fara til Parísar til þess að taka á
móti gullskónum og kom því á síð-
ustu stundu,“ rifjar Halldór upp.
Um 10% landsmanna mættu
Halldór safnaði saman öllu sem
tilheyrir leiknum og rammaði
munina inn. Þar er meðal annars
treyja, sem leikið var í, heillaóska-
skeyti frá Gylfa Þ. Gíslasyni, þáver-
andi menntamálaráðherra, að-
göngumiði, leikskrá, veggspjald,
blaðaúrklippur, myndir, þáverandi
peningaseðlar og fleira. „Um 10%
íbúa landsins mættu á leikinn og
það met verður seint slegið,“ segir
Halldór. steinthor@mbl.is
Segja
að metið
standi
Morgunblaðið/Hari
Valsmenn hittust í fyrrakvöld og
rifjuðu upp Evrópuleik Vals og Ben-
fica á Laugardalsvellinum 18. sept-
ember 1968.
Fremri röð frá vinstri: Ægir Ferdin-
andsson, Reynir Jónsson, Elías Her-
geirsson og Friðjón B. Friðjónsson.
Aftari röð frá vinstri: Samúel Örn
Erlingsson, Gunnsteinn Skúlason,
Sigurður Dagsson, Smári Jónsson,
Bergsveinn Alfonsson, Ingvar El-
ísson, Sigurður Jónsson, Ingibjörg
Jónsdóttir (ekkja Þorsteins Frið-
þjófssonar), Finnbogi Kristjánsson,
Halldór Einarsson, Baldvin Jónsson,
Hendrik Hermannsson (sonur fyr-
irliðans Hermanns Gunnarssonar)
og Alexander Jóhannesson.
MSjá baksíðu
Leikmenn
og stjórn
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–19 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
HITTARAR Í
HAUSTLÆGÐINNI
Enn eitt snilldarverkið
eftir höfund Alex
Mögnuð og heillandi
spennusaga
„... besti glæpasagnahöfundur
Frakka um þessar mundir.“
Financial Times
Síðasta meistaraverk
Mankells loksins komið
út á íslensku
Sjálfstætt framhald
skáldsögunnar Ítalskir skór
„Afburðagóð og grípandi saga.“
Verdens gang