Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 42

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 42
til Kanada eða Kaliforníu. Hlýi sjór- inn berst að lokum til Suður- Ameríku. Ástralía, Nýja Gínea, Indónesía, Malasía, Filippseyjar, Suðaustur-Afríka, Madagaskar og norðausturströnd Suður-Ameríku fá ekki þá úrkomu sem venjulega berst frá hlýjum sjó. Hins vegar verða flóð í Ekvador, Perú, á vesturströnd Argentínu og suðvesturströnd Bandaríkjanna. Hiti hækkar í Jap- an, Kóreu og einnig í Vestur- og Austur-Kanada. El Niño og afleið- ingar hans eru reyndar aldrei alveg eins tvisvar í röð og áhrifin á hann frá Indlandshafi eru óljós. Árið í ár hófst með veikum styrk gagnfyrirbærisins „La Niña“. Kæl- ingaráhrif þess dugðu ekki til að draga úr framvindu hlýnunar. Fyrir bragðið stefnir allt í að 2018 verði hið heitasta frá upphafi mælinga. Að sögn bandarísku haf- og veð- urfarsstofnunarinnar (NOAA) eru bæði El Niño og La Niña hluti af ENSO-hringrásinni og ráða hita- stigi sjávar og veðurmynstri sem lofthiti á miðbaugssvæði Kyrrahafs- ins getur valdið. Útilokað er að vita nákvæmlega hver dæmigerð áhrif vaxandi El Niño á veðurfar verða og fleira hefur áhrif á hvernig veturinn gæti orðið t.d. í Norður-Ameríku. Þegar fyrirbærið er á bilinu að vera í meðallagi og upp í öflugt verður til visst veðurmynstur, með hlýrra veðri en jafnan yfir vestur- og norð- ursvæðum Bandaríkjanna og Kan- ada, að sögn NOAA. Við þessar að- stæður getur úrkoma yfir Mexíkóflóa og Flórída orðið meiri en í meðalári en minni en í meðalári í Ohio-dalnum og Norðvestur- Kyrrahafssvæðinu. Samspil við gróðurelda Þegar aftur á móti La Niña nær yfirhöndinni verður svalara í Kyrra- hafinu og afleiðingin öfug miðað við El Nino. Ná áhrifin einnig til margra heimshorna og valda til dæmis flóðum í Perú og þurrki á Vestur-Kyrrahafssvæðinu sem leitt getur til gróðurelda. Í nýrri rannsókn við háskólann í Santa Barbara í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hafa menn fundið samspil milli El Niño og gróður- og skógarelda. Hafa skógareldar verið skæðir síðustu ár í Kaliforníu og víðar. Í niðurstöðum sínum segja vísindamennirnir að á svæðum þar sem gæti tilhneigingar til elda eigi loftslagsbreytingar eftir að auka á eldhættuna. Áhrif El Niño og La Niña eiga eftir að aukast í framtíðinni og verða grimmilegri víða um jarðir, að sögn Þjóðvísindastofnunar Banda- ríkjanna (NSF), vegna hlýnunar, úrkomuáhrifa og aukinnar eldhættu á gróðurlendi. Kemur þetta fram í grein vísindamanna í Geophysical Research Letters, tímariti félags bandarískra jarðeðlisfræðinga. Þeir segja að gróður- og skógareldar sem kvikna fyrir áhrif La Niña í suðvesturríkjum Bandaríkjanna eigi eftir að verða bráðari. Öfugt við það myndi kaldara loft og úrkomumeira á sömu slóðum undir áhrifum El Niño verða enn kaldara og enn vætusamara sem aukið gæti á flóða- hættu. Kennt um plágur og byltingar Sagt er að El Niño hafi átt þátt í að skrifa mannkynssöguna. Heiti straumurinn við Suður-Ameríku hafi valdið spjöllum á uppskeru víða um heim, kynt undir skógareldum hér og hvar og sumir telji að hann hafi átt meginþátt í flensuf- aröldrum, öðrum plágum og bylt- ingum svo lengi sem sögur herma. Kom þetta fram í frétt í Morg- unblaðinu í mars 1998 um ráðstefnu ástralskra vísindamanna um El Niño í borginni Canberra. Sagði ráðstefnustjórinn Richard Grove, að El Niño hefði átt sinn þátt í frönsku stjórnarbyltingunni, svarta dauða á 14. öld og öðrum plágum síðastliðin 5.000 ár. Forsendur hefðu verið fyr- ir byltingu í Frakklandi, en upp- skerubrestur af völdum El Niño hefði hrint henni af stað. Hann sagði að El Niño fylgdi gíf- urleg úrkoma á sumum svæðum og við þær aðstæður þrifust flær og moskítóflugur vel og rottum fjölg- aði. Taldi hann að allir mestu inflú- ensufaraldrar frá 1557 til 1900 tengdust El Niño og einnig bólusótt og malaría. Á 17. öld fækkaði fólki á Jövu um helming vegna mal- aríunnar. Óregluleg tíðni Loks nefndi Grove kartöflumygl- una og hungursneyðina á Írlandi 1845 en þá var El Niño mjög öfl- ugur að hans sögn. Segir hann, að hallæri og hungursneyð á Indlandi á öldum áður hafi ávallt tengst El Niño, sem hafi raskað hinum venju- legu monsúnrigningum í landinu. Hvert skeið El Niño og La Niña varir um tólf mánuði en einstaka at- burðir þeirra geta varað mun leng- ur, jafnvel nokkur ár. Tíðni þessara fyrirbæra getur verið mjög óreglu- leg en þau gjósa að meðaltali upp á tveggja til sjö ára fresti. Bregður El Niño oftar fyrir en hinu öndverða fyrirbæri La Niña. El Niño þýðir lítill drengur, eða Jesúbarnið, á spænsku. Það voru upphaflega sjómenn á 17. öld sem uppgötvuðu fyrirbærið undan ströndum Suður-Afríku er sjórinn hlýnaði venju fremur í Kyrrahafi. Það gerðist jafnan í desember og því fékk fyrirbærið jólabarnsnafnið. Skírskotar nafngiftin jafnan til um- fangsmikillar víxlverkunar hafs og lofts í Mið- og Miðaustur-Kyrrahafi sem tengist tímabundinni hlýnun yf- irborðs sjávar. Talið er að veð- ursveiflurnar sem fylgdu El Niño- straumnum hafi verið mun minni fyrr á tímum en nú hin síðari ár. Þrátt fyrir nafngiftina hefur El Niño engan fagnaðarboðskap í för með sér. Fylgja þessu fyrirbæri miklar veðrabreytingar víða um heim og flestar slæmar. Vaxandi hitabylgjur í höfunum Það er fleira sem hefur áhrif á veðurfar en El Niño og El Niña. Nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós að hitabylgjur í höfunum og hækk- andi sjávarhiti fara vaxandi um jarðir allar. Dögum sem sjávar- hitabylgjur gætu valdið eyðilegg- ingu og usla hefur fjölgað tvöfalt á 35 árum. Og þeir eiga eftir að fimm- faldast á núverandi hraða loftslags- breytinga, að því fram kemur í um- fjöllun um rannsóknirnar í nýjasta hefti tímaritsins Nature. Þar segir að jafnvel þótt mönnunum takist að stöðva hlýnun lofthjúpsins vel niður fyrir mörk loftslagssáttmálans frá Parísarráðstefnunni muni hitabylgj- um í höfunum engu að síður fjölga verulega, þær vara lengur og aukast að ákefð. Í samanburði við hitabylgjur á landi sem kostað hafa tugþúsundir lífið frá upphafi aldarinnar hafa vís- indamenn gefið sjávarhitabylgjum lítinn gaum. Viðvarandi hlýnun sjáv- ar niður á nokkurra metra dýpi get- ur einnig haft eyðileggingu í för með sér. Tíu vikna sjávarhitabylgja undan vesturströnd Ástralíu árið 2011 splundraði til dæmis heilu vist- kerfi og knúði fisktegundir af hefð- bundinni veiðislóð lengra út í kald- ari sjó. Í annarri sjávarhitabylgju undan ströndum Kaliforníu hlýnaði sjórinn um 6°C og dró ekki úr hitanum fyrr en eftir ár. Gekk bylgjan undir heit- inu „Slettan“ en hún olli miklum þörungablóma og leiddi til stöðv- unar krabbaveiða og dauða sæljóna, hvala og sjófugla. „Á síðustu áratug- um standa sjávarhitabylgjur lengur yfir og eru tíðari, víðtækari og ákaf- ari,“ sagði Thomas Frolicher, við AFP-fréttastofuna, en hann er aðal- höfundur greinarinnar í Nature og umhverfiseðlisfræðingur við háskól- ann í Bern í Sviss. „Þessi þróun mun vaxa enn frekar við frekari hlýnun lofthjúpsins,“ bætti hann við. El Niño gæti látið til sín taka í vetur AFP Bræðsla Sjómaður dælir sardínum yfir í verksmiðju í Lima í Perú. El Niño hefur oft haft áhrif á veiðar Perúmanna.  Veðurfyrirbærisins El Niño gætir á nokkurra ára fresti og hefur í för með sér veðurfarsbreyt- ingar  Einkennast þær af óvenjuhlýjum og næringarríkum sjó undan Ekvador og Perú 42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Uppsveifla veðurfyrirbærisins El Niño í Kyrrahafi undir lok ársins gæti valdið veðurfarstruflunum um allan heim og hefur lofthjúpurinn þó verið óvenjuheitur það sem af er ári. Í nýjum spám um veðurhorfur í ver- öldinni segir Alþjóðaveðurfræði- stofnunin (WMO) 70% líkur á að straumurinn spretti upp undir árs- lok. Reglubundnar hitasveiflur í aust- anverðu Kyrrahafi kynda undir El Niño sem valdið getur þurrki á sum- um svæðum jarðar og ofurúrkomu annars staðar. Í tilkynningu segist WMO ekki búast við að áhrif El niño í ár verði eins öflug og 2015 til 2016, en að þau muni engu að síður verða alvarleg. Vaxandi líkur eru á hærri yf- irborðshita jarðar á næstum öllu Asíu- og Kyrrahafssvæðinu, í Evr- ópu, Norður-Ameríku, Afríku og meðfram mestallri strönd Suður- Ameríku, að sögn VMO. Und- antekning frá þessu gæti orðið svæði inni í landi í Suður-Ameríku, Grænlandi, margar eyjar í Kyrra- hafi og hluta Karíbahafsins. „Árið 2018 er á góðri leið með að verða eitt hið allra hlýjasta frá því mæl- ingar hófust,“ segir Petteri Taalas, framkvæmdastjóri WMO, en víða um heim var lofthiti í júlí og ágúst einstaklega hár. El Niño/Suðursveiflan (ENSO) er náttúrufyrirbæri við miðbaug í Kyrrahafi með sveiflum í yfirborðs- hita sjávar og breytilegum loft- straumum þar yfir. Hefur fyr- irbærið haft mikil áhrif á veðurfarsmynstur og hamfarir á borð við flóð og þurrka víðsvegar um heim, svo og hitastig í loft- hjúpnum. Kúvending á Kyrrahafi Þegar El Niño brestur á verður kúvending í veðurfari á Kyrrahafi. Kaldir hafstraumar snúast í vestur, þar sem heitir straumar eru venju- lega, og þeir heitu fara í austur þar sem þeir köldu ríkja yfirleitt. Stað- vindar á Kyrrahafi veikjast og þjappast og snúast við. Sterkari vindar blása úr vestri, sem eykur áhrifin í hafinu. Hlýr sjór færist í austur svo að dregur úr hitamismun milli austurs og vesturs. Skotvind- arnir í háloftunum færast sunnar og taka með sér óveður, sem venjulega yrðu ekki á leið þeirra og bera þau

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.