Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937
setti embættismaður innanríkisráðu-
neytisins. Þykir þetta stöðuhækkun,
þótt nýja staðan sé ekki jafnáberandi,
og hækkar Maassen einnig í launum.
Fjölmiðlar jafnt til hægri og vinstri
gagnrýndu þessa málamiðlun. Í
blaðinu Bild sagði að ekki væri „að
finna betra dæmi um pólitík, sem
enginn venjulegur maður skilur“.
„Ríkisstjórninni bjargað, traustinu
grandað,“ sagði í tímaritinu Der
Spiegel.
Græningjar, frjálsir demókratar,
vinstrimenn gagnrýndu samkomu-
lagið á svipuðum nótum. Einnig kom
hörð gagnrýni úr röðum stjórnar-
flokks sósíaldemókrata. „Maassen
fær stöðuhækkun fyrir afglöp sín í
embætti,“ skrifaði Sigmar Gabriel,
fyrrverandi utanríkisráðherra og
leiðtogi jafnaðarmanna, í tísti.
Þrír flokkar mynda stjórnina,
kristilegir demókratar, CDU, systur-
flokkur þeirra í Bæjaralandi, CSU,
og sósíaldemókratar, SPD.
Sósíaldemókratar fóru þegar fram
a afsögn Maassens, en Horst Seeho-
Ríkisstjórn Angelu Merkel Þýska-
landskanslara uppskar í gær harða
gagnrýni vegna málamiðlunar, sem
ætlað er að lægja öldurnar í deilu
stjórnarflokkanna vegna Hans-
Georgs Maassens, yfirmanns leyni-
þjónustunnar, sem fer með innan-
landsmál og á meðal annars að hafa
eftirlit með öfgahreyfingum.
Forustumenn stjórnarflokkanna
þriggja ákváðu á þriðjudag að leysa
Maassen frá embætti.
Stangaðist á við orð Merkel
Styrinn stendur um ummæli þar
sem Maassen dró í efa umfang kyn-
þáttaofbeldis, sem braust út í borg-
inni Chemnitz í Saxlandi í ágúst.
Merkel harmaði árásir ofbeldis-
manna og nýnasista á útlendinga í
borginni. Var árásunum líkt við veið-
ar. Maassen lét hins vegar að því
liggja að myndskeið af árásunum
væru fölsuð og dró í efa að slíkar
árásir eða „veiðar“ hefðu átt sér stað.
Maassen var þó ekki rekinn, heldur
færður til og mun nú verða einn hæst
fer, innanríkisráðherra og leiðtogi
CSU, studdi Maassen.
Sviptingar á stjórnarheimilinu
Seehofer gagnrýndi ákvörðun
Merkel um að hleypa flóttamönnum
inn í Þýskaland árið 2015 og hefur
verið grunnt á því góða milli þeirra
síðan. Deila þeirra um innflytjenda-
mál olli nærri stjórnarslitum í sumar,
en að lokum fannst málamiðlun.
Einnig ríkir tortryggni milli CDU og
SPD, en ágreiningurinn milli Merkel
og Seehofer er mun djúpstæðari.
Þar við bætist að í október standa
kosningar fyrir dyrum í Bæjaralandi
þar sem mikið fylgistap blasir við
flokki Seehofers ef marka má skoð-
anakannanir. Seehofer er þeirrar
hyggju að veika stöðu flokksins í
Bæjaralandi og uppgang flokksins
Annar kostur fyrir Þýskaland, AfD,
megi rekja beint til ákvörðunar Mer-
kel um að opna landamærin fyrir
þremur árum. Gjaldi CSU afhroð í
kosningunum mun enn hrikta í stoð-
um á stjórnarheimilinu.
AFP
Umdeild málamiðlun Hans-Georg Maassen var vikið úr stöðu yfirmanns þýsku leyniþjónustunnar, en hækkaður í tign.
Gagnrýna málamiðlun
vegna njósnaforingja
Foringi leyniþjónustu sviptur embætti og hækkaður í tign
Thomas Borgen, bankastjóri danska
bankans Danske Bank, lét í gær af
störfum og sagði að skýrsla um ásak-
anir um peningaþvætti bankans
sýndi að hann hefði farið út af spor-
inu.
Í fréttum hefur komið fram að víð-
tækt peningaþvætti hafi átt sér stað í
gegnum útibú bankans í Eistlandi.
Bankinn kvaðst hafa rannsakað
færslur að verðmæti 1.500 milljarða
evra (26.000 milljarða króna) á
reikningum 15.000 viðskiptavina
með heimilisfesti utan Eistlands á
milli 2007 og 20015. 6.200 þessara
reikninga hefðu reynst grunsamleg-
ir og athygli yfirvalda verið vakin á
flestum þeirra. Kvaðst bankinn ekki
geta hent reiður á hversu mikil hluti
hefði verið peningaþvætti né ná-
kvæmlega hvaðan peningarnir
komu. 23% hefðu þó komið frá Rúss-
landi. Sagði í skýrslunni að stjórn
bankans hefði ekki brotið lög.
Danska fjármálaeftirlitið sagði í
gær að bankinn hefði afvegaleitt það
og gagnrýndi hann harðlega.
Stjórnvöld í Aserbaídsjan, fjöl-
skylda Vladimírs Pútíns Rússlands-
forseta og rússneska leyniþjónustan
FSB eru meðal þeirra sem sagt er að
hafi þvegið fé í bankanum.
Afsögn vegna
peningaþvættis
Bankastjóri Danske Bank farinn frá
AFP
Afsögn Thomas Borgen, fyrrver-
andi bankastjóri Danske Bank.
Mbabane. AFP. | Þegar íbúar Afr-
íkuríkisins eSwatini ganga til kosn-
inga á morgun er lítilla breytinga
að vænta. Konungur landsins,
Mswati III., er alvaldur og velur
sér forsætisráðherra og aðra ráð-
herra. Engir stjórnmálaflokkar
taka þátt og stendur valið á milli
frambjóðenda í 59 einmenningskjör-
dæmum. Þar við bætast tíu kon-
ungsskipaðir þingmenn.
Landið hét áður Svasíland, en
fyrr á árinu var nafninu breytt í eS-
watini. Það liggur milli Suður-Afr-
íku og Mósambík. Landið fékk sjálf-
stæði 1968, á fæðingarári konungs-
ins. 1973 bannaði faðir hans,
Sobhuza II., stjórnmálaflokka og
færði öll völd í hendur konungs.
Flokkar voru leyfðir á ný 2005, en
fá þó ekki starfsleyfi.
Mswati varð konungur 18 ára.
Eiginkonur hans eru 14, en konur
föður hans munu hafa verið 70. Á
hann rétt á að velja sér nýja eig-
inkonu á hverju ári þegar reyrdans-
inn fer fram og þúsundir berbrjósta
jómfrúa stíga fyrir hann dans.
Fátækt er mikil í landinu og tíðni
HIV-smitana er óvíða meiri. Í kosn-
ingabaráttunni hafa fundir og mót-
mæli verið kveðin niður af hörku.
AFP
32 ár við völd Mswati III., konungur eSwatini, við hinn árlega reyrdans.
Gallaðar kosning-
ar í konungsveldi