Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 50

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 50
Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com Pallettan inniheldur hvorki meira né minna en 21 augnskugga með mis- munandi áferðum, frá möttum yfir í metal. Það sem kom mér hvað mest á óvart er þó verðið á pallettunni en hún kostar 6.699 kr., sem verður að teljast hagstætt fyrir 21 hágæða- augnskugga. Born To Run-pallettan verður hluti af varanlegu framboði Urban Decay en þó eru þrír augn- blýantar og þrír varalitir sem koma í takmörkuðu upplagi. Þema pallettunnar er ferðalög og á umbúðunum eru myndir sem starfsfólk Urban Decay tók á ferða- lögum sínum. Allir litir augnskugg- anna voru einnig unnir út frá mynd- um starfsfólksins og að sögn merkisins er þessi palletta það eina sem þú þarft í ferðalagið. Pakkn- ingin býr yfir stórum spegli, sem er sérlega hentugur í ferðalögum. Pallettan er hönnuð til að henta byrjendum í förðun sem og lengra komnum en ef þér finnst litaúrvalið yfirþyrmandi er gott að vita að hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman. Endalaust er hægt að para saman liti í pallettunni til að skapa hlut- lausa eða litsterka förðun. Mynd- irnar hér fyrir neðan kunna að veita innblástur að því hvernig nota má pallettuna. Nýjasta augnskuggapalletta Urban Decay nefnist Born To Run og fór hún eins og stormsveipur um förðunarheiminn en hún er loksins komin til Íslands. Einfalt og æðislegt Einn litur yfir allt augnlokið er stundum það eina sem þarf til að skapa flotta förðun. Sjúkleg palletta Born To Run nefnist nýjasta augnskugga- palletta Urban Decay og inni- heldur 21 augnskugga. Litríkt Vertu ófeimin við að prófa þig áfram með liti en þessi förðun sýnir hversu vel bronslitaðir og blágrænir tónar eiga saman. Flottur innblástur Myndir úr ferðalögum starfsfólks Urban Decay veittu inn- blástur fyrir pallettuna. Pallettan kost- ar 6.699 kr. Endalausir möguleikar með einni pallettu Sniðug pæling Hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman. Hentar fyrir dökkhærðar Förðun með djúpum tónum sem eru sér- lega fallegir fyrir haustið. ÖLL FLOTTUSTU MERKIN úr Ellingsen, Air og fleiri verslunum. ... og fullt af öðrum merkjum MERKJAVÖRUMARKAÐUR! KOMDU OG KLÁRAÐU KAUPIN FYRIR HAUSTIÐ! VERÐ FRÁ 1.000KR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.