Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 50
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
Pallettan inniheldur hvorki meira né
minna en 21 augnskugga með mis-
munandi áferðum, frá möttum yfir í
metal. Það sem kom mér hvað mest
á óvart er þó verðið á pallettunni en
hún kostar 6.699 kr., sem verður að
teljast hagstætt fyrir 21 hágæða-
augnskugga. Born To Run-pallettan
verður hluti af varanlegu framboði
Urban Decay en þó eru þrír augn-
blýantar og þrír varalitir sem koma í
takmörkuðu upplagi.
Þema pallettunnar er ferðalög og
á umbúðunum eru myndir sem
starfsfólk Urban Decay tók á ferða-
lögum sínum. Allir litir augnskugg-
anna voru einnig unnir út frá mynd-
um starfsfólksins og að sögn
merkisins er þessi palletta það eina
sem þú þarft í ferðalagið. Pakkn-
ingin býr yfir stórum spegli, sem er
sérlega hentugur í ferðalögum.
Pallettan er hönnuð til að henta
byrjendum í förðun sem og lengra
komnum en ef þér finnst litaúrvalið
yfirþyrmandi er gott að vita að
hverjir þrír augnskuggar lóðrétt
niður passa vel saman.
Endalaust er hægt að para saman
liti í pallettunni til að skapa hlut-
lausa eða litsterka förðun. Mynd-
irnar hér fyrir neðan kunna að veita
innblástur að því hvernig nota má
pallettuna.
Nýjasta augnskuggapalletta Urban Decay nefnist
Born To Run og fór hún eins og stormsveipur um
förðunarheiminn en hún er loksins komin til Íslands.
Einfalt og æðislegt Einn litur yfir
allt augnlokið er stundum það eina
sem þarf til að skapa flotta förðun.
Sjúkleg palletta Born To Run
nefnist nýjasta augnskugga-
palletta Urban Decay og inni-
heldur 21 augnskugga.
Litríkt Vertu ófeimin við að prófa
þig áfram með liti en þessi förðun
sýnir hversu vel bronslitaðir og
blágrænir tónar eiga saman.
Flottur
innblástur
Myndir úr
ferðalögum
starfsfólks
Urban Decay
veittu inn-
blástur fyrir
pallettuna.
Pallettan kost-
ar 6.699 kr.
Endalausir
möguleikar með
einni pallettu
Sniðug pæling Hverjir þrír augnskuggar lóðrétt niður passa vel saman.
Hentar fyrir dökkhærðar Förðun
með djúpum tónum sem eru sér-
lega fallegir fyrir haustið.
ÖLL FLOTTUSTU MERKIN
úr Ellingsen, Air og fleiri verslunum.
... og fullt af öðrum merkjum
MERKJAVÖRUMARKAÐUR!
KOMDU OG KLÁRAÐU KAUPIN
FYRIR HAUSTIÐ!
VERÐ FRÁ 1.000KR.